Fréttablaðið - 28.12.2005, Qupperneq 51

Fréttablaðið - 28.12.2005, Qupperneq 51
H A U S MARKAÐURINN 21MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 Árið 2005 var afar viðburðaríkt og að sama skapi árangursríkt fyrir Milestone ehf. Félagið hefur verið í lykilhlut- verki í umbreytingum á íslenskum fjár- málamarkaði. Í lok ársins fer félagið með virkan hlut í Íslandsbanka og í Sjóvá og hefur sérstöðu að þessu leyti. Jafnframt hefur félagið og tengd félög staðið að og tekið þátt í fjárfestingum í Bretlandi, Danmörku, Króatíu, Rúmeníu og Þýskalandi. ÁRÆÐNI ÍSLENDINGA VAKIÐ ATHYGLI Almennt hefur framgangur íslenskra fyrirtækja bæði innanlands og kannski ekki síður erlendis vakið aðdáun og eft- irtekt. Athafnasemi Íslendinga virðast fá takmörk sett. Í stórum dráttum virð- ist sem flest þeirra verkefna sem ráðist hefur verið í hafi gengið vel hvort sem um hefur verið að ræða fjárfestingar í smásölu, útrás í matvælaiðnaði, fjárfest- ingar í lyfjaiðnaði eða uppbyggingu fjar- skiptaþjónustu að ónefndum flugrekstri. Í alþjóðlegu samhengi hefur áræðni Íslendinga í viðskiptum vakið athygli og ljóst er að það er svolítið undir okkur sjálfum komið hvers konar orðstír við viljum byggja upp á erlendum vett- vangi. Næstu ár mun ímynd okkar mót- ast og mikilvægt að við stöndum undir þeim væntingum sem við höfum byggt upp og til okkar eru gerðar. EIGIN STARFSREGLUR Ör þróun á markaði hefur jafnframt skapað aukna hvatningu á eftirlitsaðila sem eiga að leggja línurnar í samskipt- um hins opinbera, einstaklinga og fyrir- tækja. Spennandi verður að sjá hvernig þessum aðilum tekst til að móta sér stöðu en jafnframt að skapa fyrirtækj- um og einstaklingum nægilegt svigrúm og tækifæri til athafna. Hér er hlut- verk fyrirtækjanna sjálfra einnig mikið en við höfum tækifæri til að ganga á undan í ýmsum efnum, setja okkur eigin leiðbeiningar og starfsreglur. Samkeppnisstaða Íslands ræðst mikið af því hvernig til tekst í þessum efnum. SKATTAMÁL OFARLEGA Á BLAÐI Að sama skapi er mikilvægt að áfram verði unnið að því að skýra starfsum- hverfi fyrirtækja á Íslandi. Það verður að vera eftirsóknarvert að stofna og reka fyrirtæki á Íslandi í alþjóðlegu umhverfi. Skattamál eru þar ofarlega á blaði en einnig er lykilatriði að hér sé á v a l l t hægt að laða til sín hæfasta fólk sem völ er á. Við erum einfaldlega í samkeppni við miklu stærri þjóðfélög og verðum að standa okkur. Þjóðfélagsumgjörðin þarf þar af leiðandi að vera aðlaðandi bæði fyrir fyrirtækin og fjöl- skyldurnar í landinu. Það er þó rétt að taka fram að hvað þetta varðar hefur okkur tekist afar vel til eins og dæmin sanna. AÐKOMA AÐ SJÓVÁ EITT ÞAÐ VIÐAMESTA Bjartsýni, kraftur og gleði hafa einkennt Íslendinga á árinu. Persónulega hef ég kynnst fjölmörgu nýju og góðu fólki. Aðkoma okkar að Sjóvá, öfl- ugasta og traustasta trygg- ingafélagi landsins, var eitt af viðameiri verkefnum ársins. Þar hefur tekist að leiða saman kraftmikinn hóp nýrra einstaklinga við traust og reynslumikið starfsfólk félags- ins. Í Sjóvá býr mikill metnaður og kraft- ur sem við bindum miklar vonir við. GETGÁTUR UM STÖÐU HLUTHAFA Hluthafamál í Íslandsbanka hafa verið í deiglunni á árinu eins og oft áður. Töluverð orka virðist hafa farið í getgátur fram og til baka um stöðu einstakra hluthafa eða hræringar í hópnum. Á sama tíma hefur bankanum gengið afbragðsvel bæði hér á landi og með markvissri útrás. Góð samstaða hefur verið í stjórn bankans um helstu áherslur og með breytingum sem orðið hafa á hluthafahópnum er útlit fyrir enn markvissari stuðning að þessu leyti. Bjartsýni og kraftur einkennandi Baugi Group og félögum sem það er hluthafi í, hefur flestum gengið vel í viðskiptum á því ári sem er að líða, bæði hér heima og erlendis. Innanlands vil ég nefna tvö mál sérstaklega. Annars vegar að í fyrsta sinn eru fjölmiðlar reknir innan skráðs almenn- ingshlutafélags með fullkomnu gegnsæi um rekstur og eignarhald. Allir geta nú kynnt sér hvernig fjölmiðlar á vegum 365 ganga og er það eina fyrirtækið á því sviði sem svo er ástatt um. Reksturinn hefur gengið vel og hagnaður góður. Hins vegar eru gríðarlega góðar undirtektir hlutabréfamarkaðarins við útboði á nýju hlutafé FL-group hf. nú í haust. Greinilegt er að markaðurinn hefur trú á framtíðarsýn forystu félagsins og vill taka þátt í að láta hana verða að veruleika. ÞEKKT SEM ÖFLUGUR FJÁRFESTIR Í Danmörku hefur