Fréttablaðið - 28.12.2005, Qupperneq 82
28. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR42
KÖRFUBOLTI Shaquille O´Neal hló í
fyrstu þegar hann heyrði af hug-
myndinni að láta feita menn með
bleyju æfa gegn honum. Hann
sá ekki hvernig það ætti að gera
hann að betri leikmanni. Hann
hlær ekki mikið í dag því svo virð-
ist sem Pat Riley, þjálfari Miami
Heat, ætli að láta verða af hug-
myndinni og eru eflaust margir
til í að borga háar fjárhæðir til að
fylgjast með súmóköppunum gegn
Shaq á körfuboltavellinum. Menn-
irnir sem koma til greina í starfið
eru í sama þyngdarflokki og Shaq
en talsvert lægri.
„Við ætlum að láta þá setja
þunga sinn á Shaq og hann mun
ekki komast upp með að bakka í
gegnum þá. Síðan þarf hann að
taka 100 stökkskot og 100 húkk-
skot,“ sagði Riley, sem sér lítinn
mun á því hvernig súmókapparnir
og miðherjar NBA-deildarinnar
verjast Shaq.
Súmóglímur taka venjulega
10-15 sekúndur og þá takast á
tveir fílefldir karlmenn sem ýta
hver öðrum út úr litlum hring. Að
verjast Shaq snýst nákvæmlega
um það sama. Að henda honum
frá körfunni með öllum tiltækum
ráðum.
„Eina leiðin sem andstæðing-
arnir hafa til að verjast Shaq er að
komast í góða stöðu eða hreinlega
að halda honum eða hrinda,“ sagði
Alonzo Mourning, sem leysir Shaq
af hjá Heat og veit manna best við
hvað Shaq þarf að glíma á degi
hverjum í vinnuni.
Andstæðingar Shaq nota oftast
báðar hendur, og jafnvel olnboga,
til að halda Shaq frá körfunni. Ef
Shaq myndi verjast af álíka kappi
myndu andstæðingarnir fjúka
upp í stúku og hann myndi horfa
á flesta leiki af hliðarlínunni með
sex villur á bakinu. Það er talið
eitt verst geymda leyndarmál
deildarinnar að Shaq kemst ekki
upp með það sama og andstæðing-
arnir.
Miami er orðið þreytt á því
að aðrir leikmenn komist upp
með hluti sem Shaq gæti aldrei
komist upp með en í stað þess að
væla stanslaust ætlar Riley að
nota þessa nýstárlegu aðferð til
að gera Shaq að betri leikmanni.
Verður áhugavert að fylgjast með
framhaldinu.
henry@frettabladid.is
Shaq látinn æfa sig gegn
súmóglímuköppum
Pat Riley, þjálfari Miami Heat, er með nýstárlegar þjálfunaraðferðir fyrir mið-
herjann sinn, Shaquille O´Neal. Hann ætlar að láta súmókappa berja á tröllinu
því Shaq er í slíkum átökum í hverjum einasta leik.
TRÖLLIÐ OG HLUNKARNIR Shaq gæti fengið frí frá Alonzo Mourning á næstu æfingum og þess í stað þurft að glíma við litla feita karla
með bleyju. SAMSETT MYND/KRISTINN
FÓTBOLTI Franski framherjinn Thi-
erry Henry gerði sitt besta til þess
í gær að draga úr sögusögnum um
að hann væri á leið til Barcelona
en sem kunnugt er hefur spænska
liðið lýst því yfir að það ætli að
gera allt sem það getur til að fá
Henry til félagsins næsta sumar.
„Mér líkar að fólk hafi áhuga
á mér en eins og staðan er þá er
ekkert að gerast. Ég er að spila
með Arsenal og við erum að ein-
beita okkur að Evrópukeppninni,“
sagði Henry, sem kaupir væntan-
lega fá prik með þessum yfirlýs-
ingum sem eru loðnar og eftir því
var tekið að hann aftekur ekki
að ganga í raðir spænska liðsins.
Þess vegna hafa þessar yfirlýsing-
ar styrkt marga í trúnni að hann
muni fara til Spánar næsta sumar
en samningur hans við Arsenal
rennur út árið 2007. - hbg
Thierry Henry:
Hugsar ekki
um Barca
THIERRY HENRY Fer hann til Barcelona?
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Arsene Wenger, stjóri
Arsenal, hefur gefið það í skyn að
hann muni hugsanlega semja við
Robert Pires til tveggja ára en það
væri stefnubreyting af hans hálfu
þar sem hann hefur alltaf boðið
leikmönnum yfir þrítugt eins árs
samning.
„Það er alltaf hægt að gera
undantekningar. Hann er mjög
mikilvægur leikmaður og hefur
alltaf verið stór hluti af liðinu,“
sagði Wenger, sem mun setjast
að samningaborðinu með Pires í
janúar en Pires getur á þeim tíma
einnig rætt við önnur félög enda
aðeins sex mánuðir eftir af samn-
ingnum hans.
