Fréttablaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 52
5. janúar 2006 FIMMTUDAGUR36
menning@frettabladid.is
! Kl. 12.00„Franskt og freistandi“ er yfirskrift
hádegistónleika í Hafnarborg,
Hafnarfirði, þar sem fram koma þær
Hlín Pétursdóttir sópran og Antonía
Hevesi píanóleikari.
Söfn og safnarar eru við-
fangsefnið á sýningu ungra
nemenda Myndlistarskólans
í Reykjavík, sem opnuð
verður í Þjóðminjasafni
Íslands í dag. Ólöf Gerður
Sigfúsdóttir mannfræðingur
segir safngripi vera fram-
lengingu á safnaranum.
Síðan í haust hafa nemendur og
kennarar Myndlistarskólans í
Reykjavík mikið fjallað um söfnun
og safngripi í tengslum við námið.
Önnin hófst með því að Ólafur
Engilbertsson var fenginn til að
fjalla um sýningarnar Stefnumót
við safnara I og II sem hann stóð
fyrir í Gerðubergi 2004 og 2005.
Kennarar skólans gripu hugleið-
ingar hans á lofti og spunnu áfram
með nemendum sínum.
Tvær sýningar eru sprottnar
upp úr þessu starfi í skólanum.
Í Reykjavíkurakademíunni eru
verk eftir fullorðna nemendur
skólans, en í Þjóðminjasafninu
verður í dag klukkan 17 opnuð
sýning á verkum þrettán nem-
endahópa á aldrinum 6 til 12 ára,
þar sem sýnd eru verk unnin út
frá þessu viðfangsefni.
Ólöf Gerður Sigfúsdóttir mann-
fræðingur hefur mikið velt þessu
fyrirbæri, söfnuninni, fyrir sér.
Hún ætlar að flytja fyrirlestur
sem hún nefnir „Um söfn og safn-
ara“ í beinu framhaldi af opnun
sýningarinnar eða klukkan 17.30.
Þar fjallar hún um ýmsar hlið-
ar á þessu fyrirbæri og bendir
meðal annars á það hversu gífur-
lega fjölbreyttar myndir söfnunin
getur tekið á sig.
„Margir safna án þess að
vera endilega mjög meðvitaðir
um það,“ segir hún. „En þetta er
afskaplega algengt, og þá er fólk
gjarnan að flokka hlutina, raða í
kerfi eða jafnvel fela í skúffu eða
öðrum leyndum hirslum.“
Ólöf segir gildi hlutanna breyt-
ast gjörsamlega þegar þeir verða
hluti af safni.
„Hvers virði er til dæmis
steinn sem ég er með úti í fjöru?
En þegar ég er búin að setja hann
í vasann minn og komin með hann
heim, búin að raða honum upp
og setja hann í safnið, þá verður
hann heilagur.“
Hún ræðir einnig ævi og örlög
safngripa, sem geta verið afskap-
lega margbreytileg.
„Ævi safngripa getur verið gíf-
urlega löng, margar aldir jafnvel.
Síðan fer fólk að kaupa þá jafnvel
dýrum dómum og þá getur maður
farið að ræða um verðgildi hlut-
anna, en það er svolítið annað
mál.“
Sérstaklega ætlar hún þó að
velta fyrir sér söfnuninni út frá
sjónarhóli barnsins. „Hvert barn
safnar einhverju, og um leið er það
að búa sér til sinn eigin heim. Það
býr sér til sjálfsmynd, því þessir
hlutir verða eins konar framleng-
ing á okkur sjálfum.“ ■
Ævi og örlög safngripa
Í ÞJÓÐMINJASAFNINU Börn hafa gaman af því að safna og una sér gjarnan vel á söfnum.
Verðlaunasjóður íslenskra
barnabóka efnir nú enn á ný til
verðlaunasamkeppni. Að þessu
sinni er auglýst eftir tvenns konar
handritum. Annars vegar handriti
að skáldsögu fyrir börn og
unglinga, hins vegar handriti að
myndskreyttri bók fyrir börn.
