Fréttablaðið - 05.01.2006, Qupperneq 2
2 5. janúar 2006 FIMMTUDAGUR
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
DÓMSMÁL Karl Sigurbjörnsson
biskup segist ekki hafa vitað fyrr
en að loknum umsóknarfresti um
stöðu sendiráðsprests í London sum-
arið 2003 að tengdasonur hans, séra
Sigurður Arnarson, hefði sótt um
starfið. Aðalmeðferð fór í gær fram í
Héraðsdómi Reykjavíkur í máli sem
séra Sigríður Guðmarsdóttir, hinn
umsækjandinn um starfið, höfðaði
eftir að ljóst var að séra Sigurður
hafði verið skipaður í það.
Málið snýst að mestu um hæfi
biskups og aðkomu að málinu. Í
stefnu séra Sigríðar er hann sagður
brotlegur við stjórnsýslulög og talið
að hann hefði átt að segja sig frá
málinu mun fyrr en hann gerði, auk
þess sem gagnrýnd er ýmis önnur
aðkoma hans að prestsskipuninni,
svo sem að hann hafi sjálfur skipað
formann nefndar sem fjalla skyldi
um hæfi umsækjenda, eftir að
tengdasonur hans hafði skilað inn
umsókn. Karl Sigurbjörnsson bar
fyrir héraðsdómi í gær að viðtekin
venja væri að opna ekki umsóknir
fyrr en að umsóknartíma liðnum
og því hefði ekki verið ljóst fyrr en
þá að séra Sigurður hefði sótt um.
Hann kvaðst þó hafa haft grun um
að svo kynni að fara og hafði enda
haft á því orð fyrr um sumarið 2003
við Sigurð Sigurðarson vígslubiskup
að svo kynni að fara að Karl þyrfti
sjálfur að víkja sæti í málinu.
Séra Sigríður rakti málið
eins og það sneri að henni fyrir
dómi. Hún sagði að sér hefði ekki
verið kunnugt um að biskup hefði
skipað séra Sigurður Arnarson
sendiráðsprest í afleysingum séra
Jóns Aðalsteins Baldvinssonar,
fyrrverandi sendiráðsprests, í leyfi
hans, áður en til þess kom að staðan
losnaði. Í stefnu hennar segir að
afleysingastaðan hafi ekki verið
auglýst með eðlilegum hætti. Biskup
sagði ekki hafa legið fyrir að séra Jón
Aðalsteinn myndi láta af embætti að
leyfi loknu.
Sigríður kvaðst hafa orðið forviða
þegar henni var tjáð að hún hefði ekki
hlotið starfið. „Enda taldi ég mig
hafa yfirburði, bæði hvað varðaði
starfsreynslu og starfsmenntun.“
Sverrir Haukur Gunnlaugsson
sendiherra átti sæti í nefndinni
sem meta átti hæfi umsækjendanna
tveggja, auk séra Jóns Bjarman
og Unu Bjarkar Ómarsdóttur,
deildarstjóra hjá Tryggingastofnun.
Hann upplýsti að Una Björk hefði
viljað ráða Sigríði sökum menntunar
hennar og starfsreynslu, en hann og
Jón Bjarman hefðu verið sammála
um að séra Sigurður væri hæfari.
Málið dæmir Skúli Magnússon
héraðsdómari og er dóms að vænta
innan tíðar. olikr@frettabladid.is
SIGRÍÐUR GUÐMARSDÓTTIR OG SIF
KONRÁÐSDÓTTIR Aðalmeðferð fór fram í
gær í máli Sigríðar á hendur Biskupsstofu
vegna skipunar sendiráðsprests í London.
Biskup ber af sér
sakir um spillingu
Biskup neitar óeðlilegum afskiptum af ráðningu sendiráðsprests. Vitnaleiðslur
voru í gær í máli séra Sigríðar Guðmarsdóttur á hendur Biskupsstofu. Hún sótti
um starfið sem séra Sigurður Arnarson, tengdasonur biskups, var skipaður í.
