Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 52
MARKAÐURINN Árið 2005 hefur verið viðburða- ríkt og ánægjulegt. Flest þeirra fyrirtækja sem ég hef afskipti af hafa gengið í gegnum miklar breytingar á árinu og mun ég rekja hér í stuttu máli það helsta. Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna sameinaðist Sjóvík á fyrri hluta ársins og nafni félagsins var í kjölfarið breytt í Icelandic Group hf. Með þeirri sameiningu var undirstaða félagsins styrkt verulega. Íslensku verksmiðj- urnar í Bandaríkjunum voru sam- einaðar og félagið er nú mjög umfangsmikið í vinnslu og við- skiptum með fisk í Asíu. Nýgerð kaup á Pickenpack, Hussmann og Hahn í Þýskalandi munu síðan styrkja verulega stöðu félagsins í framleiðslu í Evrópu. Icelandic Group er einstakt fyrirtæki á veraldarvísu. Ekkert sambæri- legt félag er til og býður stærðin upp á verulegt tækifæri til vaxt- ar og bættrar afkomu. Enn var sú breyting á félaginu að meiri- hluti hlutafjár skipti um hendur og verða þrír aðilar kjölfesta í félaginu en það eru ISP hf. í eigu Tryggingamiðstöðvarinnar og Sunds, Eimskip og að end- ingu Samherji. Allt eru þetta eig- endur sem hafa þekkingu, áhuga og reynslu af rekstri tengdum sjávarútvegi. Er það félaginu dýrmætt á leið sinni til frekari vaxtar. TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN Forstjóraskipti urðu í Tryggingamiðstöðinni er Gunnar Felixson lét af störfum eftir ára- tuga farsælt starf í þágu félag- ins og við tók Óskar Magnússon. Það er ekki ofsögum sagt að fer- ill Gunnars hjá TM sé einstak- ur. Hann naut virðingar í starfi sínu og samband hans við við- skiptavini félagsins var einstakt. Hafði hann byggt félagið upp af öryggi og mikilli skynsemi í gegnum árin. Hafði Gunnar djúpan skilning á eðli trygg- ingareksturs. Óskar Magnússon hefur þegar sett svipmót sitt á félagið og hefur það gengið í gegnum töluverða endurnýj- un og algjöra endurskipulagn- ingu. Við hefur tekið góð blanda stjórnenda sem ýmist eru nýir í starfi hjá félaginu eða hafa unnið sig upp í starfi þar. Eru mikl- ar vonir við það fólk bundnar. Straumur fjárfestingabanki seldi þriðjungs hlut sinn í félaginu á árinu og var stærsti kaupandinn Sund hf. Er það sérstakt fagnað- refni fyrir Tryggingamiðstöðina að fá þá fjölskyldu til samstarf við stjórnun félagsins. Segja má að þrjár fjölskyldur leiði þetta merka tryggingafélag en það eru Guðbjörg Matthíasdóttir og fjöl- skylda, Gunnþórunn Jónsdóttir og fjölskylda og Geir Zöega og fjölskylda. Eitt eiga þessir aðilar sammerkt og það er stefnu- og trúfesta við þau verkefni sem þau eiga aðild að. LÝSI FLYTUR Þáttaskil urðu í rekstri Lýsis hf. á árinu er tekin var í notkun ný verksmiðja félagsins í Örfirisey. Leysti sú verksmiðja af hólmi 60 ára gamla og úr sér gengna verk- smiðju við Grandaveg. Hin nýja verksmiðja er án efa sú glæsi- legasta sem til er. Hefur verið einstaklega ánægjulegt að fá að vera þátttakandi í endurreisn þessa merka félags og fylgj- ast með atorkusemi Katrínar Pétursdóttur og hennar öfluga samstarfsfólks. Félagið er orðið eitt af leiðandi fyrirtækjum í veröldinni í vinnslu á lýsisafurð- um og hefur yfir að ráða þekk- ingu sem er einstök. Vöxtur í neyslu lýsisafurða er gríðarlegur og enginn véfengir hollustu vör- unnar. Er því óhætt að segja að tímasetning á uppsetningu verk- smiðjunnar hafi verið afar góð. LOÐNUSTOFNINN ÁHYGGJUEFNI Horfur á árinu 2006 eru almennt í þessum rekstri þokkalegar. Helstu áhyggjuefnin eru þó staða loðnustofnsins og styrkur íslensku krónunnar. Við höfum nú séð loðnustofninn í góðu horfi í rúman áratug. Mikil óvissa er um stofnstærðina og menn spyrja eðlilega hvort lægð sé í nánd. Væri það mikið áfall ekki síst vegna þess að verð á loðnu- afurðum er í sögulegu hámarki um þessar mundir. Merkilegt er hvernig íslensk sjávarútvegs- fyrirtæki hafa haldið sjó þrátt fyrir styrk krónunnar. Fer þó án efa að reyna á þolrifin hjá mörgum þeirra verði framhald á. Hátt verð á erlendum mörkuð- um hefur þó heldur hjálpað til. Almennt séð hlýtur þó að gæta almennrar bjartsýni um þessi áramót en mjög verður að treysta á að hið opinbera bregðist hvergi í því að viðhalda hér stöðugleika og frelsi í viðskiptum sem er grunnforsenda gróskumikils atvinnulífs. 