Fréttablaðið - 28.12.2005, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 28.12.2005, Qupperneq 58
66,7 milljarðar króna. Kaup Exista og annarra fjárfesta á öllum hlut ríkis-ins í Símanum. Hlutabréf Landsbankans, Bakkavarar Group og FL Group hafa tvöfaldast í virði á árinu. styrking krónunnar. Krónan hefur haldist sterk á árinu og haft mikil áhrif á starfsemi útflutningsfélaga. SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is B A N K A H Ó L F I Ð Dómnefnd Markaðarins var ekki jafn skýr í niðurstöðu sinni þegar hún var beðin að nefna verstu viðskipti ársins og þau bestu. Atkvæði dreifðust nokkuð, en þau viðskipti sem fengu flest atkvæði voru kaup Árvakurs á Ári og degi sem gefur út Blaðið. Nú kann það að skýra hluta af niðurstöðunni að kaupin voru gerð á meðan dómnefnd var að störfum og viðskiptin því fersk í huga manna. Hins vegar virðist engum blöðum um það að fletta að sérfræðingarnir telja að ef þessi viðskipti eigi sér framtíð verði að snúa við blaðinu. Hin hlið teningsins Kaup Pálma Haraldssonar á Sterling og salan til FL Group voru ótvírætt viðskipti ársins að mati dómnefndar. Hins vegar var dómnendin ekki jafn sann- færð um að sá sem sat hinum megin borðsins hefði gert jafn góð kaup. Næstflestar tilnefn- ingar í flokknum verstu við- skiptin fengu kaup FL Group á Sterling. Ljóst er að hvernig sem fer, þá mun Pálmi hagnast vel á við- skiptunum og því betur sem betur gengur á þessu ári. Pálmi telur sjálfur að FL Group hafi gert afar góð kaup, en eins og svo oft áður, þá er það tíminn einn sem sker úr um það hvað eru góð kaup og hvað slæm. Fleiri í hópi verstu Þeir sem seldu hlutabréf á árinu sem er að líða fengu atkvæði dómnefndar yfir verstu við- skipti ársins. Icelandic Group fékk atkvæði fyrir kaup sín á Pickenpack, svo og Atorka fyrir kaup á Austurbakka. Kaupin á Merlin fengu einnig atkvæði í hópi verstu viðskiptanna og stjórnendur Íslandsbanka fyrir sölu á bréfum í bankan- um. Straumur fékk eitt prik í flokki verstu viðskiptanna fyrir að hafa tekið Burðarás á yfir- verði. Þá fengu kaup Milestone á Sjóvá athkvæði í hópi verstu viðskiptanna. Allt um það. Þeir sem fengu atkvæði í þessum flokki hafa nú framtíðina til að sanna hið gagnstæða. Það er líka huggun harmi gegn að sagan kennir að margt það sem augnablikið kann illa að meta reynist vel þegar tíminn hefur fengið að dæma um árangurinn. Blaðið efst á blaði 100% 6,5%
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.