Fréttablaðið - 28.12.2005, Page 46
MARKAÐURINN
OKTÓBER
Fjármálaráðherra, Árni M.
Mathiesen, leggur fram fjárlaga-
frumvarp fyrir árið 2006. Í fyrsta
sinn er gert ráð fyrir að vaxta-
gjöld verði lægri en vaxtatekjur.
Stjórnendur Landsbankans
sniðgengu hluthafa Grettis þegar
ný stjórn Burðaráss var kosin.
Landsbankinn er ekki meirihluta-
eigandi í Gretti. Aðrir hluthafar
eru Tryggingamiðstöðin, fjár-
festingarfélagið Sund og Nordic
Partners. Mistökum kennt um.
Seðlabanki Íslands hækk-
ar stýrivexti um 0,75 prósent.
Verðbólga er fyrir ofan þolmörk-
in og Birgir Ísleifur Gunnarsson
slær í borðið. Hann vill ná verð-
bólgunni niður.
Seðlabankinn telur
brýnt að peninga-
stefnan standist
þessa prófraun.
Birgir Ísleifur Gunnarsson
seðlabankastjóri 5. október.
Árni Oddur Þórðarson tekur við
stjórnarformennsku í Marel.
Sigurjón Sighvatsson kaupir
í danska fasteignafélaginu VG
Investment.
Skuldabréfaútgáfa erlendis í
íslenskum krónum heldur áfram.
Í heild hafa verið gefin út skulda-
bréf erlendis fyrir um áttatíu
milljarða íslenskra króna.
Svava Johansen kaupir hlut
Bolla Kristinssonar í verslunar-
keðjunni NTC og á því fyrirtækið
á fullu. NTC er ein stærsta tísku-
verslanakeðja landsins og rekur
meðal annars fjórtán verslanir í
Kringlunni, við Laugaveginn og í
Smáralind.
Þórólfi Árnasyni er sagt upp
störfum sem forstjóri Icelandic
Group. Uppsögn Þórólfs kemur
í kjölfar þess að Straumur,
Landsbankinn og fleiri selja yfir
helming hlutafjár í Icelandic.
Mér var birt bréf af
lögmanni um klukkan
hálf sex og gert að
ljúka störfum án tafar.
Þórólfur Árnason, fráfarandi
forstjóri Icelandic Group, 15.
október.
Bakkavör Group kaupir fyrir-
tækið Hitchen Foods fyrir 4,7
milljarða króna. Það framleiðir
ferskt niðurskorið grænmeti og
salat.
FL Group og Fons eignarhalds-
félag, þar sem Pálmi Haraldsson
er annar eigenda, undirrita samn-
ing um sölu flugfélagsins Sterling
til FL Group. Fær félag Pálma
15 milljarða króna fyrir félagið.
Iceland Express fer í söluferli.
Ragnhildur Geirsdóttir hætt-
ir sem forstjóri FL Group eftir
aðeins nokkurra mánaða starf.
Hannes Smárason tekur við
starfi forstjóra en Skarphéðinn
Berg Steinarsson verður stjórn-
arformaður.
Gunnlaugur Sævar Gunn-
laugsson tekur við forstjórastarfi
annars brottrekins forstjóra,
Þórólfs Árnasonar, í Icelandic
Group. Ármann Þorvaldsson
verður forstjóri KB banka í
Bretlandi.
NÓVEMBER
Sænska fjármálaeftirlitið
áminnir Kaupþing banka í Svíþjóð
fyrir meðferð á eignarhlutum í
tveimur sjóðum bankans.
Síminn er afskráður úr
Kauphöll Íslands. 162 af 1.252
hluthöfum Símans taka tilboði
Skipta. Lýður Guðmundsson
stjórnarformaður er ánægður að
svo margir vildu halda áfram
með þeim.
Hagnaður viðskiptabankanna
þriggja á fyrstu níu mánuðum
ársins nam um 66 milljörðum
króna.
Sjö stjórnendur hjá KB banka
ákveða að nýta sér kauprétt á
hlutum í bankanum. Markaðsvirði
hlutanna er um 929 milljónir
króna.
Icelandic Group kaupir
Pickenpack, þýskt fyrirtæki sem
framleiðir frystar sjávarafurð-
ir. Kaupverðið er 5,5 milljarðar
króna.
Síðan unnum við nótt
sem nýtan dag til að
ná þessum samning-
um.
Gunnlaugur S. Gunnlaugsson,
stjórnarformaður Icelandic
Group, 2. nóvember.
STÓRA STUNDIN Jón Sveinsson, formaður einkavæðingarnefndar, opnar tilboð í Símann. Skipti ehf. býður hæst, alls 66,7 milljarða
króna.
A N N Á L L 2 0 0 5
ÍRLAND NUMIÐ Bankastjórar Landsbankans halda áfram kaupum á verðbréfafyrirtækjun. Nú var það Merrion Capital
sem varð fyrir valinu.
MOSAIC FASHION Breskt tískufyrirtæki sækir um skráningu í Kauphöll Íslands. Tískusýning haldin á skauta-
svellinu í Laugardal af því tilefni.
NÝR Í SEÐLABANKANUM Davíð Oddsson er skipaður formaður bankastjórnar og seðlabankastjóri til sjö
ára.
MAÐUR SAMKEPPNINNAR Gylfi
Magnússon, prófessor í Háskóla
Íslands, er skipaður formaður stjórnar
Samkeppniseftirlitsins.
LYFJAFORSTJÓRAR Róbert Wessman, forstjóri Actavis, og Divya Patel, forstjóri Amide, voru fulltrúar sinna fyrirtækja í
samningaviðræðunum. Fór svo að Actavis keypti bandaríska samheitalyfjafyrirtækið Amide.
28. DESEMBER 2005 MIÐVIKUDAGUR