Fréttablaðið - 02.01.2006, Side 53
29
LEIKLIST
VALGEIR SKAGFJÖRÐ
Eldhús eftir máli
Þjóðleikhúsið / Smíðaverkstæðið /
Eldhús eftir máli / Höfundur: Vala Þórs-
dóttir, byggt á nokkrum smásögum eftir
Svövu Jakobsdóttur / Leikstjóri: Ágústa
Skúladóttir / Leikmynd: Stígur Stein-
þórsson / Tónlist: Björn Thorarensen /
Búningar, grímur og hattar: Katrín Þor-
valdsdóttir / Lýsing: Hörður Ágústsson
/ Leikarar: Aino Freyja Järvelä, Kjartan
Guðjónsson, Margrét Vilhjálmsdóttir,
María Pálsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdótt-
ir og Þórunn Lárusdóttir.
Niðurstaða: Sýning Þjóðleikhússins er
stílhrein og einlæg og allir listamenn
sem að henni standa geta kinnroðalaust
klappað sjálfum sér á bakið fyrir vel
unnið starf.
Svava Jakobsdóttir hefur með
verkum sínum markað dýpri
spor í íslenska kvennabaráttu en
margan óraði fyrir og nú, eftir
fráfall hennar á því ári sem hún
hefði orðið 75 ára setur Þjóðleik-
húsið upp leikhúsverk sem byggir
á fimm vel þekktum smásögum
hennar. Það er vel, enda eru verk
hennar margslungin, hafa djúpa
merkingu og eru tíðum hárbeitt
ádeila á þá tilveru sem konum
fyrr og nú hefur verið búin í þjóð-
félagi sem kallar sig siðmenntað
og stundum vestrænt einhverra
hluta vegna. Raddir stórkvenna
á borð við Svövu heyrast allt of
sjaldan nú um stundir.
Við að rifja upp þessar smá-
sögur Svövu sem Vala Þórsdóttir
hefur hér spunnið leikverk upp
úr vakna hugrenningar um hvers
konar tilveru þjóðfélag okkar býr
dætrum mínum og hvaða fyrir-
myndir og hugmyndir verði þeim
hugleiknar þegar þær vaxa úr
grasi. Mér rennur kalt vatn milli
skinns og hörunds fyrir þeirra
hönd að þurfa að vinsa úr allt
hismið sem kemur með þessari
tegund bandarísks sjónvarpsefn-
is sem raunveruleikasjónvarp
kallast og yfirskyggir flest sem
birtist á skjám landsmanna um
þessar mundir. Ekki kannast
ég við þann raunveruleika sem
þar birtist. Þar er sjálfsvirð-
ingu kvenna misboðið hvað eftir
annað.
En hvað þá með konurnar í
leikritinu? Jú, sá heimur sem þær
hrærast í verður um síðir þeirra
fangelsi og þær eiga ekki undan-
komu nema með hugarfarsbreyt-
ingu. Ekki bara þeirra sjálfra
heldur líka samfélagsins. Það er
enginn sökudólgur − því miður.
Ekki einu sinni karlarnir eiga sök
á því hvernig fyrir þeim er komið
heldur erum við öll föst í hlekkj-
um hugarfarsins. Við getum ekki
lengur greint sundur aðalatriði
og aukaatriði – hvað er mikilvægt
eða hvaða gildi við viljum varð-
veita. Afhelgunin er orðin algjör
og nú þurfum við að fara að skil-
greina dyggðirnar og lestina upp
á nýtt.
„Heil mannsævi og ég hef
ekkert að segja,“ segir aumingja
Aðalheiður í leikritinu eftir að
börnin hennar hafa tekið úr henni
heilann og af því hjartað er orðið
svo stórt þá þarf að skera það úr
líka. Sögurnar hennar Svövu eru
tímalausar og eiga alltaf erindi
við okkur eins og allar góðar
sögur. Þær eru bæði harmrænar
og bráðfyndnar.
