Fréttablaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 18
18 5. janúar 2006 FIMMTUDAGUR
„ORÐRÉTT“
nær og fjær
Fjölmenni var við messu eldri
borgara í Háteigskirkju í fyrra-
dag. Áætlað er að um 280 manns
hafi sótt messuna sem er held-
ur meira en gengur og gerist við
hefðbundnar messur.
Tómas Sveinsson sóknarprest-
ur messaði og Gerðubergskórinn
söng. Þorgrímur Kristmundsson
kórfélagi lék á heimasmíðaða
munnhörpu sína við messuna
en heldur fátítt er að leikið sé á
munnhörpu við messu.
Messur eldri borgara eru
haldnar reglulega og er aðsókn
jafnan góð. ■
Guðsþjónusta eldri borgara í Háteigskirkju:
Blásið í munnhörpu
í messu eldri borgara
BLÁSIÐ Í MUNNHÖRPUNA Þorgrímur Kristmundsson lék á munnhörpuna sína við messu
eldri borgara á þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þorri gengur í garð föstudaginn
20. janúar að þessu sinni og hefj-
ast um leið hefðbundin og rótgróin
þorrablót um land allt. Þorrinn er
snemma á ferðinni þetta árið en
samkvæmt upplýsingum frá Þor-
steini Sæmundssyni stjörnufræð-
ingi getur þorri fyrst hafist 19. jan-
úar. Verður sú raunin á næsta ári.
Þorri hefst á föstudegi í þrett-
ándu vikur vetrar og gerir gangur
himintunglanna það að verkum að
dagsetning þess dags getur sveifl-
ast frá 19. janúar til 26. janúar. Er
fyrsti dagur þorra nefndur bónda-
dagur.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er undirbúningur þorra-
blóta þegar hafinn, bæði hvað
varðar aðföng og skemmtiatriði. ■
SÚRIR HRÚTSPUNGAR Gjarnan snæddir á
þorranum
Gangur himintunglanna:
Þorrinn óvenju
snemma á ferð
Sú tíð er liðin að
ferðaskrifstofurnar kynni
sumarleyfisferðir sínar um
mánaðamótin janúar/febrúar.
Sólarlandaferðir sumarsins
eru komnar í sölu og margir
hafa þegar bókað dvöl.
„Þetta byrjaði miklu fyrr núna en
undanfarin ár og allt var komið í sölu
vel fyrir jól,“ segir Helgi Eysteinsson
hjá Úrvali Útsýn. Fjölskyldufólk
er jafnan fyrst til að ganga frá
sumarleyfinu og vill hafa vaðið
fyrir neðan sig. „Fjölskyldufólk veit
að framboð á íbúðum með tveimur
svefnherbergjum er mjög lítið og
því þarf að bóka strax. Þegar hefur
hellingur af fólki komið og gengið
frá sínu sumarleyfi og gerði það
um leið og ferðirnar komu í sölu.“
Margir bókuðu sína ferð strax í
desember og svo hefur mikið verið
að gera í upphafi nýs árs.
Áður fyrr fylgdi því nokkurt
umstang þegar ferðaskrifstofurnar
kynntu sumarleyfisferðir sínar
og var það jafnan gert um
mánaðamótin janúar/febrúar.
Hélst það í hendur við að nýtt
kortatímabil væri í deiglunni en
fólk hugaði ekki að sumarleyfinu
fyrr en jólaneyslan hafði verið gerð
upp við kortafyrirtækin. Sú tíð er
liðin, nú voru ferðirnar komnar í
sölu í desember og örtröðin talsverð
á ferðaskrifstofunum. Helgi veit
þó að þrátt fyrir almennt góðan
efnahag geta ekki allir pantað
sér ferðina sína strax. „Auðvitað
bíða margir og sumir hafa af því
áhyggjur hvort eitthvað verði enn
til þegar nýtt kortatímabil hefst.“
Ferðavenjur Íslendinga hafa um
margt breyst á fáum árum og fara
margir í nokkrar styttri ferðir frá
hausti fram á vor. Ekkert hefur
dregið úr lengri sumardvölum
á sólarströndum og virðast
borgarferðir og heimsóknir á
framandi slóðir hrein viðbót. ■
STRANDLÍF Sem fyrr munu Íslendingar flykkjast til sólarlanda í sumar og margir hafa þegar pantað sér ferð. Ferðaskrifstofurnar bíða ekki
lengur fram í febrúarbyrjun með að kynna sumarleyfisferðirnar. Myndin var tekin í Sydney í Ástralíu á nýársdag en þar er nú sumar.
