Fréttablaðið - 28.12.2005, Qupperneq 74
28. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR34
NR. 10 A HISTORY OF VIOLENCE LEIKSTJÓRI
DAVID CRONENBERG
Ofbeldið var allt að því yfirgengilegt í þess-
ari mynd en var þó notað á mjög óhefð-
bundinn hátt. Eins og tónlist. Cronenberg
sýndi það að hann er algjörlega óháður
þessari Hollywoodframleiðslu og Viggo
Mortensen kom skemmtilega á óvart.
NR. 8 HOTEL RWANDA LEIKSTJÓRI TERRY
GEORGE
Hin skelfilegu þjóðarmorð í Rúanda voru
rifjuð upp á óþægilegan hátt í þessari kvik-
mynd um hótelstjórann Paul Rusesabagina
sem reyndi að vernda ættmenni sín fyrir
hörmungunum í landi sínu. Myndin hreppti
Jökul, fyrstu verðlaun á IiFF-hátíðinni, sem
besta myndin.
NR. 7 MOTORCYCLE DIARIES LEIKSTJÓRI
WALTER SALLES
Ungstirnið Gael Garcia Bernal sló í gegn
þegar hann túlkaði Che Guevara á eftir-
minnilegan hátt en myndin fjallaði um ferð
frelsishetjunnar um Suður-Ameríku. Bæði
leikstjórinn og aðalleikarinn sóttu landið
heim í tilefni frumsýningarinnar, sem dró
ekki úr vinsældum hennar.
NR. 9 DER UNTERGANG LEIKSTJÓRI OLIVER
HIRSCHBIEGEL
Myndin var sú besta á IIFF-hátíðinni. Bruno
Ganz var stórkostlegur í hlutverki Hitlers en
Der Untergang veitt innsýn í síðustu daga
Þriðja ríkisins út frá augum Traudl Jung,
einkaritara einræðisherrans.
NR. 6 HARRY POTTER AND THE GOBLET OF
FIRE LEIKSTJÓRI MIKE NEWELL
Nú þýddi ekkert að vera einhver krakki.
Harry Potter var ekki lengur töfrastrák-
ur heldur var smám saman að skríða á
táningsaldurinn. Unglingarnir voru látnir
bera uppi myndina, sem reyndist vera
frábær skemmtun.
Fokdýrar risastórmyndir settu svip sinn á bíóárið 2005. Stjörustríðshringnum var
lokað með miklum látum og dram-
atík í vor og í kjölfarið reis svo Bat-
man upp með miklum glæsibrag
í Batman Begins. Myndasögur
héldu áfram að nýtast kvikmynda-
gerðarmönnum sem efniviður
og yfirfærsla Roberts Rodriguez
á Sin City-myndasögum Fransk
Millers var tvímælalaust einn af
hápunktum bíóarsins. Stórmynd-
irnar héldu svo áfram að detta inn
fram eftir árinu. Harry Potter tók
gelgjuskeiðið með trompi í The
Goblet of Fire en gamla Narníu-
ævintýri C.S. Lewis veitti honum
verðuga samkeppni. Árinu lauk
svo með geðveikum hamförum
þegar Peter Jackson sleppti risa-
apanum King Kong lausum og tók
af öll tvímæli um að hann væri arf-
taki þeirra Lucasar og Spielbergs
þegar það kemur að því að hrista
fram skotheldar risamyndir.
Þrátt fyrir allar þessar kræsing-
ar virðist bíóárið hafa verið frekar
rýrt í roðinu þegar litið er framhjá
þessum stóru metaðsóknarmynd-
um og ef ekki hefðu verið haldnar
þrjár veglegar kvikmyndahátíðir í
Reykjavík á árinu hefði gagnrýn-
endum Fréttablaðsins reynst það
þrautin þyngri að fylla lista yfir
tíu bestu myndir ársins 2005.
Kvikmyndahátíðir
björguðu stórmyndaári
NR. 5 CHARLIE AND THE CHOCOLATE FACT-
ORY LEIKSTJÓRI TIM BURTON
Hin sérvitri og hæfileikaríki Tim Burton
hafði í nógu að snúast á árinu sem senn
er að líða. Kalli og súkkulaðiverksmiðjan
var frábær þar sem litir og tónlist fengu
að njóta sín. Johnny Depp brást ekki vini
sínum og var mjög eftirminnilegur í hlut-
verki Willy Wonka.
NR. 4 KING KONG LEIKSTJÓRI PETER
JACKSON
Þrátt fyrir þrjá tíma hefur Peter Jackson
tekist að gera það sem fáum er gefið, að
skemmta áhorfendanum frá upphafi til
enda. Frábærar tæknibrellur og hugljúf
saga uppskáru klapp í Háskólabíói. Loðna
skrímslið hafði aldrei litið svona vel út.
NR. 3 STAR WARS: REVENGE OF THE SITH
LEIKSTJÓRI GEORGE LUCAS
Loksins, loksins. Jar Jar Binks fékk ekki að
segja eitt einasta orð og George Lucas
gerði sér grein fyrir því að aðdáendur
Stjörnustríðs voru fullorðnir karlmenn.
