Fréttablaðið - 28.12.2005, Qupperneq 79
Hinn ítalskættaði leikari Vinc-
ent Schiavelli andaðist á heimili
sínu á Sikiley annan í jólum eftir
erfiða baráttu við lungnakrabba-
mein. Schiavelli, sem var 57 ára,
var árið 1997 útnefndur einn besti
skapgerðarleikari sögunnar af
tímaritinu Vanity Fair en hann
lék í rúmlega 120 kvikmyndum og
sjónvarpsþáttum.
Vincent Schiavelli ólst upp hjá
afa sínum í Brooklyn og ákvað
snemma að gefa sig á vald leik-
listargyðjunnar. Hann landaði
hlutverki geðsjúklingsins Fred-
erickson í Gaukshreiðrinu sem
hlaut fimm Óskarsverðlaun á
sínum tíma en djúp augu og sér-
stætt útlit öfluðu honum nokkurr-
ar sérstöðu í kvikmyndaborginni.
Leikarinn var oftar en ekki í litl-
um en minnisstæðum hlutverkum
og lék meðal annars leigumorð-
ingja í Bond-myndinni Tomorrow
Never Dies. Þá ætti hann einnig
að vera mörgum að góðu kunnur
í hlutverki draugsins í Ghost sem
kenndi Patrick Swayze að hreyfa
hluti þrátt fyrir að vera dauður.
Ótvíræðir hæfileikar hans á
leiklistarsviðinu voru þó ekki
þeir einu sem leikarinn hafði til
brunns að bera því Schiavelli
skrifaði einnig þrjár matreiðslu-
bækur en hann var mikill smekk-
maður á mat og vín. Fyrir átta
árum fluttist hann til smábæj-
arins Polizzi Generosa á Sikiley
þaðan sem hann er ættaður en afi
hans var kokkur hjá aðalsfólki í
bænum. Að sögn bæjarstjórans
var Schiavelli hvers manns hug-
ljúfi og honum lýst sem frábærum
vini og kokki. „Það var frábært að
ræða við hann um allt milli him-
ins og jarðar því hann var þeim
hæfileikum gæddur að geta gert
allt merkilegt,“ sagði bæjarstjór-
inn. „Ég hef misst bróður,“ bætti
hann við.
Vincent Schiavelli fallinn frá
VINCENT SCHIAVELLI Leikarinn stendur hér við plakat myndarinnar Amadeus þegar hún var
sýnd í endurbættri útgáfu en hann lék þjón Antonio Salieri í myndinni.
Meðlimir New York-sveitarinnar
The Strokes eru ánægðir með að
nýja platan þeirra sé að koma út á
undan áætlun.
Útgáfu plötunnar, sem nefnist
First Impressions of Earth, var
flýtt eftir að fyrsta smáskífulaginu,
Juicebox, var lekið á netið. Kemur
hún út 2. janúar, en smáskífulagið
var gefið út 5. desember síðastlið-
inn. „Ég er mjög ánægður með stöð-
una eins og hún er,“ sagði gítarleik-
arinn Nick Valensi. „Ég er tilbúinn
fyrir útgáfu plötunnar. Mér finnst
við hafa beðið með hana ansi lengi.
Ég vil fara að sleppa henni lausri
eins og fugli úr búri,“ sagði hann.
First Impressions of Earth er
þriðja plata The Strokes. Síðasta
plata sveitarinnar, Room on Fire,
kom út fyrir tveimur árum en sú
fyrsta, Is This It, kom út 2001. ■
The Strokes sleppir
fuglinum úr búrinu
THE STROKES Rokksveitin bandaríska er að gefa út sína þriðju plötu.
Miðasala á tónleika Lisu Ekdahl í
Háskólabíói hinn 24. mars næst-
komandi hófst í gær. Hin sænska
Ekdahl er mörgum kunn á Íslandi
enda kom hún hingað til lands og
hélt tvenna tónleika fyrir troðfullu
húsi í Austurbæ fyrir einu og hálfu
ári síðan. Miðar á þá tónleika seld-
ust upp á tveimur klukkutímum
og er því ljóst að Ekdahl á marga
aðdáendur á Íslandi.
Tónleikarnir í mars eru hluti
af tónleikaferð hennar um Norð-
urlöndin sem hefst í Danmörku
10. febrúar í tilefni af útgáfu plöt-
unnar Pärlor av Glas sem kemur
út 18. janúar. ■
Miðasala á Ekdahl hafin
LISA EKDAHL Söngkonan
heldur tónleika í Háskólabíói
24. mars á næsta ári.
Hin þokkafulla leikkona Jennifer Garner hefur ákveðið að breyta
eftirnafni sínu úr Garner í
Affleck eftir að hún giftist
leikaranum Ben Affleck í
júní síðastliðnum. Ástæð-
an fyrir breytingunni ku
vera sú að hún vill
vera með sama eftir-
nafn og dóttir þeirra
hjóna sem fæddist
fyrr í þessum
mánuði. Fjölmiðlar
komust á snoðir
um þetta eftir að
Jennifer skrifaði eig-
inhandaráritun með
eftirnafninu Affleck
nú á dögunum.
FRÉTTIR AF FÓLKI