BISKUPINN OG SENDIHERRANN Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, og Sverrir
Haukur Gunnlaugsson sendiherra báru báðir vitni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
PARÍS/NEW YORK, AP Árið 2005 hafa
að minnsta kosti 63 fréttamenn
farist víðs vegar um heim í starfi
eða vegna starfs síns. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu samtakanna
Fréttamenn án landamæra sem
birt var í gær.
Á þriðjudag sögðu önnur
alþjóðleg blaðamannasamtök,
Samtök um vernd fréttamanna,
að 47 fréttamenn hefðu farist á
árinu, og að meira en 75 prósent
þeirra hefðu verið myrtir til að
þagga niður í þeim eða til að hegna
þeim fyrir unnin störf. Það gerir
morð að algengustu atvinnutengdu
dauðaorsök fréttamanna.
Írak er nú orðið hættulegasti
vinnustaður stéttarinnar. Frétta-
menn án landamæra segja 76
blaðamenn hafa farist í Írak síðan
Bandaríkin réðust þar inn árið
2003, eða fleiri en fórust í hinum
20 ára löngu átökum í Víetnam. Hin
samtökin segja fórnarlömbin vera
60 og að bandarískir hermenn hafi
drepið 13 þeirra.
„Stríðið í Írak gæti leitt mann til
þess að halda að fréttamennirnir
farist á vígvellinum, en sannleikur-
inn er sá að þrír af hverjum fjórum
fréttamönnum sem deyja voveiflega
í heiminum í dag eru eltir uppi og
myrtir, og morðingjar þeirra þurfa
sjaldnast að svara fyrir gjörðir
sínar,“ segir Ann Cooper, formaður
Samtaka um vernd fréttamanna.
Frá árinu 1992 hafa innan við
15 prósent morðingja fréttamanna
verið handteknir og færðir fyrir
rétt, samkvæmt upplýsingum
samtakanna. - smk
Morð algengasta orsök atvinnutengdra dauðdaga fréttamanna:
63 blaðamenn drepnir í fyrra
HERMAÐUR Í ÍRAK Stríðið í Írak hefur gert
það land hættulegast fréttamönnum, en
76 blaðamenn hafa týnt þar lífi síðan árið
2003. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLA Rúmlega 1,4 kíló af hassi
hafa fundist í húsakynnum manns
í Vestmannaeyjum sem situr í
gæsluvarðhaldi. Einnig hafa fundist
um 20 grömm af amfetamíni.
Auk mannsins hafa karl og þrjár
konur verið handtekin, en sleppt að
loknum yfirheyrslum.
Fólkið var handtekið á gaml-
ársdag og maðurinn úrskurðaður
í gæsluvarðhald fram á laugardag
þá um kvöldið.
Síðasti fíkniefnafundurinn var á
þriðjudagskvöldið, um 130 grömm
af hassi, en kvöldið áður fannst
um kíló af hassi. Á gamlársdag
fundust um 300 grömm af hassi og
20 grömm af amfetamíni. - óká
Maður áfram í varðhaldi:
Enn finnst
hass í Eyjum
KÍNA, AP Forráðamenn fyrirtækis í
Norður-Kína segjast eingöngu ráða
fólk fætt á ári hundsins í vinnu.
„Við teljum fólk sem fætt er á
ári hundsins hafa góð persónu-
leikaeinkenni, svo sem tryggð og
heiðarleika,“ segir talsmaður fyr-
irtækisins, Jilin Jiangshan, sem
sérhæfir sig í starfsmannastjórn-
un. Talsmaðurinn er sjálfur fædd-
ur á ári hundsins.
Næsta ár, samkvæmt fornu
tunglalmanaki Kínverja, er ár
hundsins og hefst það 29. janúar
næstkomandi samkvæmt okkar
tímatali. Kínversku stjörnumerk-
in eru tólf og varir hvert þeirra í
ár. - smk
Kínversk vinnumenning:
Bara „hundar“
ráðnir í vinnu
BAGDAD, AP Landskjörstjórn Íraks
tilkynnti á þriðjudag að enn væru
tvær vikur þangað til endanleg
úrslit úr íröksku þingkosningunum
liggja fyrir en rúmur hálfur
mánuður er síðan þær fóru fram.