MYND/AP
Sólarlandaferðirnar renna út
„Mér líst ofboðslega vel á þetta og Eiður á
þetta svo sannarlega skilið,“ segir Regína
Ósk Óskarsdóttir söngkona um val íþrótta-
fréttamanna á Eiði Smára Guðjohnsen
sem íþróttamanni ársins 2005.
Hún fygldist með sjónvarpsútsendingu
frá athöfninni í fyrrakvöld og varð snortin.
„Ég fékk tár í augun þegar hann afhenti
peningana til einstakra barna, mér fannst
það einstaklega vel gert hjá honum.“
Eiður Smári hlaut hálfa milljón króna að
launum frá Íslandsbanka fyrir að vera
útnefndur íþróttamaður ársins en gaf
umsvifalaust fjárhæðina til samtakanna
Einstök börn.
Regína Ósk segist ekki fylgjast grannt með
knattspyrnu en fréttir þó þegar eitthvað
markvert gerist. En ætli hún haldi með
Chelsea í ensku knattspyrnunni? „Eigum
við ekki að segja það bara,“ segir hún og
hlær. „Fyrst Eiður er í Chelsea þá held ég
með Chelsea.“
SJÓNARHÓLL
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN
ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS 2005
Á þetta svo
sannarlega
skilið
REGÍNA ÓSK
Alltaf gott að vera
bjartsýnn
„Ég er tiltölulega bjartsýnn
á gengi landsliðsins og
sannfærður um að við
getum betur en við sýndum
í fyrra.“
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN
KNATTSPYRNUMAÐUR OG
ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS Í
FRÉTTABLAÐINU.
Þvílík hneisa
„Það getur hver sem er
leigt Laugardalshöllina
til að halda tónleika, það
eina sem þarf er leyfi frá
lögreglustjóra sem kostar
5.000 krónur.“
EINAR BÁRÐARSON
TÓNLEIKAHALDARI ER
GAGNRÝNINN Á AÐ ENGAR
REGLUR GILDI UM TÓNLEIKAHALD.
MARKAÐURINN
„Ég hafði það bara nokkuð gott
um hátíðarnar, þakka þér fyrir“,
segir Helga Guðmundsdóttir, forseti
Kvenfélagasambands Íslands, þegar
blaðamaður forvitnast um hvernig
hún eyddi dögunum um hátíðirnar.
Helga hefur unnið sem kirkjuvörður í
Langholtskirkju í tvö og hálft ár. „Það
var mikið að gera fyrir jólin vegna
þess mikla og lifandi starfs í kringum
kirkjuna. Maður varð að vinna á
aðfangadagskvöld og svo voru jólin svo
stutt að ég var mætt til vinnu nánast
daginn eftir“, segir Helga og hlær.
Á Þorláksmessu tók Helga á móti
miklum fjölda gesta og ættingja eins
og venjulega. „Ég er alltaf með opið
hús á Þorláksmessu, þá koma vinir og
vandamenn í heimsókn eftir að búið er
að loka búðum og fá sér hangikjöt og síld. Þetta hefur verið
hefð hjá mér í áratugi“, segir hún.
Framundan á nýju ári hjá henni er að efla félagsstarfið í
kvenfélögunum, sem nú þegar er mikið og gott. „Við erum að
undirbúa landsþing sem verður í sumar á Akureyri. Landsþing
okkar er haldið á þriggja ára fresti og þá koma saman
hundrað til tvö hundruð konur úr kvenfélögum landsins
og það er gríðarlega skemmtilegt“, segir stoltur forseti
sambandsins. Samband kvenfélaga hefur verið starfrækt í
76 ár í sumar og eru í því um tíu þúsund konur. Síðast var
landsþingið haldið á Egilsstöðum.
Kvenfélögin réðust í dúkkugerð á síðasta ári í samvinnu við
Unicef. „Við konurnar í kvenfélögunum saumuðum dúkkur
og það fóru um ellefu þúsund vinnustundir í sjálfboðavinnu í
gerð þeirra. Þær seldust eins og heitar lummur og söfnuðust
í kringum fjórar milljónir fyrir Unicef“.
Spurð hvort hún hafi strengt einhver áramótaheit svaraði
hún: „Nei, það geri ég aldrei. Þau eru eiginlega bara til þess
gerð til þess að svíkja þau“.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR, FORSETI KVENNFÉLAGASAMBANDS ÍSLANDS
Söfnuðu 4 milljónum fyrir Unicef
Ég slepp
alltaf!
GRÆDDI 50 MILLJÓNIR
SIGURÐUR G. GUÐJÓNSSON OG FÉLAGAR HAFA
SÖLSAÐ UNDIR SIG SPARISJÓÐ HAFNARFJARÐAR
RÁÐHERRA
ÞVÆR
HENDUR
SÍNAR
DV2x15 4.1.2006 21:23 Page 1