Fréttablaðið - 28.12.2005, Síða 81

Fréttablaðið - 28.12.2005, Síða 81
MIÐVIKUDAGUR 28. desember 2005 41 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? DESEMBER 25 26 27 28 29 30 31 Miðvikudagur ■ ■ SJÓNVARP  11.45 Heimsbikarinn á skíðum á Sýn.  19.00 Aflraunir Arnolds á Sýn.  19.30 Bestu bikarmörkin á Sýn.  20.25 Meistaradeildin á Sýn. Leikur Liverpool og AC Milan.  22.20 Landsbankadeildin á Sýn. NFL Indianapolis Colts er besta liðið í ameríska fótboltanum í ár og tryggði sér heimaleikjarétt út úrslitakeppnina með því að vinna þrettán fyrstu leiki sína í NFL- deildinni. Liðið hefur í kjölfarið slaka á klónni og byrjað að búa sig undir úrslitakeppnina. Fyrir vikið hafa síðustu tveir leikir tapast. Aðeins ein umferð er eftir af deildarkeppninni og ekki er búist við því að Tony Dungy, þjálfari Colts, stýri liðinu í lokaleiknum. Ástæðan er sú að átján ára sonur hans lést 22. desember og bráða- birgðakrufning hefur leitt í ljós að hann framdi sjálfsmorð. Dungy- hjónin jarðsettu son sinn í Tampa í gær en ætla síðan saman í frí þar sem þau munu reyna að vinna úr sorginni. Allt Colts-liðið flaug til Tampa til að vera viðstatt útförina en þar voru einnig fjölmargir aðrir leik- menn úr NFL-deildinni sem og eigendur en margir þeirra stóðu í röð í þrjá tíma til þess að geta vottað hinum látna virðingu sína í kistulagningunni. - hbg Þjálfari besta liðs NFL-deildarinnar farinn í frí: Sonurinn framdi sjálfsmorð ÞUNGBÆR ATHÖFN Tony Dungy sést hér koma til kistulagningarinnar um helgina en hundruð manna mættu og sýndu honum og fjölskyldu hans stuðning. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Samkvæmt fréttum frá Portúgal bendir flest til þess að portúgalski landsliðsmaðurinn Maniche sé á leið til Chelsea en Atletico Madrid hefur einnig verið á höttunum eftir honum. Portúgölsk blöð greindu frá því í gær að Chelsea hefði náð sam- komulagi við Dinamo Moskvu. Maniche gekk í raðir rússneska liðsins fyrir sex mánuðum síðan en hefur átt erfitt með að aðlagast rússnesku líferni og vill því kom- ast burt hið fyrsta. Maniche er löglegur til að leika í Evrópukeppni, sem gerir hann mjög fýsilegan kost. Jose Mour- inho, stjóri Chelsea, þekkir vel til kappans, sem var lykilmaður í Evrópumeistaraliði Porto sem Mourinho stýrði. - hbg Chelsea: Að kaupa Maniche? NUNO MANICHE Aftur á leið til Mourinho? FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Graeme Souness, stjóri Newcastle, var ekki sáttur við að Peter Crouch skyldi sleppa við rautt spjald þegar Lee Bowyer var hent af velli í leik Liverpoool og Newcastle. Bowyer fékk rautt fyrir tæklingu á Xabi Alonso en Crouch slapp með gult fyrir að hrinda Bowyer í kjölfarið. „Ég sá ekki atvikið sjálfur en þeir sem stóðu næst mér segja að hann hefði átt að fá líka rautt spjald,“ sagði Souness. „Annars ætla ég ekki að verja Bowyer enda eru menn alltaf komnir í vandræði þegar þeir lyfta báðum fótum af jörðinni.“ - hbg Graeme Souness: Crouch hefði átt að fá rautt GRAEME SOUNESS Sár yfir því að Crouch skyldi sleppa með gult. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Salomon Kalau er 20 ára vinstri fótar vængmaður hjá Fey- enoord í Hollandi og þykir einn besti leikmaður liðsins. Hann er fæddur í bænum Oume á Fíla- beinsströndunum en hefur búið og leikið fótbolta í Hollandi síð- ustu tvö og hálft ár. Hann á ekki hollenska konu, hann á ekki börn með hollenskri konu og það vottar ekki fyrir hollensku blóði í æðum hans. Tengsl hans við Holland eru engin, fyrir utan þau að hann fær sitt lifibrauð af því að spila fót- bolta í landinu. Þrátt fyrir þetta er Marco van Basten, þjálfari hol- lenska landsliðsins, vongóður um að hann nái að koma því í kring að Kalau fái hollenska ríkisborgara- rétt áður en HM hefst á næsta ári, en þar hefur Van Basten hugsað Kalou sem helsta vængmann liðs- ins ásamt Arjen Robben. Van Basten hefur, ásamt Johan Cruyff sem vinnur með honum í þessu verkefni, mátt þola mikla gagnrýni frá almenningi í Hol- landi sem eins og gefur að skilja þrífst á eigin þjóðerniskennd og vilja meina að það sé engin þörf á utanaðomandi leikmanni í lands- liðið sitt - nóg sé af frambærileg- um fótboltamönnum sem engin vafi leikur á að séu hollenskir. Ljái þeim það enginn að hafa þá skoðun. Umræðan um að veita utanað- komandi afreksmönnum í íþrótt- um ríkisborgararétt er ekki ný af nálinni og skýtur upp kollinum með reglulegu millibili. Þekktasta dæmið um slíkt er mál langhlaup- arans