Fréttablaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 49
Námsvild er þjónusta fyrir námsmenn sem gera kröfur.
Hún er sérsniðin að fjármálaþörfum námsmanna og
innifelur betri kjör og ýmis fríðindi.
Og ef þú skráir þig í Námsvild í janúar átt þú
möguleika á að vinna 2Gb iPod nano.
Kynntu þér málið á isb.is/namsvild
* gildir í eitt árgildir í eitt ár
100 fríar debetkortafærslur á ári
Persónugert debetkort
Bílalán fyrir námsmenn
Ókeypis kreditkort með ferðaávísun
Ókeypis fartölvutrygging*
1.500.000 kr. námslokalán
Hagstæðari yfirdráttarvextir
Bankaábyrgð á námslánum
Hagstætt tölvukaupalán
Ókeypis ISIC kort
Flott inngöngugjöf
... og margt fleira!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
3
4
2
3
Viltu vinna iPod nano?
Steven Spielberg ætlar víst ekki
að endurgera söngvamyndina
Mary Poppins þrátt fyrir orðróm
þess efnis.
„Ég hef aldrei heyrt neitt um
þetta og gæti ekki ímyndað mér
að Steven vilji endurgera þessa
klassísku mynd,“ sagði talsmaður
leikstjórans. Ekki er langt síðan
Sir Richard Eyre, leikstjóri leik-
húsuppfærslunnar á Mary Popp-
ins í London, sagðist hafa rætt við
Spielberg um að endurgera mynd-
ina. ■
Engin end-
urgerð
STEVEN SPIELBERG Leikstjórinn vinsæli
virðist ekki vera á leiðinni að endurgera
Mary Poppins.
Uppselt er á tónleika sem verða
haldnir í Laugardalshöll næst-
komandi laugardag til stuðnings
náttúruvernd á Íslandi.
Á meðal þeirra sem koma fram
verða Damon Albarn, Björk, Sigur
Rós og Damien Rice sem mætir
með nýja hljómsveit í farteskinu.
Orðrómur hefur verið uppi um að
Nick Cave muni einnig koma fram
á tónleikum en það hefur ekki
fengist staðfest. ■
Uppselt á
tónleikana
DAMIEN RICE Írski trúbadorinn mætir með
nýja hljómsveit á tónleikana í Höllinni.
Dave Grohl, forsprakki hljóm-
sveitarinnar Foo Fighters, segist
vera mikill aðdáandi bresku óláta-
belganna í Oasis.
Foo Fighters steig á svið með
Oasis á tónleikum á Þúsaldarvell-
inum í Cardiff þann 10. desember
og var Grohl hæstánægður með
samstarfið. „Ég dýrka Oasis. Það
er ekki hægt að komast hjá því að
dýrka þá því þeir semja svo ótrú-
lega góða tónlist,“ sagði Grohl í
spjalli við NME. „Það eru í raun
fáar hljómsveitir sem er ekki
hægt að komast hjá því að dýrka
með því bara að vera svona rosa-
lega góðar. Ég veit að þeir virka
óheflaðir í viðtölum en ef þú sest
með þeim á bar og færð þér í glas
með þeim þá muntu skemmta þér
frábærlega,“ sagði Grohl. „Tón-
listin þeirra er ótrúlega góð og
lögin eru virkilega grípandi. Ég
ber mikla virðingu fyrir þeim.“ ■
Mikill aðdáandi Oasis
Fyrrverandi trommari Nirvana ber mikla
virðingu fyrir Oasis. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Gamanmynd Monty Python-hóps-
ins, Life of Brian, hefur verið valin
besta gamanmynd allra tíma af
áhorfendum Channel 4 í Bretlandi.
Um 22 þúsund manns greiddu
atkvæði í skoðanakönnuninni sem
var gerð nú rétt fyrir jólin.
Í Life of Brian er stólpagrín gert
að biblíusögum og sögunni af kross-
festingu Jesú Krists. Í öðru sæti á
listanum er kvikmyndin Airplane
með Leslie Nielsen í aðalhlutverki.
Öllum að óvörum lenti kvikmynd-
in Shaun of the Dead í þriðja sæti
listans. Monty Python-hópurinn á
tvær myndir á topp tíu listanum
þar sem kvikmyndin Monty Pyt-
hon and the Holy Grail lenti í sjötta
sæti listans.
Listinn yfir tuttugu bestu gam-
anmyndir sögunnar er sem hér
segir:
Life of Brian besta gamanmyndin
1. Monty Python‘s Life of Brian
2. Airplane!
3. Shaun of the Dead
4. Austin Powers: International Man of
Mystery
5. South Park: Bigger, Longer & Uncut
6. Monty Python and the Holy Grail
7. American Pie
8. Blazing Saddles
9. There‘s Something About Mary
10. This Is Spinal Tap
11. Annie Hall
12. The Blues Brothers
13. Groundhog Day
14. The Naked Gun: From the Files of
Police Squad
15. Wayne‘s World
16. Some Like It Hot
17. Dumb and Dumber
18. Meet the Parents
19. Clerks
20. Young Frankenstein
Landstjórinn og frændi hans,
Biggus Dickus, ávarpa fjöldann í
kvikmyndinni Life Of Brian.