Íslensku barnabókaverðlaunin
hafa á undanförnum árum opnað
mörgum nýjum höfundum leið
út á rithöfundabrautina og orðið
til þess að auka úrval góðra bók-
mennta fyrir börn og unglinga.
Stjórn verðlaunasjóðsins
hvetur jafnt þekkta sem óþekkta
höfunda til þess að taka þátt
í samkeppninni um Íslensku
barnabókaverðlaunin.
Dómnefnd velur besta handrit
í báðum flokkum og verðlaunin
nema 400.000 kr. fyrir hvora bók
auk venjulegra höfundarlauna.
Bækurnar koma út hjá Eddu
útgáfu - Vöku-Helgafelli haustið
2006.
Útprentað handrit að skáld-
sögu skal vera að lágmarki 70
blaðsíður að lengd, en ekki er
gert ráð fyrir því að verðlauna-
sagan verði myndskreytt. Fyrir
myndskreyttu bókin skal aftur á
móti skila handriti að texta, að
minnsta kosti tveimur fullunnum
myndum og skissum að öðrum
opnum bókarinnar. Miða skal við
að sagan sé sögð á tólf opnum,
að frátöldum titilsíðum og saur-
blöðum. Skilafrestur er til 15.
febrúar 2006.
Ný barnabók óskast
> Ekki missa af ...
... hinum árlegu Vínartónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands,
sem haldnir eru fjórum sinnum
þessa vikuna. Fyrstu tónleikarnir
voru í gærkvöld, en þeir síðustu
verða á laugardaginn.
... hátíðardagskrá í Slippnum
í Reykjavík á morgun þar sem
Músíkhvatur, Sigurbjörg
Þrastardóttir og Gunnar
Hersveinn koma fram ásamt
fleirum og varpa ljósi á leyndar-
dóma svæðisins.
... öðruvísi Vínartónleikum sem
haldnir verða í Íslensku óperunni
á sunnudaginn. Þar flytur kamm-
ersveitin Ísafold ásamt Ágústi
Ólafssyni söngvara tónlist úr
smiðju Schönbergs, Weberns og
annarra Vínarbúa.
������������������������������������������
�������������������������������
���������������������������������������������������������������������������������������������
��������� ���������������������������������������������������������������
����������������������������� �������������������������������������������������
��� ��������� ������������������� ������������������������������������ ���������������
������������ �����������������������������������������
�
������������ �������������� �� �����������
��������������������������������� ��������������������������������������������������
�
�� �������������������������������������� ���������� ��������������������������
Stóra svið
SALKA VALKA
Su 8/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20
Fi 26/1 kl. 20 SÝNINGUM FER FÆKKANDI
WOYZECK
Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 20
Lau 21/1 kl. 20 Su 29/1 kl. 20
KALLI Á ÞAKINU
Su 8/1 kl. 14 Su 15/1 kl. 14
Lau 21/1 kl. 14 Su 22/1 kl. 14
CARMEN
Fi 12/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr
Fö 13/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr
Lau 14/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Fi 19/1 kl. 20 Gul kort
Fö 20/1 kl. 20 Rauð kort
Fö 27/1 kl. 20 Græn Kort
Lau 28/1 kl. 20 Blá kort
Nýja svið/Litla svið
MANNTAFL
Su 8/1 kl. 20 Lau 14/1 kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
SÝNINGAR HEFJAST AÐ NÝJU Í FEBRÚAR!
BELGÍSKA KONGÓ
Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 20
Fö 20/1 kl. 20 Lau 28/1 kl. 20
GLÆPUR GEGN DISKÓINU
EFTIR GARY OWEN.
Í SAMSTARFI VIÐ STEYPIBAÐSFÉLAGIÐ STÚT
Fi 12/1 kl. 20 FRUMS. UPPS. Fö 13/1 kl. 20
Lau 21/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20
Naglinn
e. Jón Gnarr í samstarfi við 540 Gólf leikhús
Fö 20/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Lau 21 /1 kl. 20 Fö 27/1 kl. 20
Lau 28/1 kl. 20