Fréttablaðið - 28.12.2005, Side 44
MARKAÐURINN
H A U S
króna. Íslandsbanki hagnast um
7,5 milljarða króna á sama fjórð-
ungi sem er umfram spár.
ÁGÚST
Mánuðurinn byrjar á risasamn-
ingi. Burðarás rennur saman við
Straum fjárfestingarbanka en
Landsbankinn tekur ákveðnar
eignir til sín auk þess að fá sautj-
án milljarða króna í reiðufé.
Samruninn er einn af
stærstu samrunum
sinnar tegundar á
Íslandi.
Björgólfur Thor Björgólfsson,
stjórnarformaður Burðarás,
3. ágúst.
KB banki hagnast um 25 millj-
arða fyrstu sex mánuði ársins og
slær enn eitt metið. Hagnaður
bankanna á fyrri helmingi ársins
er samtals 54 milljarðar króna.
Það er meiri hagnaður en allt árið
í fyrra.
Össur kaupir bandaríska fyr-
irtækið Royce Medical Holdings,
sem framleiðir stuðningstæki.
Baugur kaupir bresku verslunar-
keðjuna Jane Norman fyrir 13,5
milljarða króna.
Félag í eigu Baugs, Straums
og Birgis Þórs Bieldvelt kaup-
ir áttatíu prósenta hlut í danska
vöruhúsinum Illum. Fyrir eiga
þeir Magasin du Nord.
Úrvalsvísistalan nær í fyrsta
skipti yfir 4.500 stigum. Þriðju
mestu viðskiptin á einum degi
frá opnun Kauphallarinnar voru í
byrjun mánaðarins.
Bjarni í Brauðbæ Árnason
selur Óðinsvé til félagsins
Þórstorgs, sem er í eigu nokkurra
aðila. Samskip kaupa Ísstöðina og
þúsund tonna frystigeymslu.
Yfirtökunefnd kemst að þeirri
niðurstöðu að eignarhaldsfélag
Hannesar Smárasonar er ekki
yfirtökuskylt í FL Group í kjölfar
breytinga á eigendahópnum.
Til verður stærsta einkarekna
fyrirtækið á sviði heilbrigðis-
þjónustu á Íslandi með samein-
ingu Liðsinnis og Sögu heilsu.
Atlantis, alþjóðlegt sjávarút-
vegsfyrirtæki, er með starfsemi
í fjórtán löndum og stefnir á
skráningu á markað.
Helsti flöskuháls
í söluaukningu er
aðgangur að fjár-
magni.
Óli Valur Steindórsson, for-
stjóri Atlantis, 31. ágúst.
Upplýst í Markaðnum að Síminn
breytti 750 milljóna skuld Skjás
eins í hlutafé. Var þessi ákvörðun
tekin áður en Síminn var einka-
væddur.
SEPTEMBER
Eimskip undirritar kaup á hol-
lenska frystigeymslufyrirtækinu
Daalimpex. Hollenska fyrirtæk-
ið er eitt stærsta fyrirtæki sinnar
tegundar í Evrópu.
Forstjóri Íslandsbanka og
fimm framkvæmdastjórar selja
hlutafé í bankanum fyrir 3,7 millj-
arða króna. Bjarni Ármannsson
seldi sjálfur bréf fyrir 1,8 millj-
arð króna. Hagnaður Bjarna af
viðskiptunum, án þess að tillit sé
tekið til fjármagnskostnaðar, er
195 milljónir króna.
Styrmir Þór Bragason lætur af
störfum sem framkvæmdastjóri
fjárfestingarfélagsins Atorku
Group.
Menn voru með ólík-
ar stefnur að hverju
skyldi stefna.
Styrmir Bragason, fram-
kvæmdastjóri Atorku, 2.
september.
Rúmfatalagerinn hyggst hasla
sér völl í Austur-Evrópu og
auka umsvif sín í Kanada og
Eystrasalti.
Norska fjármálaeftirlitið gerir
athugasemdir við störf Kaupthing
Norge.
Forsætisráðherra skip-
ar Davíð Oddsson, formann
Sjálfstæðisflokksins og utanríkis-
ráðherra, bankastjóra og formann
bankastjórnar Seðlabankans til
sjö ára.
Actavis festir kaup á búlg-
arska lyfjadreifingarfyrirtækinu
Higia AD.
Jón Helgi Guðmundsson,
kenndur við Byko, opnar aðra
Depó-verslun í Ríga í Lettlandi.
Þeim verslunum svipar til versl-
ana Byko á Íslandi.
Stefnt er að því að
opna þriðju verslun-
ina næsta vor.
Jón Helgi Guðmundsson í
Byko 14. september.
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins
er vanhæfur til að fjalla um sam-
runa Straums og Burðaráss þar
sem hann er hluthafi í Burðarási.
Kosin er ný stjórn Símans
og Lýður Guðmundsson, annar
Bakkabræðra, tekur við stjórn-
arformennsku. Árdegi, Baugur
og Milestone kaupa saman
dönsku raftækjakeðjuna Merlin.
Sverrir Berg á Árdegi og Karl
Wernersson Milestone.
Vátryggingarfélag Íslands
festir kaup á tæpum tíu prósenta
hlut í norska tryggingafélaginu
Protector Forsikring.
Latibær mun ná til 57 millj-
ón sjónvarpsáhorfenda BBC á
Bretlandi eftir samningur um
sýningu þáttanna þar í landi var
undirritaður.
28. DESEMBER 2005 MIÐVIKUDAGUR14
A N N Á L L 2 0 0 5
Á BREMSUNA Birgir Ísleifur Gunnarsson varar markaðsaðila við of miklum verðbólgu-
væntingum. Hækkar hann vextina um 0,75 prósent á sínum næstsíðasta degi sem
Seðlabankastjóri.
ENGIN LETI Magnús Scheving er duglegur
að koma Latabæ á kortið og gerir góðan
samning við BBC um dreifingu á efninu.
UPPSTOKKUN Mikil viðskipti voru í byrjun ágúst þegar Burðarási var skipt á milli Landsbankans og Straums fjárfestingarbanka. Fulltrúar
þessara hluthafa kynntu viðskiptin fyrir starfsfólki og eigendum á Hótel Nordica.
REKINN Þórólfur Árnason hafði einung-
is verið í forstjórastóli Icelandic Group í
nokkra mánuði þegar honum var skyndi-
lega sagt upp störfum.