Fréttablaðið - 28.12.2005, Síða 48
MARKAÐURINN 28. DESEMBER 2005 MIÐVIKUDAGUR
Gamlársdagur 2005, Hellisheiði
Fyrstu áramótin í nýja bústaðnum.
Isuzu D-Max, Crew Cab (4 dyra), sjálfskiptur, 3.0 l. dísil.
Fáir bílar hafa sannað sig eins vel við íslenskar aðstæð-
ur og Isuzu. Þessi sterki og þrautseigi bíll er nú kominn
í nýjan og glæsilegan búning. Hann vekur athygli hvert
sem hann fer en virðist alltaf passa inn í umhverfi sitt,
sama hversu gróft það er.
D-Max var valinn Pick-up ársins 2005 af “4x4 Magazine”
og hlaut gullverðlaun tímaritsins “What Van” 2004.
Komdu til okkar og kynnstu nýjum Isuzu D-MAX.
Staðalbúnaður í D-MAX: Vökva- og veltistýri,
tveir öryggisloftpúðar, rafdrifnar rúður, útvarp og
geislaspilari, snúningshraðamælir, samlæstar hurðir
með fjarstýringu, stokkur á milli framsæta, höfuðpúðar
í aftursæti, fimm þriggja punkta bílbelti, loftkæling,
ABS hemlakerfi, álfelgur, brettakantar, kastarar í
framstuðara, leðurklætt stýrishjól, rafstýrðir útispeglar.
��������������
�����������
A N N Á L L 2 0 0 5
Órói í kringum félög, sem
Ólafur Ólafsson í Samskipum
stjórnar, Keri og Festingu,
minnkar. Sátt næst í Festingu og
Straumur selur hluta sinn í Keri.
Vátryggingafélag Íslands
kaupir 54 prósenta hlut í breska
tryggingafélaginu IGI Group.
VÍS hefur einnig tryggt sér for-
kaupsrétt á 21 prósenti til við-
bótar.
Niðurstaða Fjármála-
eftirlitsins er að aðhafast ekkert í
máli Serafin Shipping, sem eign-
aðist yfir fimm prósenta hluta í
Icelandic Group í skiptum fyrir
hlut sinn í Sjóvík.
Baugur er langt kominn með
kaup á skartgripakeðjunni MW
Group. Kaupverðið er rúmir tveir
milljarðar króna.
Landsbankinn hækkar vexti af
íbúðalánum sínum úr 4,15 pró-
sentum í 4,45 prósent.
Styrmir Þór Bragason fær
kaupréttarsamninga gerða upp
við sig í Atorku og gengur út með
160 milljónir króna.
Baugur og Hannes Smárason
eru eru stærstu hluthafar í FL
Group eftir hlutafjárútboð og
eiga um helming hlutafjár. Alls
seldi félagið hlutafé fyrir 44
milljarða króna.
Landsbankinn eykur umsvif
sín með kaup á írska verðbréfa-
fyrirtækinu Merrion Capital.
Bankinn er með starfsemi í tólf
löndum.
Við erum bara rétt að
byrja.
Sigurjón Þ. Árnason, banka-
stjóri Landsbankans, 17. nóv-
ember.
Ólafur Jóhann Ólafsson og
Straumur - Burðarás kaupa um
34 prósent hlut í útgáfufélagi
Morgunblaðsins. Ólafur Jóhann
sest ekki í stjórn Moggans.
Íslandsbanki kaupir norska
fjármálafyrirtækið Norse
Securities. Daginn áður hækk-
ar Íbúðalánasjóður vexti sína og
tekur upp valkvæða vexti; með
eða án uppgreiðslugjalds.
DESEMBER
Samkvæmt stjórnsýsluút-
tekt Ríkisendurskoðunar fór
Íbúðalánasjóður ekki á svig við
lögin þegar hann keypti lána-
samninga fjármálastofnana.
Samt hefði mátt vanda upplýs-
ingagjöf.
NÝIR VENDIR Ný stjórn kjörin í FL Group eftir að hluthafahópurinn breyttist og margir
sögðu sig úr stjórninni. Nýir fjárfestar koma inn.
Í FJÖLMIÐLA Ólafur Jóhann Ólafsson bauð í Símann en endaði á að kaupa hlut í
Morgunblaðinu ásamt Straumi.