Robert Pires:
Fær kannski 2
ára samning
ROBERT PIRES Vill tveggja ára samning við
Arsenal. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI John Arne Riise, norski
landsliðsmaðurinn í herbúðum
Liverpool, viðurkenndi í sam-
tali við norska fjölmiðla í gær
að lið hans ætti litla möguleika á
enska meistaratitlinum á meðan
Chelsea er í sama formi og af er
leiktíðinni. Þrátt fyrir frábært
gengi að undanförnu er Liver-
pool enn fimmtán stigum á eftir
Chelsea en á reyndar tvo leiki til
góða.
„Það eina sem við getum gert
er að halda áfram að vinna og
vona að Chelsea skriki fótur.
En málið er að liðið tapar varla
stigi. Það er erfitt að ná slíkum
liðum,“ segir Riise en Liverpool
hefur unnið átta leiki í röð. - vig
John Arne Riise:
Liverpool á
litla von
FÓTBOLTI Chris Coleman, knatt-
spyrnustjóri Fulham, greindi frá
því í gær að hann hefði verið mjög
ánægður með frammistöðu Heið-
ars Helgusonar í tapleiknum gegn
Chelsea á öðrum degi jóla. Heiðar
hefur ekki fengið mörg tækifæri
hjá Coleman í vetur en var óvænt
í byrjunarliðinu gegn Chelsea þar
sem hann skoraði annað marka
Fulham úr vítaspyrnu.
„Við ákváðum að breyta leik-
kerfinu örlítið og þess vegna var
Heiðar í liðinu. Mér fannst hann
og Brian McBride vera framúr-
skarandi í framlínunni,“ sagði
Coleman.
- vig
Chris Coleman, stjóri Fulham:
Mjög ánægður
með Heiðar
HANDBOLTI Kiel er komið í afar
góða stöðu í baráttunni um þýska
meistaratitilinn í handbolta eftir
frækinn 32-34 útisigur á Gummers-
bach í gærkvöldi fyrir framan
tæplega tuttugu þúsund manns í
íþróttahöllinni í Köln. Leikurinn
var frábær skemmtun frá upphafi
til enda þar sem áhorfendur fengu
að sjá handbolta eins og hann
gerist bestur. Kiel er nú komið
með 34 stig á toppi þýsku deild-
arinnar, þremur stigum meira
en Flensburg sem sigraði botn-
lið Delitzch í gær. Eftir frábæra
byrjun á tímabilinu er Gummers-
bach dottið niður í þriðja sæti og
virðist vera búið að missa af lest-
inni. Guðjón Valur Sigurðsson og
Róbert Gunnarsson fengu úr litlu
að moða í leiknum í gær en skil-
uðu báðir sínu og vel það.
Ótrúlegur hraði í sóknarleikn-
um er það sem einkennir Kiel og
í leiknum gegn Gummersbach í
gær nýtti liðið sér þann styrkleika
til hins ítrasta. Langstærstur hluti
þeirra 34 marka kom eftir annað
hvort snilldarlega útfærð hraða-
upphlaup eða hraða miðju og má
nánast telja þær sóknir liðsins í
leiknum sem voru yfir fimmtán
sekúndna langar á fingrum annar-
ar handar. Kiel bókstaflega keyrði
yfir heimamenn í upphafi beggja
hálfleika og náði 3-8 forystu eftir
rúmlega tíu mínútna leik. Þegar
á hægði náði Gummersbach að
minnka forskotið niður í 10-9
en þá gaf Kiel í að nýju og náði
tveggja marka forystu fyrir hálf-
leik, 14-16.
Gestirnir hófu síðari hálfleik-
inn með látum, komust í 14-19 og
síðan 19-26, en með mikilli baráttu
og harðfylgi náði Gummerbach að
saxa jafnt og þétt á forskot Kiel.
Þegar þrjár mínútur voru eftir
minnkaði Daniel Narcisse, franski
landsliðsmaðurinn hjá Gummers-
bach, muninn í 30-31 en reynsla
leikmanna Kiel vóg þungt á end-
anum þar sem Stefan Lövgren fór
fremstur í flokki. Lokatölur urðu
32-34 þar sem Róbert skoraði eitt
fjögurra marka sinna á síðustu
sekúndu leiksins.
Róbert var, rétt eins og Guð-
jón Valur, í strangri gæslu hjá
leikmönnum Kiel allan leikinn
en Guðjón náði engu að síður að
skora sex mörk, flest úr hraðaupp-
hlaupum og vítaköstum. Narcisse
var markahæstur liðsins með tíu
mörk en hjá Kiel skoruðu þeir
Marcus Ahlm, Viktor Szilagyi og
Nikola Karabatic allir sex mörk.
Stórleikur ársins í þýska handboltanum fór fram í gærkvöldi:
Ótrúlegur hraði Kiel skilaði sigri
RÓBERT GUNNARSSON Var í strangri gæslu allan leikinn í gær en náði engu að síður að
skora fjögur góð mörk af línunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP