Fréttablaðið - 28.12.2005, Page 80
40 28. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
JÖTUNVAXNAR RISASKOTKÖKUR
Margar gerðir, stærðir og nýjungar !! Blævængir,
sveipblævængir, tjaldsveipir og þríhleypur !!
Þú færð þær hjá flugeldasölum
íþróttafélaganna og víða
annars staðar.
Goðheima- og Jötunheima-risaskotkökurnar
munu fylla himinhvolfin um áramótin.
HANDBOLTI Ekki er enn loku fyrir
það skotið að Jaliesky Garcia
Padron fari með íslenska landslið-
inu á EM í Sviss. Hann tábrotnaði
í byrjun nóvember og það leiddi til
þess að hann lagðist undir hnífinn
rétt fyrir jól. Félag hans, Göpping-
en, vill meina að hann verði ekki
leikhæfur fyrir EM sem hefst 26.
janúar en Garcia vill láta á það
reyna hvort hann verði ekki búinn
að jafna sig fyrir mótið.
HSÍ mun fljúga honum til lands-
ins 5. janúar og hann mun fara
strax í skoðun hjá Brynjólfi Jóns-
syni, lækni landsliðsins. „Garcia
vill reyna að sanna sig, sem er
gott. Við tökum strax ákvörðun
með framhaldið þegar Brynjólf-
ur er búinn að skoða hann. Það
verður hans að meta hvaða mögu-
leikar eru í stöðunni,“ segir Viggó
Sigurðsson landsliðsþjálfari, sem
mun tilkynna fimmtánda leik-
manninn í hópinn væntanlega á
föstudag og mun svo halda sæti
Garcia aðeins opnu. Þó Viggó
kvarti ekki yfir viðhorfi Garcia er
hann ekki eins ánægður með félag
Garcia, Göppingen.
„Það er dónaskapur hjá þeim
að láta okkur ekki vita af því að
maðurinn sé að fara í aðgerð. Þeir
segja að hann geti ekki spilað og
þá er hann að taka sæti í hópnum
af öðrum því við fáum ekki að vita
af þessu fyrr en við erum búnir
að senda inn hópinn,“ sagði Viggó
en Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, staðfesti við
Fréttablaðið í gær að HSÍ hefði
borist fax frá Göppingen um upp-
skurðinn eftir að Garcia hafði
lagst undir hnífinn og eftir að
Einar hafði talað við Garcia per-
sónulega á sjúkrabeðinum.
Einar er sammála Viggó í því
að vinnubrögð Göppingen séu ekki
til fyrirmyndar og telur slæmt að
allar ákvarðanir um málið hafi
verið teknar án nokkurs samráðs
við HSÍ. henry@frettabladid.is
Garcia kemur eftir áramót
HSÍ ætlar að fá Jaliesky Garcia til landsins í byrjun ársins svo læknir landsliðs-
ins, Brynjólfur Jónsson, geti metið hvort hann eigi möguleika að komast á EM.
JALIESKY GARCIA PADRON Þáttaka hans á EM í Sviss er í miklu uppnámi en það verður
læknir íslenska landsliðsins, Brynjólfur Jónsson, sem tekur ákvörðun um framhaldið eftir
að hafa skoðað Garcia. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
KÖRFUBOLTI Larry Bird, forseti
Indiana Pacers, hefur loksins tjáð
sig um beiðni Rons Artest, sem
hefur farið fram að verða skipt til
annars félags. Bird finnst Artest
vera að svíkja sig enda stóð Pac-
ers, og Bird, þétt við bak Artests
eftir slagsmálin frægu í Detroit.
„Ég veit ekki hvort það er rétt
að segja það en mér finnst ég hafa
verið svikinn. Við hjá félaginu erum
mjög vonsvikin með þessa hegðun.
Mér hefur alltaf líkað vel að vinna
með honum og hann er einn af tólf
bestu leikmönnum deildarinnar en
við verðum að halda áfram. Það
er nóg komið. Ronnie mun halda
áfram að spjara sig í deildinni en
það verður ekki hjá okkur,“ sagði
Bird, sem er nýkominn úr tíu daga
„njósnaferðalagi“ í Evrópu.
Indiana vill helst senda Art-
est til félags í Vesturdeildinni en
meðal þeirra félaga sem hafa verið
nefnd eru Denver, LA Clippers,
Minnesota, Golden State, Sacra-
mento, Atlanta og LA Lakers. Það
verður erfitt fyrir Bird að finna
arftaka Artest enda er hann frekar
lágt launaður miðað við getu.
- hbg
Larry Bird, forseti Indiana Pacers, opnar sig:
Finnst Ron Artest hafa
svikið sig illilega
EKKI SÁTTUR VIÐ ARTEST Larry Bird gefur
lítið fyrir hegðun Rons Artest.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Steven Gerrard, fyrir-
liði Liverpool, gerðist svo djarfur
að gagnrýna hluta af stuðnings-
mönnum Liverpool eftir leikinn
gegn Newcastle en honum líkaði
ekki að heyra baul úr stúkunni hjá
þessum fáu einstaklingum þegar
Owen var kynntur til leiks.
„Ég er vonsvikinn. Hann á að
vera goðsögn hjá félaginu vegna
allra markanna sem hann hefur
skorað fyrir félagið. Það átti ekki
að baula á hann þar sem hann
átti skilið að fólk stæði upp fyrir
honum,“ sagði Gerrard en sumir
af stuðningsmönnum gerðu grín
að Owen í leiknum og spurðu
hann að því hvar hann hefði verið
í Istanbul og af hverju hann hefði
ekki gengið í raðir stórs félags.
- hbg
Steven Gerrard:
Svekktur
vegna Owens
VINIR OG FÉLAGAR Það ríkir enn ást á milli
Owens og Gerrard.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, segir að liðið
sé búið að leggja Meistaradeild-
ardrauginn á hilluna með fjórum
sigrum í fimm leikjum eftir að liðið
féll úr keppni í Meistaradeildinni.
United er sem stendur níu stigum
á eftir toppliði Chelsea.
„Það var skelfilegt að tapa
gegn Benifca en við erum búnir
að snúa genginu við. Við verðum
að halda áfram á sömu braut og
ef Chelsea misstígur sig erum við
klárir að stökkva í slaginn. Við
erum stolt lið sem þarf að halda
sínu striki sjálfs okkar vegna sem
og fyrir stuðningsmennina,“ sagði
Ferguson.
- hbg
Sir Alex Ferguson:
Tekur gleði
sína á ný
SIR ALEX FERGUSON Byrjaður að brosa á
ný. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
> Ekki alvarlegt hjá Snorra
Axlarmeiðsli landsliðsmannsins Snorra
Steins Guðjónssonar eru ekki alvarleg
og í samtali við Fréttablaðið í gær kvaðst
Snorri Steinn stefna á að taka þátt í leik
Minden í þysku úrvalsdeildinni á föstu-
daginn. Snorri Steinn varð
fyrir hnjaski á æfingu á
aðfangadag og gat ekki
leikið með liði sínu gegn
Magdeburg á öðrum degi
jóla. „Lækn-
arnir telja
að þetta sé
eitthvað í
sambandi við
sinarnar en það
er ekkert brotið og ekkert
slitið. Ég er í meðferð
vegna þessa tvisvar á dag
núna og ætti að verða
orðinn klar í slaginn fyrr
en síðar,“ segir Snorri
Steinn.
Bristol látin fara
Bandaríkjamaðurinn Reshea Bristol er
farin frá kvennaliði Keflavíkur eftir að
hafa ekki náð að standa undir vænt-
ingum, að því er Sverrir Þór Sverrisson,
þjálfari liðsins, sagði við Víkurfréttir.
Félagið hefur þegar fengið til sín nýjan
erlendan leikmann, 23 ára bakvörð sem
heitir Lakiste Barkus.
Grindavíkurbær hefur fest kaup á stúkunni
við knattspyrnuvöll bæjarins af hlutafélag-
inu GK99, sem staðið hefur að hinum ýmsu
málum sem tengjast rekstri knattspyrnu-
deildar Grindavíkur. Með kaupunum hefur
bærinn þar með eignast öll mannvirki í
kringum völlinn og segir Jónas Þórhallsson,
formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur,
það löngu hafa verið tímabært. „Svona
er þetta hjá öllum öðrum bæjarfélögum
og eftir á að hyggja er það í raun fásinna
að GK99 hafi verið að sýna frumkvæði og
safna fyrir byggingu mannvirkis á borð við
það sem stúkan er. Nú er bæjarfélagið
búið að eignast mannvirkið sem það hefði
upphaflega átt að byggja,“ sagði Jónas en
upphaflega var GK99 stofnað sem stoð við
knattspyrnudeildina og átti hvergi að koma
að byggingu stúkunnar. En vegna tregðu
bæjarstjórnar við að ráðast í framkvæmdir
á stúku sem myndi uppfylla kröfur alþóða
knattspyrnusambandsins tók hlutafélagið
af skarið og féllst Grindavíkurbær á að reiða
fram krónu á móti hverri krónu sem GK99
myndi ná að safna.
„Kostnaðurinn við framkvæmd stúkunnar
hljóp á 80-90 milljónum króna og lagði
bærinn 39 milljónir í þær framkvæmdir,“
segir Jónas en samhliða kaupunum færist
rekstur stúkunnar úr höndum knattspyrnu-
deildarinnar til Grindavíkurbæjar og um leið
falla skuldir GK99 niður. Jónas vonast til
þess að þessi viðleitni bæjarins sé aðeins
byrjunin á því sem koma skuli.
„Fótboltinn í Grindavík er ekki með neina
aðstöðu yfir veturinn og það er ekki
sæmandi fyrir félag í efstu deild í dag. Ef
við ætlum að vera samkeppnishæfir verður
bærinn að búa yfir knattspyrnuhöll,“ segir
Jónas og sparar ekki stóru orðin. „Ef bæjar-
félög vilja fá fólk til sín eiga þau að sjá sóma
sinn í því að byggja upp aðstöðu fyrir fólkið.
Bygging knattspyrnuhallar er á borðinu
hjá bæjarstjórn og ef ekki verður ráðist í
byggingu hennar er ekki lengur grundvöllur
fyrir því að vera með efstu deildar félag í
Grindavík.“
GK99 Í GRINDAVÍK: HEFUR SELT STÚKUNA Á KNATTSPYRNUVELLI BÆJARINS
Næst er það bygging knattspyrnuhallar