28. DESEMBER 2005 MIÐVIKUDAGUR22 ������������� ����������������������������� ���������������������� ������������������������������������������ ��������������������������� Einstakt fyrirtæki á veraldarvísu GUNNLAUGUR SÆVAR GUNNLAUGSSON Gunnlaugur segir um Gunnar Felixson, fyrrverandi forstjóra, að ferill hans hjá TM sé einstakur. Það sem stendur upp úr hjá okkur á árinu er án efa yfir- taka Bakkavör Group á breska matvælafyrirtækinu Geest og svo kaup Exista, fjárfestingar- félagi sem er í meirihluta eigu okkar bræðra, á kjölfestuhlut í Símanum. Bæði fyrirtækin hafa trausta innviði, sterkt fjárstreymi og mikla vaxtarmöguleika. Þau endurspegla því vel þær áherslur sem við höfum ávallt haft að leið- arljósi í fjárfesting- um okkar. Þá hefur áframhaldandi góður rekstur á KB banka verið okkur ánægju- efni. VELTA SEXFALDAST Eftir yfirtökuna á Geest erum við orðnir stærsti framleiðandi á ferskum tilbúnum matvælum í Bretlandi með um 28% markaðs- hlutdeild. Yfirtakan á Geest hefur í för með sér meira en sex- földun í veltu og eftir kaupin rekum við 40 verksmiðjur í fimm löndum með um 14.000 starfs- mönnum. Við höfum komið auga á fjölmörg tækifæri þar sem ná má fram samlegðaráhrifum og nýta stærðarhagkvæmni. Búast má við frekari samþjöppun á breska matvælamarkaðnum, enda er tæplega 50% markaðar- ins enn í höndum margra smárra framleiðenda. Við ætlum hér eftir sem hingað til að leiða þá þróun. Á næsta ári fögnum við 20 ára afmæli Bakkavarar og ég er þess fullviss að við byggjum á góðum grunni til frekari sóknar. TÆKIFÆRI Í FJARSKIPTATÆKNI Á þeim tíma sem við höfum komið að rekstri Símans hef ég sannfærst enn betur um þau miklu tækifæri sem felast í hröðum framförum í fjarskiptatækni og sífellt auk- inni notkun á möguleikum þeirrar tækni, t.d. á sviði afþreyingar. Við kaupin á Símanum var okkur gert að gefa öðrum hluthöfum kost á að selja hlut sinn í fyr- irtækinu. Það var sér- lega ánægjulegt að sjá hve fáir nýttu sér þann rétt en ákváðu í þess stað að sitja á vagnin- um með nýjum eigend- um. Á næsta ári fagnar Síminn 100 ára afmæli og það er mér til efs að margir öldungar beri aldurinn jafn vel og Síminn gerir. BÆTT REKSTRARUM- HVERFI Af öðrum málum vil ég nefna frum- kvæði stjórnvalda, Viðskiptaráðs og fleiri aðila við að kanna leiðir til að bæta rekstrarumhverfi hér á landi. Í því sambandi má t.d. sér- staklega geta nefndar á vegum forsætisráðherra undir forystu Sigurðar Einarssonar, stjórnar- formanns Kaupþing banka, sem fjalla á um forsendur alþjóðlegr- ar fjármálastarfsemi á Íslandi og samkeppnishæfni landsins á því sviði. Ég er viss um að ef við vinnum skipulega að þessum málum og orðum fylgja gjörðir þá mun okkur farnast vel. Yfirtaka Bakkavör Group á Geest stendur upp úr LÝÐUR GUÐMUNDSSON FORSTJÓRI BAKKAVARAR Lýður segir að eftir yfirtökuna á Geest sé Bakkavör stærsti framleiðandi í ferskum tilbúnum matvælum í Bretlandi. Þáttaskil urðu í rekstri Lýsis hf. á árinu er tekin var í notkun ný verksmiðja félagsins í Örfirisey. Leysti sú verksmiðja af hólmi 60 ára gamla og úr sér gengna verksmiðju við Grandaveg Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson stjórnarformaður Icelandic Group Lýður Guðmundsson forstjóri Bakkavarar Eftir kaupin rekum við 40 verksmiðjur í fimm löndum með um 14.000 starfsmönnum V I Ð Á R A M Ó T
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.