Fréttablaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 53
5. janúar 2006 FIMMTUDAGUR 37
Óperan Öskubuska eftir Rossini
verður aðalverkefni Íslensku
óperunnar á vormisserinu. Æfingar
eru nú hafnar á óperunni, sem
verður frumsýnd 5. febrúar og sýnd
alls tíu sinnum.
Öskubuska er reglulega á fjölum
helstu óperuhúsa víðs vegar um
heiminn, en þetta er í fyrsta skipti
sem hún er sett upp hér á landi.
Með hlutverk Öskubusku fer
Sesselja Kristjánsdóttir, en hún er
ein af okkar fremstu mezzó-sópran
söngkonum. Hlutverk prinsins,
Ramiros, syngur Garðar Thór
Cortes en hann hefur heldur betur
slegið í gegn að undanförnu og var
geisladiskur hans, Cortes, söluhæsti
geisladiskurinn fyrir jólin.
Einar Th. Guðmundsson syngur
hlutverk Alidoros, en Davíð Ólafsson,
syngur hlutverk stjúpföðurins, Don
Magnificos.
Hlín Pétursdóttir syngur
hlutverk stjúpsysturinnar Clorindu,
en Hlín hefur að mestu leyti starfað
í Þýskalandi síðustu ár en er nú flutt
heim og syngur nú aftur í óperunni
eftir nokkura ára hlé. Anna Margrét
Óskarsdóttir fer síðan með hlutverk
stjúpsysturinnar Tisbe og hinn
ástsæli söngvari Bergþór Pálsson
syngur hlutverk Dandinis sem er
þjónn prinsins.
Hljómsveitarstjóri er tónlist-
arstjóri óperunnar Kurt Kopecky,
en leikstjórinn verður Paul Suter.
SÖNGVARAR OG AÐRIR AÐSTANDENDUR ÖSKUBUSKU Myndin var tekin á einni af fyrstu
æfingum óperunnar Öskubusku eftir Rossini, sem frumsýnd verður í Íslensku óperunni 5.
febrúar.
Æfingar hafnar á Öskubusku
SKÁLDVERK - KILJUR
1 BJARGIÐ OKKURHUGLEIKUR DAGSSON
2 LITBRIGÐAMYGLAKRISTIAN GUTTESEN
3 SKUGGA BALDURSJÓN
4 ALKEMISTINNPAOLO COELHO
5 NORNAVEIÐAR - ÍSFÓLKIÐ IIMARGIT SANDEMO
6 GRAFARÞÖGNARNALDUR INDRIÐASON
7 ÁLAGAFJÖTRAR - ÍSFÓLKIÐ I MARGIT SANDEMO
8 FORÐIST OKKURHUGLEIKUR DAGSSON
9 LEVÍATAN - MORÐINGI UM BORÐBORIS AKÚNIN
10 DA VINCI LYKILLINNDAN BROWN
11 KLEIFARVATNARNALDUR INDRIÐASON
12 DAUÐARÓSIR ARNALDUR INDRIÐASON
13 TÁR GÍRAFFANSALEXANDER MCCALL SMITH
14 DAUÐINN Í FENEYJUMTHOMAS MANN
15 HÚS ÚR HÚSIKRISTÍN MARJA BALDURSDÓTTIR
SKÁLDVERK - INNBUNDNAR BÆKUR
1 DJÖFLATERTANMARTA MARÍA JÓNASDÓTTIR OG
ÞÓRA SIGURÐARD.
2 HÆTTIR OG MÖRKÞÓRARINN ELDJÁRN
3 SKUGGI VINDSINSCARLOS RUIZ ZAFÓN
4 NÁUNGINN Í NÆSTU GRÖFKATARINA MAZETTI
5 BLÓMIN Í ÁNNI
- SAGA FRÁ HÍRÓSÍMA
EDIT MORRIS
6 VERÓNÍKA ÁKVEÐUR AÐ DEYJAPAOLO COELHO
7 ZORRO - SAGAN Á BAKVIÐ
GOÐSÖGNINA
ISABEL ALLENDE
8 ÓVANALEG GRIMMDPATRICIA CORNWELL
9 KERTIN BRENNA NIÐURSANDOR MARAI
10 AFTURELDINGVIKTOR ARNAR INGÓLFSSON