Fréttablaðið - 28.12.2005, Page 66
28. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR26
Stefán Hermannsson, fyrrverandi
borgarverkfræðingur, er sjötug-
ur í dag. Stefán ákvað að skreppa úr
kuldanum og myrkrinu á Íslandi og
fljúga til Kanaríeyja með fjölskylduna
sína í gær. „Ég flýg til Kanaríeyja með
konuna, synina okkar, þeirra maka og
barnabörnin. Við ætlum að halda smá
fjölskylduveislu þar,“ sagði Stefán
þegar Fréttablaðið náði tali af honum.
Stefán segir að eftirminnilegustu
afmælin hafi verið þegar hann var
ungur strákur á Akureyri. Stefán seg-
ist ekki vera mikið afmælisbarn en
þegar hann er spurður um eftirminni-
lega afmælisgjöf kemur strax ein upp
í hugann. „Þegar ég varð fimmtugur
þá fékk ég fallegt málverk sem mér
þykir mjög vænt um. Málverkið er
eftir Ragnheiði Riem og var gjöf frá
tengdafólki mínu. Ég hélt einmitt smá
veislu þegar ég varð fimmtugur, en
annars hef ég ekki haldið sérstaklega
upp á afmælið svona á efri árum.“
Þeir sem eiga afmæli á milli jóla
og nýárs kvarta stundum yfir því að
afmælisdagurinn gleymist í hátíðar-
fögnuðinum. Stefán segir að það hafi
aldrei truflað hann að eiga afmæli á
þessum tíma. „Að eiga afmæli á þess-
um tíma gerir það að verkum að það er
jafnvel enn minna tilefni til að halda
upp á afmælisdaginn en ef hann væri
á öðrum árstíma. En ég hef aldrei
haft áhyggjur af því að afmælið mitt
gleymdist. Þetta var ágætt á mínum
skólaárum, en þá spiluðum við félag-
arnir brids frá því fyrir jól og fram
yfir áramót og afmæli mitt féll þar
inn í.“
Þrátt fyrir að vera kominn á átt-
ræðisaldur gegnir Stefán nú stöðu
framkvæmdastjóra hjá fyrirtækinu
Austurhöfn-TR sem er í eigu ríkis og
borgar. Fyrirtækið var stofnað til að
vinna að uppbyggingu tónlistarhúss
og ráðstefnumiðstöðvar á austur-
bakka Reykjavíkurhafnar. „Verkefn-
inu miðar vel, við vinnum núna hörð-
um höndum að því að klára samninga
við fyrirtækið sem sér um sérfræði-
ráðgjöf við byggingu tónlistarhúss-
ins,“ segir hann. Spurður um viðbrögð
almennings við byggingu hússins
segir Stefán að hann haldi að fólk muni
ekki sjá á eftir peningunum sem fara í
byggingu hússins. „Eins og eðlilegt er
hefur almenningur mestar áhyggjur
af því að peningunum sé ekki eytt að
óþörfu, og að skattinum sem það borg-
ar sé vel varið.“ Hann bendir þó á að
fólk sem sér á eftir peningunum geti
huggað sig við það að ekki verði borg-
að meira fyrir byggingu hússins held-
ur en ákveðið var í upphafi. „Það er
óþarfi að sjá á eftir peningunum sem
fara í tónlistarhúsið því það er mjög
mikilvægt fyrir þjóðina að búa vel að
sínu öfluga tónlistarlífi,“ segir Stefán
að lokum.
STEFÁN HERMANNSSON Ætlar að fagna sjötugsafmælinu með fjölskyldunni á Kanaríeyjum. Hér sést
hann við módelið af tónlistarhúsinu sem mun rísa innan skamms.
STEFÁN HERMANNSSON: Á SJÖTUGSAFMÆLI Í DAG
Fjölskylduveisla á Kanarí
Biskup Íslands bauð fulltrúum nokkurra
hópa sem lögðu sitt af mörkum til hjálpar-
starfs á aðventunni til helgistundar fyrir
jól. Eftir ritningarlestur og söng var boðið
upp á súkkulaði og smákökur. Með þessu
vildi biskup þakka fólki gott starf í aðdrag-
anda jólahátíðarinnar. Meðal þeirra hópa
sem sóttu biskup heim voru aðstandendur
endurútgáfu lagsins Hjálpum þeim, hópur
ungs fólks sem hóf söfnun fyrir brunni í
Afríku með aðstoð netsíðna sinna, Mæðra-
styrksnefnd, starfsfólk SPRON í miðbæn-
um, starfsfólk dóms- og kirkjumálaráðu-
neytisins og starfsfólk Alþjóðahúss.
Helgistund á Biskupsstofu
MÆÐRASTYRKSNEFND Biskup Íslands, framkvæmda-
stjóri Hjálparstarfsins og þrír stjórnarmenn í Mæðra-
styrksnefnd Reykjavíkur.
BRUNNUR Í AFRÍKU Linda Heiðarsdóttir, Andri
Fannar Ottósson, Bjarni Þór Pétursson, Haukur Snær
Hauksson, Hendrik Geir Garcia, Karl Sigurbjörnsson,
Baldur Knútsson, Arna Ólafsdóttir og Jónas Þórisson.
HJÁLPUM ÞEIM Vignir Snær Vigfússon, Einar Bárðarson,
Helga Lilja Gunnarsdóttir, Karl Sigurbjörnsson, Þorvald-
ur Bjarni Þorvaldsson, Þórunn Geirsdóttir og Jónas
Þórisson.
Það var 28. desember árið
1965 sem lítil eyja reis úr
sæ suðvestur af Surtsey.
Varð hún til við neðansjáv-
argos en Surtsey varð fyrst
vart við svipað gos rúmum
tveimur árum áður. Litla
eyjan var nefnd Jólnir þar
sem hún varð til um jól.
Gosið var nokkuð kröftugt í
fyrstu og stóð fram í ágúst
1966. Mest náði eyjan um
sjötíu metra hæð en líftími
hennar var skammur, hún
hvar sjónum manna í októb-
er 1966.
SURTSEY Augu alheimsins beindust
að Surtsey þegar gos hófst fyrst í
nóvember 1963.
MYND/BORGÞÓR MAGNÚSSON
Jólnir rís
úr sæ
MAURICE RAVEL (1875-1937)
LÉST ÞENNAN DAG.
„Tónlist er að mínu mati í fyrsta lagi til-
finningarík og í öðru lagi vitsmunaleg.“
Maurice Ravel var franskt tónskáld sem samdi meðal
annars verkið Bolero.
MERKISATBURÐIR
1694 María II Englandsdrottning
andast af völdum bólusóttar
eftir fimm ára valdatíð.
1871 Skóladrengir í Reykjavík sýna
leikritið Nýársnótt eftir Indriða
Einarsson í fyrsta sinn. Leik-
ritið var síðar sýnt við vígslu
Þjóðleikhússins.
1895 Frönsku frumkvöðlarnir í
kvikmyndum, bræðurnir
Auguste og Louis Lumiére,
sýna almenningi kvikmyndir á
kaffihúsi í París.
1897 Franska leikritið Cyrano de
Bergerac er frumsýnt í París.
1965 Eyja rís úr hafi skammt frá
Surtsey en hvarf í október
1966. Eyjan var nefnd Jólnir
vegna þess að goshrinan
hófst á annan í jólum.
1973 Alexander Solsjenítsin gefur
út fyrstu bók sína af þremur
um lögregluríkið í Sovétríkj-
unum.
Á þessum degi árið 1908 gekk geysistór jarðskjálfti
yfir Suður-Ítalíu með þeim afleiðingum að borgirnar
Messina á Sikiley og Reggio di Calabria á megin-
landinu jöfnuðust nánast við jörðu. Hátt í hundrað
þúsund manns létust í jarðskjálftanum og flóðbylgj-
unni sem kom í kjölfar hans.
Sikiley og Calabria eru þekkt sem la terra ballerina,
eða landið dansandi, vegna jarðskjálftavirkninnar
á svæðinu. Mikið mannfall hefur orðið þar á
undangengnum öldum en aldrei jafn mikið og á
þessum afdrifaríka degi. Ástæðan er líklega sú að
skjálftinn reið yfir snemma morguns meðan fólk lá
enn sofandi heima.
