Fréttablaðið - 28.12.2005, Side 64
28. december 2005 WEDNESDAY12
18%
38%
A
Í
S
/
n
o
t
í
F
Yfir 111% fleiri lesendur að
atvinnublaði Fréttablaðsins!
Um 150.000 lesendur
Samkvæmt nýjustu fjölmiðlakönnun Gallup (okt. 2005) nærðu til rúmlega
tvöfalt fleiri Íslendinga á aldrinum 20 – 40 ára með því að auglýsa í
atvinnublaði Fréttablaðsins frekar en atvinnublaði Morgunblaðsins.
Könnunin sýnir að 38% af þeim lesa Allt – atvinnu, sem fylgir frítt með
Fréttablaðinu alla sunnudaga. Aðeins 18% lesa hins vegar atvinnublað
Morgunblaðsins og því eru 111% fleiri sem sjá auglýsinguna í Fréttablaðinu.
Þegar horft er á allar staðreyndir málsins ætti að vera einfalt að sjá hvar
borgar sig að auglýsa.
Hvar birtist auglýsingin þín?
Vantar þig starfskraft?
– mest lesna atvinnublaðið
1. Big (1988). Var fyrsta mynd
sögunnar sem leikstýrt var af konu
og halaði inn meira en 100 milljónir
dollara í miðasölu. Steven Spielberg
átti upprunalega að leikstýra mynd-
inni. Myndin fékk tvær óskarstil-
nefningar.
2. Awakenings (1990). Byggð á
sannri sögu eftir Oliver Sacks.
Myndin er sannsöguleg og gerist
árið 1969. Fékk óskarstilnefningu
sem besta myndin.
3. Cinderella Man (2005). Leikstýrði
myndinni ekki en framleiddi. Um
tíma kom þó til greina að hún
leikstýrði myndinni. Russell Crowe
losaði sig við rúm tuttugu kíló fyrir
myndina. Þetta er önnur myndin
sem Marshall framleiðir á þessu ári
en hin er Bewitched.
4. Jumpin Jack Flash (1986).
Jumpin Jack Flash heitir lag eftir The
Rolling Stones en í myndinni heyrist
önnur útgáfa af laginu með Arethu
Franklin. Myndin hét samt uppruna-
lega Knock, Knock. Fyrsta myndin
sem Marshall leikstýrði.
5. Riding in Cars with Boys (2001).
Síðasta mynd sem Marshall
leikstýrði en hún hefur nú aðallega
snúið sér að framleiðslu kvikmynda.
Byggð á samnefndri skáldsögu eftir
Morgan Ward. Adam Garcia leikur
son Drew Barrymore í myndinni
þótt hann sé í raun og veru aðeins
tveimur árum yngri en hún.
TOPP 5:
PENNY
MARSHALL
PENNY MARSHALL LEIKSTJÓRI
Uppáhaldsstaður Arnars Jenssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns ríkislögreglustjóra,
er skíðasvæði í Austurríki.
„Ég held ég verði að segja Hintertux-jökullinn í Austurríki,“ segir Arnar.
Fallegt og friðsælt er á jöklinum, og auk þess segist Arnar eiga afar góðar
minningar þaðan.
„Maður er hátt uppi og sér víða. Þetta er skíðasvæði sem er opið bæði á
sumrin og á veturna, og ég hef farið þangað á skíði með fjölskyldunni nokkrum
sinnum. Þá hafa krakkarnir verið að læra á skíðin og við hjónin að skrölta í
kringum þá,“ segir Arnar, sem finnst gaman á svigskíðum og börnin hans æfa og
keppa í þeirri íþrótt.
UPPÁHALDSSTAÐURINN:
Hintertux-jökullinn í Austurríki
ARNAR JENSSON AÐSTOÐARYFIRLÖGREGLUÞJÓNN
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA
VISSIR ÞÚ...
...að aðeins einn þjóðfáni inni-
heldur einungis einn lit? Það er
þjóðfáni Líbíu.
...að fáni Líbíu er grænn?
...að grænn var litur sigurs í Grikk-
landi til forna?
...að blár litur einkennisbúninga
á rætur að rekja til Rómarveldis?
Fólk í opinberum störfum í Róm
klæddist bláum fötum.
...að í Íran er blár litur sorgar?
...að faróar Egyptalands klæddust
bláu til varnar gegn illum öflum?
...að fjólublár er litur ekkju sem
syrgir eiginmann í Taílandi?
...að fyrir það að særast eða deyja
fá bandarískir hermenn „Purpuru-
hjartað.“
...að samkvæmt litakenningunni
eykur fjólublár ímyndunarafl barna?
...að hvítt er litur sorgar í Kína og
Japan?
...að egypskir faróar báru hvíta
kórónu?
...að svartur litur sorgarinnar er
kominn frá Egyptum og Rómverj-
um?
...að Egyptar trúðu því að svartir
kettir væru guðdómlegar verur?
...að hvítt flagg er alþjóðlegt merki
friðar og vopnahlés?
...að Persar trúðu því að allir guðir
klæddust hvítu?
...að kristnir englar eru oftast sýndir
í hvítum klæðum?