Fréttablaðið - 05.01.2006, Qupperneq 45
FIMMTUDAGUR 5. janúar 2006 29
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
iICEX-15 5.720 +1,17% Fjöldi viðskipta: 821
Velta: 9.888 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 51,70 +2,80% ... Atorka
6,50 +1,60% ... Bakkavör 51,40 +0,00% ... Dagsbrún 6,06 +0,50%
... FL Group 20,00 +3,10% ... Flaga 4,61 +0,00% ... Íslandsbanki
18,50 +2,80% ... KB banki 772,00 +1,20% ... Kögun 60,90 -0,80%
... Landsbankinn 26,10 +0,00% ... Marel 66,80 +2,80% ... Mosaic
Fashions 19,00 -0,50% ... SÍF 4,05 -1,00% ... Straumur-Burðarás
16,50 +2,50% ... Össur 115,50 -0,40%
MESTA HÆKKUN
FL Group +3,09%
Íslandsbanki +2,78%
Marel +2,77%
MESTA LÆKKUN
Mosaic -1,57%
Icelandic Group -1,05%
Dagsbrún -1,00%x,xx%
Ísland hækkar um þrjú
sæti á lista yfir frjálsustu
hagkerfi heims.
Á lista yfir frjálsustu hagkerfi
heims er Ísland í fimmta sæti.
Sé einungis horft til Evrópu og
Bandaríkjanna er Ísland í þriðja
sæti fyrir neðan Írland og Lúxem-
borg. Hækkar landið um þrjú sæti
á milli ára. Hong Kong er eins og í
fyrra í fyrsta sæti.
Heritage Foundation og við-
skiptablaðið The Wall Street
Journal standa árlega að útgáfu
frelsisvísitölu þar sem gefin er
einkunn fyrir ákveðna þætti efna-
hagslífsins í 161 landi. Er þetta í
tólfta sinn sem það er gert.
Minni skattbyrði á einstaklinga
og fyrirtæki, lítil þátttaka ríkis-
ins í atvinnulífinu og góð stjórn
peningamála eru liðir sem hækka
Ísland á listanum. Vegur það upp
á móti því að landið fær lægri ein-
kunn en áður fyrir takmarkanir
á fjárfestingum útlendinga hér á
landi, sérstaklega á fasteignum og
í sjávarútvegi.
Með því að innleiða reglur
Evrópusambandsins um milli-
ríkjaviðskipti og auka útgjöld rík-
issjóðs datt Eistland niður listann.
Danmörk og Svíþjóð fengu líka
verri útkomu í ár.
Þýskaland var nú flokkað með
frjálsum hagkerfum í fyrsta skipti
og Bandaríkin með tíu frjálsustu
hagkerfunum, en landið var í
tólfta sæti í fyrra.
Af 45 löndum í Evrópu og
Norður-Ameríku fengu 33 betri
einkun í ár en tíu verri. Sé horft
á öll löndin 161 eru hagkerfi 99
þeirra frjálsari í ár miðað við í
fyrra. Fimm standa í stað. Unnið
er með tölur frá árinu 2004 og þær
samræmdar milli landa. - bg
Hagkerfi Íslands það
fimmta frjálsasta í heimi„Líklegasta framvindan í geng-
ismálum er sú að því styrkingarferli
krónunnar sem hófst við upphaf
núverandi stóriðjuframkvæmda í
ársbyrjun 2002 sé lokið. Þegar litið
er á árið í heild mun krónan líklega
leita smátt og smátt til baka,“ segir
Björn R. Guðmundsson, sérfræð-
ingur í greiningardeild Landsbank-
ans.
Í nýútgefnu riti greiningardeild-
ar bankans; Efnahagsmál og
skuldabréfamarkaður, kemur fram
að gengisvísitalan verði komin
nálægt 120 stigum í lok árs og að
fram undan sé nýtt gengistímabil
þar sem vísitalan verði á bilinu 105
til 120 stig. Vísitalan stendur nú í
tæpum hundrað og fimm stigum.
Telur greiningardeildin að áhrif-
in af útgáfu erlendra skuldabréfa
sem koma á gjalddaga seinni hluta
árs 2006, auk mikils viðskiptahalla
við útlönd, muni breyta andanum á
markaðnum og grafa undan styrk-
leika krónunnar.
Sá fyrirvari er þó settur að
stýrivaxtahækkanir Seðlabankans
og auknar erlendar skuldir kunni
að tefja veikingarferlið.
- jsk
Styrkingarferli
krónunnar lokið
Gengi dollarans gagnvart evru
og yeni lækkaði tvo fyrstu við-
skiptadaga ársins. Helsta ástæða
lækkunarinnar er talin sú að
þegar Seðlabanki Bandaríkjanna
hækkaði vexti í desember síð-
astliðnum var gefið til kynna að
vaxtahækkunartímbili bankans
væri lokið. Síðustu upplýsingar
um framleiðslu ollu einnig von-
brigðum og var það til að veikja
dollarann frekar, segir í Financial
Times. Seðlabankinn hefur hækk-
að vexti þrettán sinnum í röð og
er það talið mikilvægasti þáttur-
inn í því að dollarinn hefur hækk-
að um 15,2 prósent gagnvart evru
og yeni á árinu 2005. Sérfræð-
ingar segja dollarann nú veikan
því búist er við að evrópski seðla-
bankinn muni hækka vexti nú í
janúar.
Dollarinn veikist
Búist er við að gengi dollarans muni lækka
á árinu.
FRÁ KÁRAHNJÚKUM Því styrkingarferli
krónunnar sem hófst við upphaf yfirstand-
andi stóriðjuframkvæmda árið 2002 kann
að ljúka á árinu.
Hlutabréf í bresku tískuverslan-
akeðjunni Next hækkuðu mikið
í Kauphöllinni í London eftir að
félagið sendi frá sér jákvæða
afkomuviðvörun.
Félagið segir að hagnaður fyrir
árið 2005 verði á bilinu 435-450
milljónir punda, eða um fimm-
tíu milljarðar króna, sem er ofar
væntingum markaðsaðila.
Einnig kemur fram að sala
félagsins jókst um tíu prósent frá
ágústbyrjun til aðfangadags miðað
við sama tíma í fyrra. Vöxturinn
kemur að miklu leyti til vegna
nýrra verslana. Án tilkomu þeirra
dregst velta Next saman um fáein
prósent.- eþa
Next hækk-
ar í verði
Frjálsustu hagkerfi heims
1. Hong Kong
2. Singapúr
3. Írland
4. Lúxemborg
5. Ísland
5. Bretland
7. Eistland
8. Danmörk
9. Ástralía
9. Nýja-Sjáland
9. Bandaríkin