Fréttablaðið - 05.01.2006, Síða 72

Fréttablaðið - 05.01.2006, Síða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA ���������� ���������� Okkur sem erum foreldrar ber að vernda börnin okkar. Við þurfum að vernda þau fyrir öllu sem við óttumst að gæti skaðað þau. Að vernda krefst tíma og athygli. TÖLVULEIKIR, bíómyndir og rokktónlist skaða ekki börn. Lélegt uppeldi gerir það. Sumt fólk nenn- ir ekki að ala upp börnin sín og vonar að skólinn geri það eða félagar barnanna eða börnin sjálf. Foreldrar eru helstu fyrirmynd- ir barna sinna. Ef foreldrarnir hanga á börum allar helgar fara krakkarnir fljótt að gera eitthvað svipað. MARGIR þora ekki að setja börn- um sínum mörk. Of mikil eftirgjöf gerir börnin frek og stjórnlaus og býr til tæfur og tudda framtíðar- innar. Við sjáum það greinilega í þáttunum um Super Nanny. Hún hjálpar foreldrum að takast á við freka krakka. Og það fyrsta sem hún gerir er að byrja á að setja krökkunum mörk. FÓLK er með móral og samvisku- bit út af alls konar hlutum; að hafa ekki alltaf gert rétt, að hafa ekki alltaf verið til staðar eða hafa gert eitthvað rangt. Fjölskylduráðgjafar reyna yfirleitt að einbeita sér að foreldrunum. Þeir vita sem er að ef foreldrarnir lagast, lagast börnin í kjölfarið. AÐ vera uppalandi krefst þess að þurfa að taka óvinsælar ákvarðan- ir. Uppalandi þarf að banna. Hann þarf að geta verið strangur. Hann þarf að hafa vit fyrir. Og hann þarf að skammast. Og hann þarf að vera vakandi. Hann þarf að vera þessi „leiðinlegi“ sem bendir á það sem allir eru að reyna að horfa framhjá. TÍÐARANDINN krefst þess að allt sé skemmtilegt. Allt sem er leiðinlegt er out. En það er ekki allt- af skemmtilegt að vera uppalandi. Eitthvað það leiðinlegasta sem ég sé er þegar athyglissjúkt fólk er að draga börnin sín í fjölmiðla til að vekja athygli á sjálfu sér. Mér finnst að það ætti að banna það. Mér finnst það siðlaust. Hvað ætli mörg börn hafi þjáðst fyrir athygl- issýki og heimsku foreldra sinna og ábyrgðarleysi fjölmiðla? FORELDRAR eiga að standa vörð um börnin sín en jafnframt að kenna þeim að axla ábyrgð þannig að þau geti vaxið og þroskast upp í að vera ábyrgir fullorðnir ein- staklingar. Margt fullorðið fólk líður fyrir það að hafa ekki fengið uppeldi. Sannur kærleikur er ekki alltaf tóm gleði. ■ Verndum bernskuna Láttu bankana ekki binda hendur þínar Njóttu frelsis í viðskiptum – kynntu þér opin íbúðalán SPRON á www.spron.is. Opin íbúðalán AR G US / 05 -0 84 8

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.