fjárfestingum Baugs fjölg- að á árinu bæði í smásöluverslun og fasteign- um. Er svo komið að Baugur er orðið þekkt þar í landi sem öflugur fjárfestir á þeim svið- um og oft nefnt sem mögulegur yfirtökuaðili þegar þannig fyrirtæki eru til sölu. Viðsnúningur Magasin du Nord og Merlin er á áætlun og rekstur Illum og Keops gengur vel. Góður arður hefur þegar orðið af fjárfestingum félagsins í Danmörku. Félagar okkar í Bretlandi hafa einnig verið í sókn þó að illvígar aðgerðir íslenskra yfirvalda hafi bitnað meira á þeim en okkur sem störfum hér á landi og í Danmörku. Öll höfum við þó þurft að hafa mikið fyrir að útskýra mál- stað fyrirtækisins með tilheyrandi óhagræði, kostnaði og glötuðum tækifærum. STÆKKANDI EFTIRLITSIÐNAÐUR Á nýju ári geri ég ráð fyrir áframhaldandi sókn okkar. Nóg er af tækifærunum og ég er sannfærður um að við munum áfram hafa gæfu til að notfæra okkur þau. Það eru helst aðgerðir stjórnvalda sem maður óttast að geti sett strik í áframhaldandi sókn. Fyrir utan það sem fyrr er nefnt þá hafa stjórnvöld viljað setja atvinnulífinu strangari skorður en áður hefur verið en hygla ríkisrekstri. Yfirvofandi fjölmiðlalög og sífellt stækkandi eftirlitsiðnaður eru dæmi um það. Ég vona að þar verði breyting á. Glötuð tækifæri SKARPHÉÐINN BERG FRAMKVÆMDASTJÓRI BAUGS GROUP Skarphéðinn segir að Baugur sé orðið þekkt í Danmörku sem öflugur fjárfestir í smásölu og fasteignum. Árið 2005 var einstaklega hag- fellt bankanum og hluthöfum hans. Árið einkenndist enn- fremur af frekari uppbyggingu Straums-Burðaráss sem sér- hæfðs fjárfestingabanka en nú um áramótin eru tvö ár frá því að Straumur-Burðarás fékk fjár- festingabankaleyfi. Flestir þeir markaðir sem bankinn byggir afkomu sína á hækkuðu umtals- vert og þá sérstaklega á Íslandi. SAMRUNI STRAUMS OG BURÐARÁSS Það sem markverðasta á árinu hjá bankanum er án efa sam- runi Straums og Burðaráss. Við samrunann varð til enn öflugri og samkeppnishæfari fjárfest- ingabanki með sterka fótfestu bæði á Íslandi og erlendis. Fjárhagslegur styrkur bankans eykur tækifæri til sóknar en eigið fé bankans og heildareignir ríflega tvöfölduðust við samrun- ann. Innlendur fjármagnsmark- aður efldist til mikilla muna á árinu sem hefur leitt af sér enn skilvirkari verðmyndun á mark- aði. Velta í Kauphöllinni hefur aldrei verið eins mikil og árinu. NÝTA STYRK TIL FREKARI VAXTAR Ég er bjartsýnn á komandi ár fyrir bankann en þróun alþjóð- legra fjármálamarkaða mun ráða umtalsverðu um þróunina á næsta ári. Markmið okkar verður að auka þátttöku í verk- efnum erlendis, styðja við sókn viðskiptavina bankans erlend- is og nýta þann styrk sem býr í bankanum til frekari vaxtar. Jafnframt hefur bankinn til- kynnt um áform um opnun skrif- stofu í Kaupmannahöfn sem mun styrkja enn frekar stoðir bank- ans en það er afleiðing mikilla umsvifa bankans þar á síðustu tveimur árum. SKAPA TRÚVERÐUGAN SESS Almennt tel ég horfurnar góðar fyrir fjármálafyrirtækin en það byggist á því að vel takist til með aukna starfsemi erlendis og að skapa fyrirtækjunum trúverð- ugan sess. Undirstöður innlendu fjármálastofnananna eru sterk- ar, bankarnir orðnir alþjóðlegri og tekjumyndun þeirra hefur breikkað. Það er mikill kraftur í efna- hagslífinu um þessar mundir en jafnframt nokkur hættumerki. Því er mjög mikilvægt að efna- hagstjórnun verði trúverðug og aðhaldsöm þar sem viðskiptahall- inn er mikill, eignaverðshækkan- ir hafa verið miklar og staða krónunnar er mjög sterk. Undirstöður fjár- málafyrirtækja sterkar ÞÓRÐUR MÁR JÓHANNESSON FORSTJÓRI STRAUMS Þórður telur horfurnar góðar fyrir fjármálafyrirtækin en það byggist á því að vel takist til með aukna starfsemi erlendis. Skarphéðinn Berg Steinarsson Framkvæmdastjóri Baugs Group Það eru helst aðgerðir stjórnvalda sem maður óttast að geti sett strik í áframhaldandi sókn Þórður Már Jóhannesson forstjóri Straums Innlendur fjármagnsmarkaður efldist til mikilla muna á árinu sem hefur leitt af sér enn skilvirkari verðmyndun á markaði Karl Wernersson stjórnarformaður Milestone ehf. Það verður að vera eft- irsóknarvert að stofna og reka fyrirtæki á Íslandi í alþjóðlegu umhverfi KARL WERNERSON STJÓRN- ARFORMAÐUR MILESTONE EHF Karl segir að það þurfi að vera eftirsóknarvert að stofna fyrirtæki á Íslandi, að Íslendingar séu einfaldlega í samkeppni við stærri þjóðfélög og þurfi að standa sig
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.