Fréttablaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 6
6 5. janúar 2006 FIMMTUDAGUR
Fjármálaeftirlitið hefur beðið lög-
reglu að rannsaka viðskipti með
stofnfjárbréf í Sparisjóði Hafnar-
fjarðar í fyrra. Jón H. Snorrason,
yfirmaður efnahagsbrotadeildar
ríkislögreglustjóra, segir að erindi
frá Fjármálaeftirlitinu hafi borist
en vill ekki um hvað það fjallar.
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins, segir rannsókn
hafa beinst að því hvort virkur
eignarhlutur hafi myndast í Spari-
sjóði Hafnarfjarðar. Niðurstöðu sé
að vænta á næstu vikum.
Virkur eignarhlutur myndast
í fjármálafyrirtæki þegar einn
eða tengdir aðilar ráða beint eða
óbeint yfir tíu prósentum stofnfjár
eða hlutafjár. Samkvæmt lögum
þarf sérstakt samþykki Fjármála-
eftirlits fyrirfram til að fara með
virkan eignarhlut. Slíkt samþykki
liggur ekki fyrir í Sparisjóði Hafn-
arfjarðar.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er kannað hvort sam-
komulagi um sölu og kaup á bréf-
um í Sparisjóði Hafnarfjarðar
hafi verið haldið leyndu fyrir
Fjármálaeftirlitinu. Á fundi stofn-
fjáreigenda í júlí í sumar hafi setið
einstaklingar sem voru skráðir
eigendur bréfa en höfðu selt þau til
annarra og fengið greiðslu fyrir.
Þeir sem eiga virkan eignarhlut
í sparisjóði, tíu prósent eða meira,
mega einungis fara með fimm pró-
sent atkvæða á fundum eigenda.
Önnur atkvæði detta niður dauð.
Fulltrúar Fjármálaeftirlitsins
sátu fund eigenda Sparisjóðs Hafn-
arfjarðar í sumar þar sem greint
var frá því að fimmtán stofnfjár-
hlutir af 93 hefðu skipt um hendur
eða rúm 16 prósent. Meðal nýrra
eigenda eru þekktir athafnamenn
á borð við Sigurð G. Guðjónsson,
Björn Þorra Viktorsson, Magnús
Ármann og Sigurð Bollason.
Íslandsbanki keypti einnig
stofnfjárhluti og Þór Sigfússon
segir að Sjóvá hafi keypt bréf af
Árna M. Mathiesen fjármálaráð-
herra á 50 milljónir króna. Árni
segir að Fjármálaeftirlitinu hafi
verið tilkynnt um viðskiptin áður
en þau fóru fram. Engu hafi verið
haldið leyndu.
Sigurður G. Guðjónsson sagðist
ekki hafa heyrt frá starfsmönnum
Fjármálaeftirlitsins frá því í haust
og lögregla hafi ekki haft samband
við sig.
- bg/eþa
Örfá herbergi laus
í 9 nátta skíðaferð til Ítalíu 12.janúar!
Verð
69.980* kr.
á mann í tvíbýli
Flugsæti á „2 fyrir 1 “
26.630 kr.
á mann með sköttum
www.urvalutsyn.is
Nánari uppl‡singar
um fer›ir ásamt l‡sinum
á hótelum er a› finna á
www.urvalutsyn.is
Beint leiguflug
* Innifalið: Flug, gisting með morgunverði í 9 nætur,
akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
9 daga skíðaferð
12.janúar
Beint flug til Verona
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
3
08
52
0
1/
20
06
ÚKRAÍNA, AP Fulltrúar ríkisrek-
inna gasfyrirtækja Rússlands og
Úkraínu komust í gær að sam-
komulagi um að gassala Rússa til
Úkraínu hæfist á ný en fyrir hana
var skrúfað um áramótin vegna
deilu um verð. Deilan olli áhyggj-
um í Evrópu þar sem megnið af
því rússneska gasi sem notað er í
álfunni er flutt um Úkraínu.
Samkomulagið gerði báðum
deilendum kleift að hrósa sigri;
Rússar fá fullt heimsmarkaðs-
verð fyrir gasið og Úkraínumenn
fá að laga sig í áföngum að þeirri
margföldun gasverðsins sem í
þessu felst.
Vladimír Pútín Rússlands-
forseti bar lofsorð á samkomu-
lagið. Sagði það hafa jákvæð
áhrif á samskipti grannlandanna
tveggja.
Á fundi með Alexei Miller,
forstjóra Gazprom, í gær sagði
Pútín að samkomulagið væri ekki
aðeins „viðurkenning á réttmæti
afstöðu Rússa“ í deilunni, heldur
sýndi einnig að samskipti Rússa
og Úkraínu væru að taka á sig
nýja og uppbyggilegri mynd.
Fyrirtæki í eigu Svisslendinga
og Rússa gegnir lykilhlutverki
í samkomulaginu. Öll gassala
Rússa til Úkraínu fer samkvæmt
samkomulaginu gegnum þetta
fyrirtæki næstu fimm árin. - aa
Samkomulag náðist í gasdeilu Rússa og Úkraínumanna:
Gasstreymi til Evrópu hefur verið tryggt
GASFORSTJÓRAR SÁTTIR Forstjóri úkraínska gasfyrirtækisins Naftogaz, Oleksiy Ivchenko, og
Gazprom-forstjórinn Alexei Miller handsala samkomulagið í Moskvu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJÖRKASSINN
Á hluti hækkana á niðurgreiðsl-
um til dagforeldra að renna til
foreldranna sjálfra?
