Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.01.2006, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 02.01.2006, Qupperneq 44
 2. janúar 2006 MÁNUDAGUR24 Samið hefur verið um fram- kvæmdir við íþróttasvæðið í Laugardal. Knattspyrnusamband Íslands fékk ÍSTAK til verks- ins en áætlað er að reisa hús við vesturhlið núverandi bygginga við Laugardalsvöll ásamt nýjum áhorfendastúkum. Húsið verður um 800 fermetrar að grunnfleti en þar verður kjallari auk þriggja hæða. Á efstu tveimur hæðum eru áætlaðar skrifstofur og fræðslumiðstöð í eigu KSÍ. Nýjar áhorfendastúkur, 1000 fermetrar hvor, rísa beggja vegna við núver- andi áhorfendastúku. Framkvæmd- ir að uppgreftri er lokið. ■ Nýjar áhorf- endastúkur Húsnæði og stúkur munu rísa í Laugardal en ÍSTAK sér um framkvæmdir. Bæta á við áhorfendastúkum á Laugar- dalsvellinum. SELDAR EIGNIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU* *þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins. 300 250 200 150 100 50 0 FJÖLDI 11/11- 17/11 180 9/12- 15/12 136 16/12- 22/12 185 28/10- 3/11 168 4/11- 10/11 166 2/12- 8/12 141 Mig langar alveg ofboðslega að eignast hús með stórum frönskum hurðum sem opnast úr eldhúsi út í garð – franskar hurðir eru með litlum rúðum, alveg ótrúlega fallegar. Ég kynntist því þegar ég bjó í London að hafa slíkar hurðir og það var alger draumur,“ segir Hulda Björk glaðlega og heldur síðan áfram. „Ef ég leyfi mér nú að fara alveg í mína villtustu dagdrauma þá sé ég fyrir mér hús með svoleiðis hurðir ná næstum yfir heilan vegg og hinir veggirnir væru bara venjulegir. Svo væri glerþak til að hleypa allri dagsbirtunni inn. Ég vildi helst byggja þetta hús við hafið þar sem ég heyrði ekkert nema náttúruhljóð,“ segir söngkonan og er afar dreymandi í málrómnum. DRAUMAHÚSIÐ MITT HULDA BJÖRK Á SÉR DRAUMAHÚS VIÐ HAFIÐ Vill fá dagsbirtuna inn um þakið Hulda Björk elskar franskar hurðir. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Giljaskóli hóf starf sitt 1995 í húsnæði leikskólans Kiðagils en eftir nokkrar hrakfarir í húsnæðismálum flutti skólinn í fyrsta hluta núverandi skólabyggingar sinnar 1998. Fyrst um sinn var rúmt um nemendur en á aðeins tveimur árum fylltist skólinn svo brugðið var á það ráð að fá þrjár stakar kennslustofur. Haustið 2002 var skólinn loks fullbyggður, 4.500 fermetrar auk íþróttahúss, svo ekki væsir um nemendur Giljaskóla í dag. Á tíu árum hefur fjöldi nemenda Giljaskóla nær tífaldast. 1995 voru nemendur 44 og bekkjardeildir 2 en nú eru bekkjardeildirnar orðnar 10 og nemendur 407. Núverandi skólabyggingu Giljaskóla teiknaði Fanney Hauksdóttir. GILJASKÓLI Í Fasteignablaði Fréttablaðsins þann 19. desember var einn af íbúum hússins Áss við Sólvalla- götu rangnefndur. Dýralæknirinn sem þar bjó hét Ásgeir Ó. Einarsson en ekki Ásgeir L. Jónsson. Aðstandendur og aðrir lesendur eru beðnir vel- virðingar á mistökunum. ■ Leiðrétting Ás, Sólvallagötu 23, Reykjavík.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.