Fréttablaðið - 02.01.2006, Síða 48

Fréttablaðið - 02.01.2006, Síða 48
 2. janúar 2006 MÁNUDAGUR24 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis- atburði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Okkar elskulega Aðalbjörg S. Guðmundsdóttir frá Mosfelli, Hlíðarvegi 46, Kópavogi, verður jarðsungin frá Langholtskirkju miðvikudaginn 4. janúar kl. 15.00. Bjarki Bjarnason Þóra Sigurþórsdóttir Sif Bjarnadóttir Hilmir Þór og Ásbjörn Ibssynir Ýr Þórðardóttir Hlynur Þórisson Bjarni Bjarkason Þóra Björk Gísladóttir Vilborg Bjarkadóttir Guðmundur Bjarkason Aðalbjörg Egilsdóttir Óskírður Hlynsson Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ást- kærrar móður okkar, systur og fósturdóttur, Ólafar Guðjónsdóttur Flúðaseli 90, Reykjavík. Fyrir hönd annarra vandamanna. Marvin Ingólfsson Þóra Björk Ingólfsdóttir Ingi Guðjónsson Margrét Ólafsdóttir MERKISATBURÐIR 1492 Konungsríkið Granada fellur í hendur herja Ferdinands V Spánarkonungs og Isabellu drottningar. 1871 Stöðulög eru sett. Þar er kveðið á um að Ísland sé óaðskiljanlegur hluti Danaveldis með sérstökum landsréttindum. 1884 Saumakona á Ísafirði verður fyrsta konan til að kjósa til bæjarstjórnar. 1899 Kristilegt félag ungra manna, KFUM, er stofnað í Reykjavík. 1958 Óperusöngkonan Maria Callas gengur af sviði á stórtónleikum í Rómaborg eftir aðeins eitt lag. Margir töldu að hin skapstygga díva hefði farið í fýlu. 1998 Fyrsti starfsdagur nýs háskóla, Kennaraháskóla Íslands. JOHANN KASPAR LAVATER (1741-1801) LÉST ÞENNAN DAG. „Sá sem sjaldan mælir en getur með einu vel tímasettu orði gert þá málglöðu orðlausa er snillingur eða hetja.“ Johann Kaspar Lavater var þýskt skáld og guðfræðingur. Á þessum degi árið 1971 létust 66 knattspyrnu- áhugamenn þegar hindranir á vellinum Ibrox Park í Glasgow gáfu sig um leið og þúsundir áhorfenda yfirgáfu íþróttaleikvanginn eftir leik liðanna Celtic og Rangers. Talið var að slysið sem varð í tröppum nr. 13 hefði orðið þegar áhangendur Rangers yfirgáfu leikinn þar sem þeir töldu ljóst að leikurinn væri tapaður. Jimmy Johnstone hafði skorað fyrir Celtic þegar aðeins ein mínúta var eftir af leiknum en Colin Stein tókst að jafna fyrir Rangers í uppbótartíma og upphófust mikil fagnaðarlæti í stúkunni. Rannsókn leiddi í ljós að fólk tróðst undir vegna þess gríðarlega mannfjölda sem reyndi að komast aftur inn á völlinn. Þegar fólk fór að detta olli það keðjuverkun sem leiddi til þess að 66 lágu í valnum. Aðeins ein kona var meðal hinna látnu. Þetta er versti harmleikur í sögu skoska fótboltans og aðeins atvikið á Hillsborough er verra í sögu breska boltans. ÞETTA GERÐIST > 2. JANÚAR 1971 Knattspyrnuhörmung á Ibrox Park AFMÆLI Kjartan Sveins- son, tónlistar- maður í Sigur Rós, er 27 ára. Jón Gnarr, skemmtikraftur og pistlahöfund- ur, er 38 ára. Pjetur Sævar Hallgrímsson, kaup- maður í Neskaupstað, er 52 ára. Þórður Friðjóns- son, forstjóri Kauphallarinnar, er 53 ára. Björgólfur Guð- mundsson athafna- maður er 64 ára. Halldór Hermannsson, skipstjóri á Ísafirði, er 71 árs. FÆDDUST ÞENNAN DAG 1920 Isaac Asim- ov, vísindaskáld- sagnahöfundur. 1912 Renato Guttuso, ítalskur listmálari. 1885 Gísli Ólafsson skáld frá Eiríks- stöðum. 