Þrátt fyrir að úrslitin séu ekki
ljós eru viðræður um myndun
ríkisstjórnar í fullum gangi. Mas-
oud Barzani, annar helsti leiðtogi
Kúrda, náði í byrjun vikunnar
samkomulagi við oddvita stærstu
hreyfingar súnnía um að þeir
tækju sæti í nýrri ríkisstjórn. For-
sætisráðherra hennar gæti orðið
Ibrahim al-Jaafari, sjíaleiðtoginn
sem hefur setið í því embætti síðan
í apríl, en ekki hafði verið búist við
að hann héldi sæti sínu. ■
Sátt í sjónmáli í Írak:
Súnníar gætu
sest í stjórnina
ÁR HUNDSINS Kínversk stúlka skoðar
gullhunda. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MYND
LAGT Á RÁÐIN Barzani og al-Jaafari hittust
í Irbil um helgina og skeggræddu nýja
ríkisstjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPURNING DAGSINS
Guðmundur, fengu gestirnir
upp í kok af ráðherranum?
Ég lofa því vífilengjulaust að fólkið
fékk upp í kok af ráðherranum.
Guðmundur Jónsson er forstöðumaður
Byrgisins sem hóf tíunda starfsár sitt í ár og
sló af því tilefni upp veislu, þar sem meðal
annars var boðið upp á ráðherratertu og
vífilengjur.
KJARAMÁL Þrjátíu og þrjár upp-
sagnir starfsmanna leikskóla í
Kópavogi liggja nú fyrir og þar
af hafa um tuttugu sagt starfi
sínu lausu í þessari viku. Sesselja
Hauksdóttir, leikskólafulltrúi hjá
Kópavogsbæ, segir að stór hluti
þeirra uppsagna sem hafa borist
upp á síðkastið sé vegna óánægju
með launakjörin. „Það eru reynd-
ar margir sem taka það fram að
þeir muni draga uppsögnina til
baka ef kjörin breytast,“ segir
hún.
Að sögn Sesselju verður beðið
með að ræða launamál leikskóla-
kennara þangað til alaunamála-
ráðstefna Sambands íslenskra
sveitarfélaga er lokið.
Í leikskólanum Rjúpnahæð
hefur fjöldi starfsmanna sagt
upp. Að sögn Gróu Hafsteins-
dóttur leikskólastjóra tengjast
allar uppsagnirnar óánægju með
launakjör. „Það er mikil óánægja
með launakjörin,“ segir Gróa.
Sömu sögu er að segja af leik-
skólanum Núpi, en þar hafa 14
starfsmenn sagt upp síðustu þrjá
daga, meðal annars allir deildar-
stjórarnir. Samkvæmt heimildum
blaðsins hélt foreldrafélag barna
á Núpi neyðarfund vegna málsins
í gærkvöldi. - sk
LEIKSKÓLINN DALUR Starfsmannaekla hefur verið á leikskólanum Dal í Kópavogi. Svipað
ástand hefur verið á öðrum leikskólum í bænum.
Þrjátíu og þrír starfsmenn í leikskólum Kópavogs hafa sagt upp störfum:
Uppsagnir streyma inn
Bílvelta á Austurlandi Ökumaður
missti stjórn á bíl sínum með þeim af-
leiðingum að hann valt nálægt bænum
Krossi í Berufirði um hádegisbilið í gær.
Þrennt var í bílnum en ökumaður þurfti
einn aðhlynningu. Aksturskilyrði voru
góð að sögn lögreglu. Tildrög slyssins
LÖGREGLUFRÉTTIR
Viðræður eru í gangi Reykja-
víkurborg og olíufélögin þrjú, Esso,
Skeljungur og Olís, eiga enn í við-
ræðum um skaðabætur vegna ólöglegs
verðsamráðs olíufyrirtækjanna í
útboðum borgarinnar. Heimildir blaðs-
ins herma að tekist sé á um bótaupp-
hæð. Borgin hefur krafist rúmlega 150
milljóna króna.
SKAÐABÓTAMÁL