Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.01.2006, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 02.01.2006, Qupperneq 12
12 2. janúar 2006 MÁNUDAGUR AKUREYRI Elín Margrét Hallgríms- dóttir, símenntunarstjóri Háskól- ans á Akureyri, gefur kost á sér í fyrsta til þriðja sætið á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjar- stjórnarkosningarnar á Akureyri í vor. Elín vill með framboði sínu stuðla að því að gera Akureyrarbæ betri búsetukost fyrir fjölskyldur þar sem atvinna, menntun, menn- ingar- og tómstundastarf sé fjöl- breytt, heilbrigðis- og félagsþjón- usta góð og einstaklingar eigi þess kost að njóta hæfileika sinna. Hún telur möguleika sveitarfé- lagsins mikla sem felast ekki síst í mannauðinum á svæðinu. - æþe Bæjarstjórnarkosningar: Elín Margrét í 1. til 3. sætið Filippseyjar heilla Kostnaður við að dvelja á elliheimili í Japan er orðinn svo hár að fjöldi eldri borgara flytur til Filippseyja til að eyða ævidögunum. Er kostnaðurinn þar tífalt minni en í Japan þar sem hver mánuður á hjúkrunar- og elliheimili getur kostað nokkur hundruð þúsund krónur. Vilja fækka sjálfsvígum Japönsk stjórnvöld hafa sett sér það markmið að koma fjölda sjálfsvíga niður fyrir 25 þúsund á ári á ári komanda. Tíðni sjálfsvíga er mikið vandamál í þjóðfélag- inu en tæp 33 þúsund styttu sér aldur á síðasta ári. Villur vega Ökumaður nokkur slasaði tíu manns þegar hann ók bifreið sinni inn í verslunarmiðstöð í Tókýó á háannatíma. Ekki var vitað hvað honum gekk til en hann var handtekinn skömmu síðar. JAPAN FERÐAÞJÓNUSTA „Um ákveðinn afturkipp hefur verið að ræða í ferðaþjónustunni á árinu miðað við það sem verið hefur undan- farin ár,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar. Hátt gengi íslensku krónunnar hefur orðið þess vald- andi að Ísland er ekki lengur eftir- sóttur kostur fyrir ferðaþjónustu- heildsala erlendis og má vænta þess að næsta ár verði jafnvel enn verra. Lítils háttar aukning hefur þó orðið á komum erlendra ferða- manna hingað til lands á árinu. Erna segir það gleðilegt en aukn- ingin sé þó í engu samræmi við aukninguna í nágrannalöndum okkar. „Við getum ágætlega við unað þrátt fyrir allt en því er ekki að neita að gengið hefur sett strik í reikninginn og við höfum heyrt það frá erlendum ferðaheildsölum að þeir hafi beinlínis tekið okkur af skrá hjá sér vegna kostnaðarins og sá samdráttur mun að stórum hluta koma fram á næsta ári. Þannig erum við sérstaklega áhyggjufull hvað næsta ár varðar enda kemur öll niðursveifla illa niður á mörg- um minni fyrirtækjum í greininni sem fjárfest hafa undanfarin ár fyrir háar upphæðir.“ - aöe DÝRTÍÐIN DREGUR EKKI AÐ Lítilsháttar aukning varð á komum erlendra ferðamanna hingað til lands á árinu en hátt gengi veldur greininni slæmum búsifjum og margir erlendir ferðaheildsalar hafa afskrifað Ísland sem áfangastað meðan svo er.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Árið erfitt fyrir ferðaþjónustu á Íslandi: Getur versnað enn frekar Mannskæður eldsvoði Eldsvoði á heimili fyrir geðfatlaða í útjaðri Moskvu- borgar varð á fimmtudag sjö manns að bana. Tólf manns slösuðust. Slökkvistarf tafðist þar sem ekki náðist í neitt vatn til þess nær en í kílómetra fjarlægð. RÚSSLAND NEYTENDUR Íslensk heimili munu geta borið saman gjaldskrár orku- fyrirtækja nú eftir áramótin og valið sér þann kostinn sem hag- stæðastur er fyrir hvert og eitt heimili. Þetta kemur í kjölfar laga sem sett voru 2003 um samkeppni á rafmagnsmarkaði en ár er liðið síðan fyrirtækjum og stórnot- endum buðust sömu skilmálar og nú bjóðast almennum heimilum í landinu. Allar upplýsingar um verðlagningu og gjaldskrá hvers fyrirtækis fyrir sig verður að finna á heimasíðum þeirra fljót- lega en einnig verða þær upplýs- ingar aðgengilegar á heimasíðu Neytendastofu. Var áætlað að þeir kaupendur sem breyta vilja til gætu skipt yfir þann fyrsta mars næstkomandi en vegna tæknilegra tafa verður það vart fyrr en undir júní. - aöe LJÓSADÝRÐ Á nýju ári verður virk samkeppni á rafmagnsmarkaði hér á landi og verið getur að um næstu jól verði jafnvel ódýrara fyrir íslensk heimili að tendra jólaljósin en nú er. Almennt viðskiptafrelsi á raforkumarkaði um áramótin: Samkeppni í raforkusölu ÚTBOÐ Fjögur tilboð bárust í rekstrar- og skipulagslega úttekt á Reykjavíkurflugvelli að sögn Helga Hallgrímssonar, formanns samráðsnefndar um úttekt á Reykjavíkurflugvelli. Tilboðin sem bárust voru frá Verkfræðistofu Sigurðar Thor- oddsen, Línuhönnun, VSÓ-ráðgjöf og ParX viðskiptaráðgjöf og verð- ur ákvörðun tekin fljótlega um hvaða tilboði verði tekið. ■ Úttekt á Reykjavíkurflugvelli: Tilboðin fjögur VATNSMÝRIN Skiptar skoðanir eru um hvernig skuli standa að skipulagningu hennar. svæðisins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R FAGNAR NÝJU ÁRI Á GÖMLU HJÓLI Þessi Breti tók á nýársdag þátt í hinni árlegu nýársgöngu í Lundúnaborg á ævaforni reiðhjóli, sem hann er býsna stoltur af. Þetta árið tók meira en milljón manns þátt í nýársgöngunni, sem er með fjölmennustu útiviðburðum heims ár hvert. MYND/AP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.