Zolu Budd sem hefði aldri náð að keppa á ÓL í Los Angeles án þess að hafa fengið breskan ríkisborgararétt á mettíma. Þó að veiting ríkisborgararéttarins hafi verið mjög umdeild á sínum tíma gat Zola varið sig á bakvið þá stað- reynd að afi hennar var breskur. Svo er ekki með Kalau. Sam- kvæmt reglum hollenska ríkis- ins þurfa innflytjendur að vera búsettir á landinu í lágmark fimm ár til að geta átt möguleika á rík- isborgararétti og vantar honum tvö og hálft ár til að uppfylla það skilyrði. Hins vegar eru Van Bas- ten, Cruyff og félagar í hollenska knattspyrnusambandinu að reyna að fá undanþágu með því að vísa í klásúlu í reglunum sem segir að „menningarleg verðmæti“ geti fengið réttinn án þess að uppfylla skilyrðið um fimm ára búsetu. Einhverjir kunna að efast um tenginuna á milli fótbolta og menningar en engu að síður eru rök knattspyrnusambandsins þau að „menningarlegt verðmæti“ Kalau felist í hæfileika hans til að spila fótbolta á það háu stigi að hann geti aflað peninga til hol- lensks samfélgs með því að vera seldur frá Feyenoord. Í því sam- hengi sé HM besti mögulegi leik- mannaglugginn og að evrópskt vegabréf myndi gera stórlðum Evrópu mun auðveldara fyrir að geta notað hann. Dómur í máli Kalau mun lík- lega falla í byrjun nýs árs og telja sérfræðingar að mjög líklegt sé að Kalau fái ríkisborgararéttinn og setji þannig nýja viðmiðun í viðleitni þjóða við að veita ríkis- borgararétt. Og fari svo að hann verði valinn í HM-landsliðshópinn hjá Van Basten, eins og reyndar allt bendir til, ræður kaldhæðni örlaganna því að hann mun tengj- ast blóðböndum á HM því bróðir hans Bonaventure, sem leikur með Paris St. Germain í Frakk- landi, er nefnilega fastamaður í landsliði Fílabeinsstrandarinnar. Þeir munu því brjóta blað í sögu HM með því að vera fyrstu bræð- urnir til að mætast í lokakeppni HM. vignir@frettabladid.is Almenningur í Hollandi er óánægður með Van Basten Marco van Basten og Johan Cruyff, forkálfar hollenska landsliðsins í knattspyrnu, liggja undir mikilli gagnrýni í heimalandi sínu fyrir að reyna að veita tvítugum afríkubúa ríkisborgararétt án þess að hann eigi nokkurt tilkall til hans. MARCO VAN BASTEN Harðlega gagnrýndur í Hollandi. ÓVINSÆLL Líkegt er að Salomon Kalau verði ekki vinsælasti leikmaðurinn í hollenska landsliðinu fari svo að hann fái ríkisborgararétt. Almenningur í Hollandi vill ekki sjá hann í liðinu og vill meina að hann eigi sætið einfaldlega ekki skilið. FÓTBOLTI Knattspyrnuhetjunni Diego Armando Maradona hefur verið boðið að spila með argent- ínska 4. deildar liðinu Excursion- istas út tímabilið. Forráðamenn félagsins tóku Maradona á orðinu en í nýlegum sjónvarpsþætti lýsti hann yfir áhuga sínum á að spila knattspyrnu opinberlega á ný en að það yrði að vera með neðri- deildar liði. „Það er minni pressa þar,“ sagði Maradona, sem spilaði í góðgerðaleik fyrir Zico, gamlan landsliðsmann Brasilíu, rétt fyrir jól og sýndi að hann kann ennþá sitthvað fyrir sér í íþróttinni. „Þegar ég sá viðtalið fæddist þessi hugmynd undir eins. Við höfum mikinn áhuga á því að hafa Maradona í okkar liði,“ segir Armando Mainoli, forseti Excur- sionistas. Maradona hefur ekki enn gefið svar en hann spilaði síðasta í alvöru fótboltaleik árið 1997. „Við yrðum mjög stoltir af því að sjá Maradona í treyju Excursionistas og vonum að hann taki tilboði okkar,“ segir Mainoli. - vig Diego Armando Maradona: Spilar hann í 4. deildinni? FÓTBOLTI Jose Mourinho, knatt- spyrnustjóri Chelsea, segir að hann muni leyfa öllum framherj- um sínum að spreyta sig nán- ast jafn mikið yfir jólatörnina. Hernan Crespo var mjög óvænt í byrjunarliðinu gegn Fulham og þakkaði traustið með því að skora sigurmark Chelsea í leikn- um. Eftir leikinn gaf Mourinho sterklega í skyn að Didier Drog- ba, sem kom inn á sem varamaður gegn Fulham, myndi byrja inni á í næsta leik gegn Man. City í kvöld. „Ég er mjög ánægður með framherjana mína. Crespo og Drogba eru mjög ólíkir fram- herjar og ég vel þá í liðið eftir því hverjir andstæðingar okkar eru. Hins vegar er mikið álag yfir hátíðarnar og ég tel líklegt að þeir fái tvo leiki hvor,“ sagði Mourinho en athygli vekur að hann minnist ekkert á okkar mann Eið Smára Guðjohnsen og svo virðist sem að portúgalski stjórinn sé farinn að líta á hann fyrst og fremst sem miðjumann. - vig Jose Mourinho: Skiptir á milli framherja JOSE MOURINHO Ánægður með Crespo og Drogba.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.