Fréttablaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 2
2 5. janúar 2006 FIMMTUDAGUR ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18. Opið virka daga: 10-18 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 DÓMSMÁL Karl Sigurbjörnsson biskup segist ekki hafa vitað fyrr en að loknum umsóknarfresti um stöðu sendiráðsprests í London sum- arið 2003 að tengdasonur hans, séra Sigurður Arnarson, hefði sótt um starfið. Aðalmeðferð fór í gær fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli sem séra Sigríður Guðmarsdóttir, hinn umsækjandinn um starfið, höfðaði eftir að ljóst var að séra Sigurður hafði verið skipaður í það. Málið snýst að mestu um hæfi biskups og aðkomu að málinu. Í stefnu séra Sigríðar er hann sagður brotlegur við stjórnsýslulög og talið að hann hefði átt að segja sig frá málinu mun fyrr en hann gerði, auk þess sem gagnrýnd er ýmis önnur aðkoma hans að prestsskipuninni, svo sem að hann hafi sjálfur skipað formann nefndar sem fjalla skyldi um hæfi umsækjenda, eftir að tengdasonur hans hafði skilað inn umsókn. Karl Sigurbjörnsson bar fyrir héraðsdómi í gær að viðtekin venja væri að opna ekki umsóknir fyrr en að umsóknartíma liðnum og því hefði ekki verið ljóst fyrr en þá að séra Sigurður hefði sótt um. Hann kvaðst þó hafa haft grun um að svo kynni að fara og hafði enda haft á því orð fyrr um sumarið 2003 við Sigurð Sigurðarson vígslubiskup að svo kynni að fara að Karl þyrfti sjálfur að víkja sæti í málinu. Séra Sigríður rakti málið eins og það sneri að henni fyrir dómi. Hún sagði að sér hefði ekki verið kunnugt um að biskup hefði skipað séra Sigurður Arnarson sendiráðsprest í afleysingum séra Jóns Aðalsteins Baldvinssonar, fyrrverandi sendiráðsprests, í leyfi hans, áður en til þess kom að staðan losnaði. Í stefnu hennar segir að afleysingastaðan hafi ekki verið auglýst með eðlilegum hætti. Biskup sagði ekki hafa legið fyrir að séra Jón Aðalsteinn myndi láta af embætti að leyfi loknu. Sigríður kvaðst hafa orðið forviða þegar henni var tjáð að hún hefði ekki hlotið starfið. „Enda taldi ég mig hafa yfirburði, bæði hvað varðaði starfsreynslu og starfsmenntun.“ Sverrir Haukur Gunnlaugsson sendiherra átti sæti í nefndinni sem meta átti hæfi umsækjendanna tveggja, auk séra Jóns Bjarman og Unu Bjarkar Ómarsdóttur, deildarstjóra hjá Tryggingastofnun. Hann upplýsti að Una Björk hefði viljað ráða Sigríði sökum menntunar hennar og starfsreynslu, en hann og Jón Bjarman hefðu verið sammála um að séra Sigurður væri hæfari. Málið dæmir Skúli Magnússon héraðsdómari og er dóms að vænta innan tíðar. olikr@frettabladid.is SIGRÍÐUR GUÐMARSDÓTTIR OG SIF KONRÁÐSDÓTTIR Aðalmeðferð fór fram í gær í máli Sigríðar á hendur Biskupsstofu vegna skipunar sendiráðsprests í London. Biskup ber af sér sakir um spillingu Biskup neitar óeðlilegum afskiptum af ráðningu sendiráðsprests. Vitnaleiðslur voru í gær í máli séra Sigríðar Guðmarsdóttur á hendur Biskupsstofu. Hún sótti um starfið sem séra Sigurður Arnarson, tengdasonur biskups, var skipaður í. BISKUPINN OG SENDIHERRANN Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, og Sverrir Haukur Gunnlaugsson sendiherra báru báðir vitni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. PARÍS/NEW YORK, AP Árið 2005 hafa að minnsta kosti 63 fréttamenn farist víðs vegar um heim í starfi eða vegna starfs síns. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu samtakanna Fréttamenn án landamæra sem birt var í gær. Á þriðjudag sögðu önnur alþjóðleg blaðamannasamtök, Samtök um vernd fréttamanna, að 47 fréttamenn hefðu farist á árinu, og að meira en 75 prósent þeirra hefðu verið myrtir til að þagga niður í þeim eða til að hegna þeim fyrir unnin störf. Það gerir morð að algengustu atvinnutengdu dauðaorsök fréttamanna. Írak er nú orðið hættulegasti vinnustaður stéttarinnar. Frétta- menn án landamæra segja 76 blaðamenn hafa farist í Írak síðan Bandaríkin réðust þar inn árið 2003, eða fleiri en fórust í hinum 20 ára löngu átökum í Víetnam. Hin samtökin segja fórnarlömbin vera 60 og að bandarískir hermenn hafi drepið 13 þeirra. „Stríðið í Írak gæti leitt mann til þess að halda að fréttamennirnir farist á vígvellinum, en sannleikur- inn er sá að þrír af hverjum fjórum fréttamönnum sem deyja voveiflega í heiminum í dag eru eltir uppi og myrtir, og morðingjar þeirra þurfa sjaldnast að svara fyrir gjörðir sínar,“ segir Ann Cooper, formaður Samtaka um vernd fréttamanna. Frá árinu 1992 hafa innan við 15 prósent morðingja fréttamanna verið handteknir og færðir fyrir rétt, samkvæmt upplýsingum samtakanna. - smk Morð algengasta orsök atvinnutengdra dauðdaga fréttamanna: 63 blaðamenn drepnir í fyrra HERMAÐUR Í ÍRAK Stríðið í Írak hefur gert það land hættulegast fréttamönnum, en 76 blaðamenn hafa týnt þar lífi síðan árið 2003. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLA Rúmlega 1,4 kíló af hassi hafa fundist í húsakynnum manns í Vestmannaeyjum sem situr í gæsluvarðhaldi. Einnig hafa fundist um 20 grömm af amfetamíni. Auk mannsins hafa karl og þrjár konur verið handtekin, en sleppt að loknum yfirheyrslum. Fólkið var handtekið á gaml- ársdag og maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á laugardag þá um kvöldið. Síðasti fíkniefnafundurinn var á þriðjudagskvöldið, um 130 grömm af hassi, en kvöldið áður fannst um kíló af hassi. Á gamlársdag fundust um 300 grömm af hassi og 20 grömm af amfetamíni. - óká Maður áfram í varðhaldi: Enn finnst hass í Eyjum KÍNA, AP Forráðamenn fyrirtækis í Norður-Kína segjast eingöngu ráða fólk fætt á ári hundsins í vinnu. „Við teljum fólk sem fætt er á ári hundsins hafa góð persónu- leikaeinkenni, svo sem tryggð og heiðarleika,“ segir talsmaður fyr- irtækisins, Jilin Jiangshan, sem sérhæfir sig í starfsmannastjórn- un. Talsmaðurinn er sjálfur fædd- ur á ári hundsins. Næsta ár, samkvæmt fornu tunglalmanaki Kínverja, er ár hundsins og hefst það 29. janúar næstkomandi samkvæmt okkar tímatali. Kínversku stjörnumerk- in eru tólf og varir hvert þeirra í ár. - smk Kínversk vinnumenning: Bara „hundar“ ráðnir í vinnu BAGDAD, AP Landskjörstjórn Íraks tilkynnti á þriðjudag að enn væru tvær vikur þangað til endanleg úrslit úr íröksku þingkosningunum liggja fyrir en rúmur hálfur mánuður er síðan þær fóru fram. Þrátt fyrir að úrslitin séu ekki ljós eru viðræður um myndun ríkisstjórnar í fullum gangi. Mas- oud Barzani, annar helsti leiðtogi Kúrda, náði í byrjun vikunnar samkomulagi við oddvita stærstu hreyfingar súnnía um að þeir tækju sæti í nýrri ríkisstjórn. For- sætisráðherra hennar gæti orðið Ibrahim al-Jaafari, sjíaleiðtoginn sem hefur setið í því embætti síðan í apríl, en ekki hafði verið búist við að hann héldi sæti sínu. ■ Sátt í sjónmáli í Írak: Súnníar gætu sest í stjórnina ÁR HUNDSINS Kínversk stúlka skoðar gullhunda. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MYND LAGT Á RÁÐIN Barzani og al-Jaafari hittust í Irbil um helgina og skeggræddu nýja ríkisstjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SPURNING DAGSINS Guðmundur, fengu gestirnir upp í kok af ráðherranum? Ég lofa því vífilengjulaust að fólkið fékk upp í kok af ráðherranum. Guðmundur Jónsson er forstöðumaður Byrgisins sem hóf tíunda starfsár sitt í ár og sló af því tilefni upp veislu, þar sem meðal annars var boðið upp á ráðherratertu og vífilengjur. KJARAMÁL Þrjátíu og þrjár upp- sagnir starfsmanna leikskóla í Kópavogi liggja nú fyrir og þar af hafa um tuttugu sagt starfi sínu lausu í þessari viku. Sesselja Hauksdóttir, leikskólafulltrúi hjá Kópavogsbæ, segir að stór hluti þeirra uppsagna sem hafa borist upp á síðkastið sé vegna óánægju með launakjörin. „Það eru reynd- ar margir sem taka það fram að þeir muni draga uppsögnina til baka ef kjörin breytast,“ segir hún. Að sögn Sesselju verður beðið með að ræða launamál leikskóla- kennara þangað til alaunamála- ráðstefna Sambands íslenskra sveitarfélaga er lokið. Í leikskólanum Rjúpnahæð hefur fjöldi starfsmanna sagt upp. Að sögn Gróu Hafsteins- dóttur leikskólastjóra tengjast allar uppsagnirnar óánægju með launakjör. „Það er mikil óánægja með launakjörin,“ segir Gróa. Sömu sögu er að segja af leik- skólanum Núpi, en þar hafa 14 starfsmenn sagt upp síðustu þrjá daga, meðal annars allir deildar- stjórarnir. Samkvæmt heimildum blaðsins hélt foreldrafélag barna á Núpi neyðarfund vegna málsins í gærkvöldi. - sk LEIKSKÓLINN DALUR Starfsmannaekla hefur verið á leikskólanum Dal í Kópavogi. Svipað ástand hefur verið á öðrum leikskólum í bænum. Þrjátíu og þrír starfsmenn í leikskólum Kópavogs hafa sagt upp störfum: Uppsagnir streyma inn Bílvelta á Austurlandi Ökumaður missti stjórn á bíl sínum með þeim af- leiðingum að hann valt nálægt bænum Krossi í Berufirði um hádegisbilið í gær. Þrennt var í bílnum en ökumaður þurfti einn aðhlynningu. Aksturskilyrði voru góð að sögn lögreglu. Tildrög slyssins LÖGREGLUFRÉTTIR Viðræður eru í gangi Reykja- víkurborg og olíufélögin þrjú, Esso, Skeljungur og Olís, eiga enn í við- ræðum um skaðabætur vegna ólöglegs verðsamráðs olíufyrirtækjanna í útboðum borgarinnar. Heimildir blaðs- ins herma að tekist sé á um bótaupp- hæð. Borgin hefur krafist rúmlega 150 milljóna króna. SKAÐABÓTAMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.