Fréttablaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 FIMMTUDAGUR 5. janúar 2006 — 4. tölublað — 6. árgangur AY GO AY GO AY GO AY GO AY GO OFKEYRSLU TÓNLEIKAR LAUGARDALSHÖLL 06.01.2006 kl. 18.00 ÓKEYP IS MIÐA R: Náðu þé r í ókeyp is miða í Aygo h jólhýsin u á Læk jartorgi milli fim m og át ta alla d aga fram að tónleiku m. www.aygo.is GUÐMUNDUR INGI ÞORVALDSSON Á alltaf sultur í ísskápnum Heimsækir ísbúðina á Hagamel til að láta sér líða betur MATUR 42 LEÓPOLD KRISTJÁNSSON Með nýtilkomna skódellu Tíska Heilsa Heimili Í MIÐJU BLAÐSINS MEÐAL LESTUR 12-49 ÁRA 57% 37% *Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í október 2005. Fólk undir fimmtugu velur Fréttablaðið! KÓLNANDI HÆG SUÐLÆG átt vestast en strekkingur austast. Skúrir á sunnan- og vestanverðu landinu en bjart með köflum norðaustan til. Kólnandi veður með éljum vestan til síðdegis.. VEÐUR 4 VEÐRIÐ Í DAG DÓMSMÁL Karl Sigurbjörnsson biskup sagði fyrir héraðsdómi í gær að hann hefði ekki vitað að tengdasonur hans, séra Sigurð- ur Arnarson, hefði sótt um stöðu sendiráðsprests í London, fyrr en að loknum umsóknarfresti. Séra Sigríður Guðmarsdóttir, sem einnig sótti um stöðu sendi- ráðsprests í London, höfðaði mál gegn Biskupsstofu eftir að ljóst var að hún yrði ekki skipuð. Hún sakar biskup um að hafa gerst brotlegur við stjórnsýslulög og telur að hann hafi átt að segja sig frá málinu mun fyrr en hann gerði, auk þess sem gagnrýnd er önnur aðkoma biskups að prests- skipaninni. - óká / Sjá síðu 2 Biskup Íslands fyrir dómi: Vissi ekki um tengdasoninn Leikaradóttir á hausaveiðum Nýjasta spennumynd Tonys Scott byggir á ævi Domino Harvey sem sneri baki við gjálífi og gerðist mannaveiðari. Keira Knightley leikur Domino en töffarinn Mickey Rourke er henni til halds og trausts. BÍÓ 38 BISKUP Í RÉTTARSAL Karl Sigurbjörnsson biskup var kvaddur fyrir héraðsdóm í gær, til að bera vitni í máli séra Sigríðar Guðmarsdóttur gegn Biskupsstofu. Í stefnu Sigríðar er biskup sagður hafa gerst brotlegur við stjórnsýslulög. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL LÖGREGLA Tveir ungir menn eru í gæsluvarðhaldi vegna fjársvika hjá fjarskiptafyrirtækinu Og Vodafone. Fyrirtækið óskaði eftir rannsókn lögreglu milli jóla og nýárs þegar upp komst um falsað- ar beiðnir sem leystar voru út hjá birgjum í nafni þess. Hörður Jóhannesson, yfirlög- regluþjónn í Reykjavík, segir gæsluvarðhald yfir manni sem handtekinn var í síðustu viku hafa verið framlengt um viku í gær. Hinn hafi verið tekinn í fyrra- dag og vikulangt gæsluvarðhald úrskurðað í Hæstarétti í gær. Hann geti hvorki upplýst hvern- ig mennirnir tengjast né um hve háa upphæð sé að ræða þar sem rannsóknin sé á viðkvæmu stigi. Samkvæmt heimildum er talið að mennirnir hafi að minnsta kosti svikið út vörur fyrir allt að þrett- án milljónir króna. Gísli Þorsteinsson, upplýs- ingafulltrúi Og Vodafone, vildi lítið upplýsa um málið annað en að upp hafi komist um falsaðar beiðnir í dreifingu. Hann vildi ekki staðfesta hvort fleiri atriði væru í rannsókn: „Málið kom upp milli jóla og nýárs. Við náðum að komast fljótt fyrir það, því við brugðumst hratt og örugglega við þessu. Að öðru leyti viljum við ekki tjá okkur um málið til að stofna ekki rannsóknarhagsmun- um í hættu.“ Heimildir herma að annar mannanna hafi verið starfsmaður í verslun Og Vodafone. Hann hafi brotist inn í fyrirtækið eftir að hafa verið sagt upp störfum. Fyr- irtækið hefur því aukið öryggið eftir að málið komst upp. Starfs- menn þess þurftu meðal annars að breyta öllum lykilorðum að þeim kerfum sem þar eru notuð þar sem hann hafði nýtt sér ein- hver þeirra. - gag Tveir í varðhaldi vegna fjársvika hjá Og Vodafone Tveir menn eru grunaðir um fjársvik hjá Og Vodafone. Mennirnir sitja báðir í gæsluvarðhaldi. Ann- ar braust inn í fyrirtækið eftir að honum var sagt upp störfum. Lögreglan verst fregna af málinu. GÍSLI ÞORSTEINSSON Upplýsingafulltrúi Og Vodafone. HÖRÐUR JÓHANNESSON Yfirlögregluþjónn í Reykjavík. KJARAMÁL Aðeins tvö ár eru síðan Alþingi samþykkti frumvarp um verulega hækkun á eftirlaunum þingmanna og ráðherra. Kostn- aðaraukinn fyrir ríkissjóð vegna þess nam 650 milljónum króna í byrjun árs 2004. Sumir þeirra sem samþykktu frumvarpið gagn- rýna nú starfslokasamninga FL Group. Þegar frumvarpið var sam- þykkt í lok árs 2004 sagði Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusam- bands Íslands, að verkalýðsfor- ystunni væri gróflega misboðið. „Frumvarpið hefur auðvitað allt yfirbragð starfslokasamnings við forsætisráðherra og síðan er stungið myndarlegum dúsum upp í stjórnarandstöðuna,“ sagði Grét- ar. Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, sem greiddi atkvæði með frumvarpinu á sínum tíma telur ósanngjarnt að bera saman starfslokasamningana og eftirlaunafrumvarpið. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylk- ingarinnar sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, segir að eftir höfðinu dansi limirnir. Synd væri að segja að Alþingi hafi gengið á undan með góðu fordæmi. - jh/ghs / Sjá síðu 20 Tvöfeldni í gagnrýni þingmanna á starfslokasamninga: Eftirlaunafrumvarp var slæmt fordæmi GRÉTAR ÞORSTEINSSON Forseti ASÍ gagn- rýndi eftirlaunafrumvarið harðlega. Frelsi á matvörumarkaði Eigi Íslendingar að búa við sams kon- ar neytendaumhverfi og er í öðrum Evrópulöndum þarf miklar breytingar á núverandi fyrirkomulagi, segir Jón Ásgeir Jóhannesson. UMRÆÐAN 28 Áfram í Svíþjóð? Þjálfari Gunnars Heiðars Þorvaldssonar hjá Halmstad segir best fyrir Eyjapeyjann að vera áfram í herbúð- um sænska félagsins. Stjórnarfor- maðurinn hefur ekki trú á því að Gunnar Heiðar fari frá félaginu. ÍÞRÓTTIR 48
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.