1699 Osman III sold- án af Tyrklandi. Fyrsta skóflustungan að fyrirhuguðu bílasafni og félagsheimili Fornbíla- klúbbs Íslands ásamt þjón- ustuhúsi Orkuveitu Reykja- víkur, var tekin síðastliðinn föstudag. Bílaáhugamenn hafa lengi bent á nauðsyn þess að koma upp bílasafni í Reykjavík enda telja þeir slík söfn njóta mikilla vin- sælda erlendis. Félagar Fornbílaklúbbsins eiga í dag yfir 300 gangfæra fornbíla af öllum stærðum og gerð- um. Auk þess sem klúbbur- inn á töluvert af áhöldum sem tengjast ökutækjasög- unni, líkt og bensíndælur og verkfæri, auk ljósmynda- safns með um fimm þúsund myndum. Bílasafnið mun njóta nálægðar Minjasafns Orku- veitu Reykjavíkur og Raf- heima en söfnin verða tengd saman af þjónustumiðstöð Elliðaárdalsins. ■ Fornbílasafn í Elliðaárdal FORNBÍLL Félagar í Fornbílaklúbbnum eiga yfir 300 gangfæra fornbíla. Fornleifafræðingafélag Íslands (FFÍ) stendur fyrir málfundi um framtíð forn- leifafræðinnar á Íslandi eftir Kristnihátíðarsjóð. Fundur- inn verður haldinn á morgun klukkan 16.00 í húsakynnum Fornleifaverndar ríkisins, Suðurgötu 39. Kristnihátíðarsjóður var stofnaður til að minnast þess að 1000 ár voru liðin síðan kristni var lögtekin hér á landi. Styrkirnir voru veittir til fornleifarannsókna og til verkefna sem miðuðu að því að efla þekkingu og vitund um menningararf. Í ár var úthlutað úr sjóðnum í síðasta sinn. Sólveig Georgsdótt- ir, verkefnisstjóri stefn- umörkunar á vegum Fornleifaverndar ríkis- ins, dr. Bjarni F. Einars- son, framkvæmdastjóri Fornleifafræðistofnunar og Hrafnkell Brimar Hallmunds- son, formaður Kumls, félags fornleifafræðinema, munu halda stutt framsöguerindi þar sem þau greina frá sínu sjónarhorni en að því loknu verður opnað fyrir umræð- ur. Fundurinn er öllum opinn. ■ Framtíð forleifa- fræðinnar VIÐ UPPGRÖFT Í ár var úthlutað úr Kristnihátíðarsjóði í síðasta sinn. „Mér líkar gríðarlega vel í nýja starfinu og raunar betur og betur með hverjum deginum sem líður,“ segir Björn Friðrik Brynjólfsson, sem nýlega tók við starfi aðstoðarmanns Einar Kr. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra. Þó að Björn Friðrik sé lærður stjórnmálafræðingur hefur hann ekki komið nærri stjórnmálum fyrr um ævina, utan að fjalla um þau í frétta- og dagskrárgerð hjá Ríkisútvarpinu þar sem hann vann áður. Hann fylgir þó Sjálfstæðisflokknum að málum og dregur ekki dul á að hafa kosið hann í gegnum árin. En í hverju ætli nýja starfið felist? „Þetta er gríðarlega víðfeðmt en eins og starfsheitið felur í sér felst það fyrst og fremst í að aðstoða ráðherrann eftir fremsta megni og sinna svo öðrum verkefnum í ráðuneytinu,“ segir Björn Friðrik. Hann lætur vel af samstarfsmönnum sínum en viðurkennir um leið að hann sakni svolítið gamalla samstarfsmanna sinna úr Ríkisútvarpinu. Og hann fer ekki leynt með ánægju sína með Einar Guðfinnsson. „Hann er til algjörrar fyrirmyndir í hvívetna, ég gæti ekki hugsað mér betri yfirmann,“ segir Björn og hlær. Leiðir Björns og Einars lágu fyrst saman í Grímsey á Steingrímsfirði og kynnin þar urðu til þess að Einar bað Björn að aðstoða sig þegar hann varð ráðherra í haust. „Þannig er að Einar hefur veitt lunda í Grímsey á Steingrímsfirði tiltekna helgi á ári um árabil. Fyrir rúmum átta árum kynntist ég konu frá Hólmavík og hef veitt lunda í þeirri sömu Grímsey síðan, þessa sömu helgi og Einar. Við kynntumst því þar og höfum hist þar einu sinni á ári síðan,“ segir Björn, sem vill ekki skera úr um hvor þeirra sé lunknari við lundaveiðarnar. Björn ólst upp á Húsavík og varði sumrum í sveit hjá afa sínum og ömmu í Kelduhverfinu og þangað fór hann í jólaleyfinu. ■ BJÖRN FRIÐRIK BRYNJÓLFSSON: NÝR AÐSTOÐARMAÐUR SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA Kynntust við lundaveiðar BJÖRN FRIÐRIK BRYNJÓLFSSON Segir Einar Kr. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra til algjörrar fyrirmyndar og getur ekki hugsað sér betri yfirmann. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.