Myndin var dökk yfirlitum og var bönnuð
innan tólf. Frábær lokahnykkur.
NR. 2 SIN CITY LEIKSTJÓRAR FRANK MILLER
OG ROBERT RODRIGUEZ
Hasarblaðahöfundurinn Frank Miller hafði
miklar efasemdir um að það tækist að
festa Sin City á filmu. Rodriguez sannaði
svo ekki varð um villst að það var vel
gerlegt. Sin City reyndist vera svalasta
mynd ársins.
NR. 1 BATMAN BEGINS LEIKSTJÓRI
CHRISTOPHER NOLAN
Frábær kvikmynd um upphaf Leðurblöku-
mannsins. Loksins, loksins sögðu aðdáend-
ur hetjunnar en hún hafði lent í klónum
á Hollywood sem vildi breyta henni í
einhverja barnastjörnu. Leðurblökumaður-
inn varð aftur riddari næturinnar.
8. SIDEWAYS
Sérstaklega vel skrifuð, látlaus og skemmti-
leg mynd um vínsmökkunarferðalag
tveggja lúsera. Leikurinn er frábær og
rauðvínslegin heimspeki myndarinnar hittir
beint í mark.
NR. 7 SHI MIAN MAI FU (THE HOUSE OF
FLYING DAGGERS)
Þessi stílfærða kínverska bardagamynd
hverfist um einfalda og sígilda ástarsögu
um elskendur sem fá ekki að njótast.
Myndin, sem er frá árinu 2004 en rataði
ekki í bíó hér fyrr en á IIFF-hátíðinni, er
samt fyrst og fremst veisla fyrir augað þar
sem litadýrð og ótrúlegar æfingar með
tökuvélina dáleiða áhorfendur.
NR. 6 THE DESCENT
Það var sem betur fer mikið um hryllings-
myndir í bíó í ár en þessi stendur upp
úr. Hér er spilað á innilokunarkennd og
myrkfælni með glæisbrag. Þar fyrir utan
er myndin þrælspennandi og mátulega
ógeðsleg.
NR. 4 BATMAN BEGINS
Flestir töldu að Joel Schumacher hefði tek-
ist að drepa Batman með hinni skelfilegu
Batman & Robin.
NR. 3 STAR WARS: REVENGE OF THE SITH
Það eru einungis tilfinningarök sem koma
þessari mynd svona ofarlega á listann
en fyrir gamla Star Wars-áhorfendur sem
Lucas hafði brugðist í tvígang með Episode
I og II er þessi magnaði lokakafli himna-
sending. Drama sem jafnast á við The
Empire Strikes Back.
NR. 2 KING KONG
Alvörurisamynd sem rígheldur þrátt fyrir
mikla lengd. Peter Jackson er orðinn það
sem Spielberg og George Lucas voru fyrir
tuttugu árum. Afgreiðsla hans á Lord of The
Rings og King Kong gerir hann að krýndum
konungi ævintýranna.
NR. 1 SIN CITY
Langbesta og skemmtilegasta mynd ársins
þótt lengra aftur í tímann væri leitað.
Myndasögu hafa aldrei verið gerð jafn góð
skil á hvíta tjaldinu. Teikningar Franks Miller
lifna við í þessu tækniundri og leikararnir
skila kaldhömruðum texta hans fullkom-
lega. Sin City er film noir í sinni tærustu
mynd og ekki spillir fyrir að Mickey Rourke
gerir magnaðasta „comeback“ allra tíma.
Það var heilmikið fjör í kvikmyndahúsum á Íslandi árið 2005. Freyr Gígja Gunnarsson og Þórarinn B. Þór-
arinsson, kvikmyndagagnrýnendur Fréttablaðsins, litu um öxl og völdu tíu bestu myndir ársins.
BATMAN Á ÍSLANDI
Atriðin sem tekin voru upp hér landi í
myndinni voru nánast öll notuð.
FREYR GÍGJA
GUNNARSSON
9. OLDBOY
Þetta meistarastykki frá Suður-Kóreu er
elsta myndin á listanum, framleidd árið
2003, en er svo mögnuð að það er ekki
hægt að sleppa henni. Sagan er átakanleg
og ofbeldið yfirgengilegt þannig að maður
verður ekki samur eftir að hafa tekið virkan
þátt í hremmingum Oh Dae-Su sem Min-
sik Choi leikur með fádæma tilþrifum.
ÞÓRARINN B. ÞÓRARINSSON
NR. 5 DER UNTERGANG
Ógleymanleg stríðsmynd þar sem Bruno
Ganz breyttist í Hitler með undraverðum
hætti.
10. HOTEL RWANDA
Önnur mynd frá 2004 sem þakka má IIFF
fyrir að hafi komist í bíó á Íslandi. Þetta er
alls ekki gallalaus mynd en skilur mikið eftir
sig, einna helst samviskubit hjá vestrænum
góðborgurum sem lokuðu augunum fyrir
þjóðarmorðunum í Rúanda. Don Cheadle er
í toppformi að vanda í aðalhlutverkinu.