Talið er að stærsti skjálftinn hafi verið 7,5 á
Richter-kvarða. Sá olli tólf metra hárri flóðbylgju sem
gekk yfir þorp og borgir við ströndina. Um níutíu pró-
sent allra bygginga í borgunum Messina og Reggio
di Calabria gereyðilögðust. Ritsímalínur slitnuðu og
járnbrautateinar skemmdust sem töfðu fyrir öllu
hjálparstarfi. Þá dóu einnig margir björgunarmenn í
þeim fjölmörgu smáskjálftum sem á eftir fylgdu.
ÞETTA GERÐIST> 28. DESEMBER 1908
Jarðskjálfti skekur Ítalíu
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Sigurpáll Ísfjörð Aðalsteinsson
áður til heimilis að Kópavogsbraut 1a,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju fimmtudaginn
29. desember kl. 11.00.
Ólafur Sigurpálsson Arndís Þorsteinsdóttir
Aðalsteinn Ísfjörð Unnur Sigfúsdóttir
Gylfi Þ. Sigurpálsson Fríða Björk Pálsdóttir
Árni Arnar Sigurpálsson Aðalheiður Inga Mikaelsdóttir
Hólmfríður Sigurpálsdóttir Styrmir Gíslason
Símon Sigurpálsson Karítas Pétursdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Bróðir okkar,
Þorleifur Hólm Gunnarsson
Sólvangsvegi 3, Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, að kvöldi
aðfangadags. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirku
miðvikudaginn 4. janúar 2006 kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jón Gunnarsson
Guðrún Gunnarsdóttir.
AFMÆLI
Birgitta Spur, safnstjóri Listasafns
Sigurjóns Ólafssonar, er 74 ára.
Stefán Edilstein, skólastjóri
Tónmenntaskóla Reykjavíkur, er
74 ára.
Helga Jónsdóttir leikkona er
sextug.
Stefán Jökulsson, lektor og
útvarpsmaður, er 56 ára.
Albert Jónsson sendiherra er 53
ára.
Edda Andrésdóttir fréttaþulur er
53 ára.
Stefán Jóhann Stefánsson
hagfræðingur er 48 ára.
Ágúst Jakobsson kvikmynda-
gerðarmaður er fertugur.
Ívar Benediktsson blaðamaður
er fertugur.
Björk Jakobsdóttir leikkona er
39 ára.
Þorvaldur Örn Kristmundsson
blaðaljósmyndari er 35 ára.
Einar Örn Jónsson handbolta-
maður er 29 ára.
Edilon Hreinsson knattspyrnu-
maður er 27 ára.
FÆDDUST ÞENNAN
DAG
1856 Woodrow Wilson, 28. forseti
Bandaríkjanna.
1922 Stan Lee, bandarískur
rithöfundur.
1953 Richard Clayderman, fransk-
ur píanisti.
1954 Denzel Washington, banda-
rískur leikari.
1956 Nigel Kennedy, enskur
fiðluleikari.
1981 Sienna Miller, ensk leikkona.
ANDLÁT
Anna Jóna Ragnarsdóttir,
Blikahöfða 5, Mosfellsbæ, lést á
Líknardeild Landspítalans Kópavogi
jóladagsmorgun 25. desember.
Vilborg Sigfúsdóttir, Dvalarheim-
ilinu Uppsölum, Fáskrúðsfirði, lést
25. desember.
JARÐARFARIR
11.00 Óli Björgvinsson,
Sandbakka, Höfn,
verður jarðsunginn frá
Djúpavogskirkju.
13.00 Ingibjörg Stefánsdóttir,
Starengi 28, Reykjavík,
verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju.
13.00 Hulda Þorbjörnsdóttir
verður jarðsungin frá
Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði.
13.00 Þóra Aradóttir,
Grensásvegi 56,
verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
14.00 Bettý Marsellíusdóttir,
Ásbyrgi, Hófsósi
verður jarðsungin frá
Hofsósskirkju.
14.00 Hreinn Elíasson listmálari,
Jörundarholti 108, Akranesi,
verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju.
15.00 Jóhanna (Stella)
Haraldsdóttir, til
heimilis á Lindargötu
57, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni.
Þau mistök urðu við vinnslu
Fréttablaðsins í gær að birtur var
rangur listi yfir jarðarfarir. Beðist
er velvirðingar á því.
LEIÐRÉTTING
timamot@frettabladid.is