Fréttablaðið - 02.01.2006, Side 58

Fréttablaðið - 02.01.2006, Side 58
34 2. janúar 2006 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? JANÚAR 30 31 1 2 3 4 5 Mánudagur ■ ■ SJÓNVARP  12.40 West Ham-Chelsea á Enska boltanum. Bein útsending.  18.30 NFL á Sýn.  20.30 Ensku mörkin á Sýn.  21.30 Íþróttaannáll 2005 á Sýn.  22.30 HM á Sýn. England og Argentína. Ungbarnasund Námskeiðið hefst 5. febrúar nk. í Árbæjarlaug. Sunddeild Ármanns Barnasund Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára hefst laugardaginn 15. janúar nk. í Árbæjarskóla Innritun virka daga frá kl. 17:00 og um helgar frá kl. 13:00 í síma 557-6618 (Stella) og Eygló í síma 866-0122 7. September nk. 10.S ptember nk. 4. janúar 28. janúa Enska úrvalsdeildin: MAN.UTD-BOLTON 4-1 1-0 Bruno N´Gotty, sjm (8.), 1-1 Gary Speed (33.), 2-1 Louis Saha (44.), 3-1 Cristiano Ronaldo (68.), 4-1 Cristiano Ronaldo (90.). ASTON VILLA-ARSENAL 0-0 CHARLTON-WEST HAM 2-0 1-0 Shaun Bartlett (21.), 2-0 Darren Bent (63.). CHELSEA-BIRMINGHAM 2-0 1-0 Hernan Crespo (25.), 2-0 Arjen Robben (43.). TOTTENHAM-NEWCASTLE 2-0 1-0 Tainio (43.), 2-0 Mido (66.). LIVERPOOL-WBA 1-0 1-0 Peter Crouch (52.). MIDDLESBROUGH-MAN. CITY 0-0 PORTSMOUTH-FULHAM 1-0 1-0 Gary O´Neill (43.). STAÐAN: CHELSEA 20 18 1 1 43:9 55 MAN.UTD. 20 13 5 2 40:17 44 LIVERPOOL 18 12 4 2 26:9 40 TOTTENHAM 20 10 7 3 29:18 37 WIGAN 20 11 1 8 25:24 34 ARSENAL 19 10 3 6 27:15 33 BOLTON 18 9 4 5 23:18 31 MAN.CITY 20 8 4 8 27:22 28 BLACKBURN 19 8 3 8 24:24 27 WEST HAM 20 7 5 8 26:27 26 NEWCASTLE 19 7 4 8 18:21 25 CHARLTON 18 8 1 9 23:27 25 ASTON VILLA 20 5 7 8 23:29 22 MIDDLESBRO 19 5 6 8 23:28 21 FULHAM 20 5 5 10 23:29 20 EVERTON 20 6 2 12 11:30 20 W.B.A. 20 5 4 11 19:29 19 PORTSMOUTH 20 4 5 11 15:31 17 BIRMINGHAM 19 3 4 12 13:29 13 SUNDERLAND 19 1 3 15 14:36 6 ÚRSLIT Bjarni bestur hjá Val Knattspyrnumaðurinn Bjarni Ólafur Eiríksson var á gamlársdag kjörinn íþróttamaður Vals. Bjarni lék mjög vel með Val í Landsbankadeildinni og var síðan valinn í íslenska landsliðið. > Ágúst tekur við körlunum og Helena best Hinn ungi og efnilegi þjálfari kvennaliðs Hauka í körfuknattleik, Ágúst Björgvins- son, hefur verið ráðinn sem þjálfari karlaliðs félagsins í stað Predrag Bojovic sem lét af störfum eftir tap gegn Hetti milli jóla og nýárs. Ágúst mun einnig halda áfram sem þjálfari kvenna- liðs félagsins. Fyrirliði þess, Helena Sverris- dóttir, var síðan kjörin íþróttamaður Hauka á gamlársdag. FÓTBOLTI Newcastle og enska landsliðið varð fyrir miklu áfalli á gamlársdag þegar Michael Owen braut bein í einni tánni. Meiðslin eru svipuð mjög frægum meiðslum sem David Beckham varð fyrir á sínum tíma. Meiðslin þýða að Owen verður að hvíla í tvo til þrjá mánuði. „Þetta er ótrúlega svekkjandi,“ sagði Owen eftir leikinn en hann þótt hann sé brotinn er hann ekki bugaður. „Ég efast ekki um að ég verði klár í slaginn fyrir HM í sumar. Sérfræðingarnir segja mér að það sé ekki nokkur vafi á að löppin verði orðin góð fyrir þann tíma.“ Sven-Göran Eriksson, lands- liðsþjálfara Englands, var að vonum nokkuð brugðið en hann ætlar sér að fylgjast ítarlega með bata framherjans. „Þetta er ansans óheppni og kemur sér illa fyrir landsliðið og Newcastle. Michael er frábær framherji og gríðarlega mikilvægur fyrir landsliðið og félag sitt. Vonandi nær hann sér á strik hið fyrsta.“ Owen gerir sér grein fyrir því að hann verði að vera þolinmóð- ur enda eru þetta mjög hvimleið meiðsli. „Það er ekkert hægt að gera til að koma mér í slaginn á stutt- um tíma. Beckham, Rooney og Gerrard hafa allir lent í þessu og ég er búinn að heyra í þeim. Það lenda allir í mótlæti en ég get í það minnsta huggað mig við að ég verð klár fyrir HM. Þetta hefði svo sannarlega getað orðið verra,“ sagði Owen. henry@frettabladid.is Michael Owen fótbrotinn Enski landsliðsframherjinn stefnir á að verða kominn í toppform fyrir HM næsta sumar þrátt fyrir að hafa fótbrotnað í leik Newcastle og Tottenham. BROTINN EN EKKI BUGAÐUR Michael Owen sést hér á ferðinni í leiknum örlagaríka gegn Tottenham á gamlársdag. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Besti knattspyrnumaður heims, Brasilíumaðurinn Ronald- inho hjá Barcelona, hefur mikið álit á enska landsliðsfyrirliðan- um David Beckham og segir hann vera einn besta leikmanninn í spænsku deildinni ef ekki þann besta. „David er frábær leikmaður og kannski besti leikmaðurinn í spænsku deildinni það sem af er þessu tímabili. Hann hefur svo mörg vopn í búri sínu. Hann hleypur mikið, tæklar, gefur gull- fallegar sendingar. Hann virðist vera búinn að finna sinn leik hér á Spáni,“ sagði Brasilíumaður- inn brosmildi sem telur enska landsliðið vera eitt það sterkasta í heiminum í dag. „England er klárlega með eitt besta lands- lið heims í dag. Wayne Rooney er gríðarlega mikilvægur fyrir enska landsliðið. HM gæti verið mótið sem hann sýnir hversu góður hann er því Rooney er leik- maður sem getur breytt gangi leikja á augnabliki. Ég hitti hann í fyrsta skipti á dögunum og þetta er frábær strákur.“ - hbg Ronaldinho hefur mikið álit á David Beckham: Beckham er einn sá besti á Spáni BECKHAM OG RONALDINHO Brasilíumaðurinn Ronaldinho segir Beckham kannski besta leikmann spænsku deildarinnar í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Tæplega 700 manns mættu í íþróttahúsið í Austurbergi á föstudaginn þegar gamlir ÍR-ingar tóku á móti núverandi meistaraflokki ÍR í fjáröflunarleik meistaraflokksins. Það voru margir áhugaverðir leikmenn sem spiluðu með gamla ÍR-liðinu sem bar sigur úr býtum, 39-35. Gömlu mennirnir tóku svo fast á ungu strákunum að þeir urðu hálfhræddir. Fyrr en varði höfðu gömlu kempurnar náð miklu forskoti, 20-7. Í gamla liðinu voru menn eins og Júlíus Jónasson, Finnur Jóhannsson og Erlendur Ísfeld. Betur gekk hjá ÍR-liðinu í síðari hálfleik og það náði að bjarga sér frá niðurlægingu. Landsliðsþjálfararnir Viggó Sigurðsson og Bergsveinn Bergsveinsson dæmdu leikinn og fórst þeim verkið vel úr hendi að því er Hólmgeir Einarsson, stjórnarmaður í ÍR og þjálfari „gamla“ liðsins segir. „Þeir stóðu sig eins og hetjur og ég verð að gefa Viggó 9,5 í einkunn fyrir dómgæsluna,“ sagði Hólmgeir kátur en leikurinn markaði tímamót hjá honum en hann er hættur að vinna fyrir handknatt- l e i k s d e i l d i n a vegna heilsu- farsástæðna eftir margra ára óeigingjarnt sjálfboðaliðastarf. „Eina sem ég get sett út hjá Viggó er að hann var ekki nógu harður. Hann gaf hvorki gul né rauð spjöld í leiknum. Ég reyndi eins og ég gat að fá spjald og lyfti meðal annars buxunum upp að hnjám en það virkaði ekkert á hann.“ Eftirlitsdómararnir Kjartan Steinbach og Hákon Sigurjónsson mættu á svæðið til þess að taka Viggó út og þeir skiluðu skýrslu um frammistöðuna. „Viggó var farinn áður en skýrslan kom. Hann hlýtur að hafa fengið fína útkomu hjá þeim félögum,“ sagði Hólmgeir kátur með að hætta á toppnum sem þjálfari. FJÁRÖFLUNARLEIKUR ÍR-INGA: VIGGÓ SIGURÐSSON SLÓ Í GEGN SEM DÓMARI Viggó góður en ekki nógu harður FÓTBOLTI Leikmannamarkaðurinn í Evrópu opnaði á nýjan leik um áramótin og verður opinn út mánuðinn. Manchester United er eitt þeirra liða sem þurfa klárlega að styrkja sig og sögur bárust af því í gær að liðið væri með tvo Frakka í sigtinu. Þetta eru Patrice Evra, leikmaður Monaco, og Franck Ribery, leikmaður Marseille. Ribery er 22 ára miðjumaður en Tottenham er einnig að spá í kappann. United fær líka samkeppni um Evra en Inter er búið að setja sig í samband við Monaco og vill gjarna kaupa hinn 24 ára varnarmann sem sló í gegn með Monaco fyrir tveim árum. Manchester United: Tveir Frakkar í sigtinu PATRICE EVRA Gæti verið á leið til Man. Utd. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.