Hvað varðar sýningu Þjóð-
leikhússins þá er hún stílhrein
og einlæg og allir listamenn sem
að henni standa geta kinnroða-
laust klappað sjálfum sér á bakið
fyrir vel unnið starf. Svo er alltaf
umdeilanlegt hvernig smásagn-
aformið er yfirfært á leikhúsið
og hlýtur það að ráðast af smekk
hvers og eins.
Mér þótti Vala komast smekk-
lega frá því að flétta textann og að
sama skapi tókst leikstjóranum að
nýta rýmið á Smíðaverkstæðinu
sem Stígur hefur hannað svo þén-
anlega leikmynd inn í. Lýsing við
hæfi í samspili við nostursamlega
búninga og grímur. Leikkonurnar
áttu allar góðan dag og eini karl-
leikarinn á gömlum slóðum, einn
með stelpunum.
Fyrir mína parta langar mig að
fara að sjá góðan leikstjóra eins
og Ágústu Skúladóttur glíma við
verkefni sem reyna meira á leik-
ara hvað varðar persónusköpun
og dramatísk átök. Hún kann öll
„leikhústrikkin“ og hefur sýnt
það oft að undanförnu. Í heildina:
Fallegt minni um Svövu Jakobs-
dóttur.
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Vínartónleikar
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
0
2
8
græn tónleikaröð í háskólabíói
aukatónleikar í háskólabíói
MIÐVIKUDAGINN 4. JANÚAR KL. 19.30
FIMMTUDAGINN 5. JANÚAR KL. 19.30 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
FÖSTUDAGINN 6. JANÚAR KL. 19.30
LAUGARDAGINN 7. JANÚAR KL. 17.00 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
Hljómsveitarstjóri ::: Peter Guth
Einsöngvari ::: Anton Scharinger
Helstu perlur höfuðtónskálda Vínar með Strauss-
feðga í broddi fylkingar, hinn frábæri einsöngvari
Anton Scharinger og einn mesti sérfræðingur í
Vínartónlist, hljómsveitarstjórinn Peter Guth.
Tryggðu þér miða núna á www.sinfonia.is á hina
bráðskemmtilegu og sívinsælu Vínartónleika
Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Frábær byrjun á nýju ári
Stóra svið
SALKA VALKA
Su 8/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20
Fi 26/1 kl. 20
WOYZECK
Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 20
Lau 21/1 kl. 20 Su 29/1 kl. 20
KALLI Á ÞAKINU
Su 8/1 kl. 14 Su 15/1 kl. 14
Lau 21/1 kl. 14 Su 22/1 kl. 14
CARMEN
Fi 12/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr
Fö 13/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr
Lau 14/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Fi 19/1 kl. 20 Gul kort
Fö 20/1 kl. 20 Rauð kort
Fö 27/1 kl. 20 Græn Kort
Lau 28/1 kl. 20 Blá kort
Nýja svið/Litla svið
MANNTAFL
Su 8/1 kl. 20 Lau 14/1 kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
SÝNINGAR HEFJAST AÐ NÝJU Í FEBRÚAR!
BELGÍSKA KONGÓ
Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 20
Fö 20/1 kl. 20 Lau 28/1 kl. 20
GLÆPUR GEGN DISKÓINU
EFTIR GARY OWEN.
Í SAMSTARFI VIÐ STEYPIBAÐSFÉLAGIÐ STÚT
Fi 12/1 kl. 20 FRUMS. UPPS. Fö 13/1 kl. 20
Lau 21/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20
Naglinn
e. Jón Gnarr í samstarfi við Leikfélagið Regínu
Fö 20/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Lau 21 /1 kl. 20 Fö 27/1 kl. 20
Lau 28/1 kl. 20
HÚSMÓÐIR UMKRINGD BÖRNUM SÍNUM Þjóðleikhúsið minnist Svövu Jakobsdóttur með
því að sýna Eldhús eftir máli, sem Vala Þórsdóttir hefur unnið upp úr smásögum Svövu.
Leikhús eftir smásögum