Já 33%
Nei 67%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Er Eiður Smári Guðjohnsen besti
knattspyrnumaður Íslands fyrr
og síðar?
Segðu skoðun þína á
SLÖKKVILIÐ Ekki liðu nema nokkr-
ar sekúndur frá því að rjúka fór úr
eimingarpotti Efnamóttökunnar í
Gufunesi, þar til allt húsið fylltist
af reyk, að sögn starfsmanns.
Gunnar Bragason, fram-
kvæmdastjóri Efnamóttökunnar,
segir ástæðu þess að rjúka tók
úr pottinum enn á huldu en málið
verði rannsakað. Hann segir
skemmdir vegna atviksins óveru-
legar, talið sé að eimingarpottur-
inn sé í lagi og unnið sé að því að
koma honum í gagnið á ný.
Allar sveitir Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins voru
kallaðar út klukkan 09.09 í
gærmorgun vegna málsins og
var um mikinn viðbúnað var að
ræða af hálfu slökkviliðsins vegna
ótal hættulegra efna sem þar eru
geymd.
Jón Guðmundsson frá stöð
slökkviliðsins á Tunguhálsi, sem
var fyrsta stöðin á vettvang, segir
húsið, sem eimingarpotturinn
var í, hafa verið fullt af reyk
þegar slökkviliðsmenn bar að
garði. Reykkafarar fóru inn í
húsið og gerðu ekki annað en að
lækka hitastillinguna á pottinum.
Potturinn kældi sig því næst hægt
og rólega og hætti að gefa frá sér
reyk og þá var öðrum deildum
slökkviliðsins snúið við.
Að sögn Jóns voru hættuleg
efni allt í kring og því hefði getað
farið verr. Eimingarpotturinn er
notaður til að eima spíra úr lita-
hylkjum. - æþe
Rauk úr eimingarpotti í húsnæði Efnamóttökunnar í Gufunesi:
Fylltist af reyk á augabragði
EIMINGARPOTTURINN SEM OFHITNAÐI Potturinn fyllti húsið af reyk á augabragði.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Viðskipti stofnfjáreig-
enda í SPH rannsökuð
Stjórnvöld rannsaka hvort upplýsingum hafi verið haldið leyndum fyrir þeim og
hvort einstaklingar hafi setið hluthafafund SPH í sumar á fölskum forsendum.
SÆKJA FUND STOFNFJÁREIGENDA Verið er að rannsaka hverjir voru raunverulegir eigendur
bréfa í Sparisjóði Hafnarfjarðar á fundi hluthafa í sumar.
ÞÝSKALAND, AP Björgunarsveitar-
menn grófu lík þriggja barna til
viðbótar úr rústum skautahallar
í bænum Bad Reichenhall syðst í
Þýskalandi í gær, tveimur dögum
eftir að þakið á byggingunni
hrundi í mikilli snjókomu. Leit
hélt áfram að fertugri konu sem
enn var saknað.
Alls var í gær búið að staðfesta
dauða fjórtan manna í slysinu en
þar af eru níu börn. Benedikt XVI
páfi, sem ólst upp skammt frá
slysstaðnum, lýsti hryggð sinni
yfir harmleiknum í skeyti til bæj-
arbúa í gær. ■
Skautahallarslys í Þýskalandi:
Tala látinna
komin í fjórtán
SORG Í ALPABÆ Aldraður íbúi
Bad Reichenhall stillir upp kerti á
bráðabirðgaminnismerki um fórnarlömb
slyssins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Árás á Íran „möguleg“ Dan Halutz,
yfirmaður ísraelska heraflans, sagði í
viðtali við útvarp Ísraelshers í gær að
kjarnorkuáætlun Írana sé „hægt að
eyðileggja.“ Hann skýrði þessi orð sín
ekki frekar. Ísraelskir stjórnmálamenn
hafa opinberlega rætt möguleikann á
hnitmiðaðri hernaðarárás á Íran til að
gera út af við meintar tilraunir Írana til
að koma sér upp kjarnorkuvopnum.
ÍSRAEL
PALESTÍNA, AP Herskáir
Palestínumenn beittu stolinni
jarðýtu til að brjóta gat á vegginn
á landamærum Gazasvæðisins
og Egyptalands í gær. Þeir
hindruðu umferð og hertóku
stjórnarbyggingar á staðnum.
Þessar ólöglegu aðgerðir eru
alvarlegasta uppreisnin gegn valdi
Palestínuleiðtogans Mahmouds
Abbas frá því hann tók við því
hlutverki. Uppreisnarmennirnir
eru úr herskáum armi Fatah-
hreyfingar Abbas. Þeir kröfðust
þess að foringi þeirra yrði
látinn laus, en hann situr í
gæsluvarðhaldi í tengslum við
mannrán á þremur Bretum á
Gaza nýlega. Berserksgangur
mannanna þykir bera vott um það
vaxandi stjórnleysi sem ríkir á
Gaza frá því Ísraelsher hafði sig
þaðan á brott í september. ■
Stjórnleysi á Gaza:
Jarðýtu beitt á
landamærin
HERSKÁIR STORKA ABBAS Liðsmaður
Al-Aqsa-píslarvottanna, herskás arms
Fatah-hreyfingarinnar, á vettvangi við
landamæravegginn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP