Fréttablaðið - 05.01.2006, Síða 54

Fréttablaðið - 05.01.2006, Síða 54
 5. janúar 2006 FIMMTUDAGUR38 bio@frettabladid.is Hryllingsmyndin Hostel verður heimsfrumsýnd á Íslandi og í Bandaríkjunum á morgun. Nokkrir Íslendingar hafa þó þegar fengið forskot á sæluna því leikstjórinn, Eli Roth, og einn framleiðendanna, Quentin Tarantino, komu með myndina til landsins í nóvember og sýndu hana í lok kvikmyndahátíðarinnar IFF. Hostel er sannkallaður „splatter“ þar sem pyntingar, limlestingar og morð renna saman við kynsvall, drykkju og eiturlyfjaneyslu aðal- persónanna. Roth leggur ekki mikið upp úr því að bregða áhorfendum í Hostel, en gengur hins vegar reglulega fram af þeim með groddalegu ofbeldi og sem dæmi má nefna að hann notaði 570 lítra af gerviblóði við gerð myndarinnar og Tarantino lánaði honum útlimi sem brúðurin hjó af andstæðingum sínum í Kill Bill. Eli Roth vakti verðskuldaða athygli með frumraun sinni Cabin Fever en sú hryllingsmynd gaf subbuleg fyrirheit um að með Roth væri kominn fram á sjónarsviðið leikstjóri sem myndi hrista verulega upp í hryllingsmyndaflórunni. Roth virðist hafa fullkominn skilning á helstu eðlisþáttum hrollvekjunnar og blandar ofbeldi, nekt og kynlífi, skemmtilega saman. Hann er svo algerlega í fluggírnum í Hostel og ber brjóst og rassar taka álíka mikið pláss á tjaldinu og blóðsullið. Það breytir því þó ekki að allt svínvirkar þetta og Hostel svíkur ekki þá sem kunna að meta þvottekta „splatter“. Hostel fjallar um þrjá bakpokaferðalanga, tvo Banda- ríkjamenn og íslenska stuðboltann Óla sem þvælast um Evrópu í allsherjar sukkferð. Þeir eru ekki síst á höttunum eftir kynlífi og telja sig heldur betur komna í feitt þegar þeir hitta vægast sagt vergjarnar píur í Slóvakíu. Gellurnar eru þó síður en svo allar þar sem þær eru séðar og áður en okkar menn vita af eru þeir komnir í klærnar á glæpahyski sem býður auðmönnum að pynta og drepa fólk gegn veglegri greiðslu. Eyþór Guðjónsson leikur Íslendinginn Óla en Roth skrifaði hlutverkið sérstaklega með hann í huga. Það er langt síðan Íslendingur hefur fengið annað eins tækifæri í bíóbransanum og það hlýtur að kitla þjóðarstoltið að Eyþór muni á morgun birtast í yfir 3.000 kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum í gulu 66°norður úlpunni sinni með íslenska fánann á öxlinni. ■ Limlestir kynlífsfíklar JAY HERNANDES, EYÞÓR GUÐJÓNSSON OG DEREK RICHARDSON Ganga út í opinn dauðann þegar þeir láta kynhvötina draga sig í sukkferð til Slóvakíu. Leikstjórinn Tony Scott er einn besti hasarmynda- leikstjóri kvikmynda- borgarinnar og á að baki kvikmyndir eins og Top Gun og True Romance. Um helgina verður nýjasta afurð hans frumsýnd en það er kvikmyndin Domino sem byggð er á sannsögulegum atburðum. Úrvalslið leikara leggur Scott lið í þessari harðhausamynd sem hefur fengið misjafna dóma. Domino Harvey var til en hún var dóttir leikarans Laurence Harvey og fyrirsætunnar Sophie Wynn. Að hætti Hollywood hefur sögunni hins vegar verið lítillega breytt í þágu listarinnar. Þegar Domino var aðeins átta ára féll faðir hennar frá og móðir hennar reyndi að ala hana upp eftir bestu getu. Domino var andsnúin þeim lífsstíl sem henni var boðið upp á og kærði sig hvorki um glys né glaum fræga fólksins. Ævintýraþrá stúlkunnar var of mikil. Þegar Domino kemst svo í óformlegt inntökupróf fyrir verðandi hausaveiðara áttar hún sig á að þetta er það sem hún hefur verið að leita að. Stúlkan verður yfir sig hrifin af þessari vinnu, starfsfélögum sínum og harðneskjulegu umhverfi, móður sinni til mikils ama. Domino verður hluti af einhverju besta hausaveiðaragengi Bandaríkjanna sem er skipað þeim Ed Mosbey, Choco og Alf. Saman elta þau uppi glæpamenn á flótta undan réttvísinni og hafa hendur í hári þeirra með heldur óhefðbundnum aðferðum. Hróður gengisins verður svo mikill að sjónvarpsstöð ákveður að gera um þau raunveruleikaþáttaröð og það er ekki síst hinni snoppufríðu Domino að þakka að vinsældir þáttanna verða gríðarlegar. Þegar þau standa á hátindi frægðar sinnar lendir yfirmaður þeirra í fjárhagskröggum og neyðist til að etja þeim út í hættulegri verkefni en áður. Ofan á þetta bætist að alríkislögreglan hefur sitthvað við starfsemi hópsins að athuga. Tony Scott gerði fyrst vampíru- myndina The Hunger snemma á níunda áratugnum en þar voru þau David Bowie og Susan Sarandon í aðalhlutverkum. Stjarna leik- stjórans reis þó hratt á síðari hluta níunda áratugarins en þá leikstýrði hann stórsmellunum Top Gun og Beverly Hills Cop 2. Í kjölfarið fylgdu síðan misgáfulegar hasarmyndir en á fyrri hluta tíunda áratugarins gerði Scott sínar tvær bestu myndir: True Romance eftir handriti Quentins Tarantino og Crimson Tide með Denzel Washington og Gene Hackman. Það eru engir smáleikarar sem birtast í misstórum hlutverkum í þessari mynd. Mickey Rourke og Keira Knightley leika aðalhlut- verkin en þeim til halds og traust eru stjörnur á borð við Christop- her Walken, Menu Suvari, Macy Gray og Lucy Liu. Þar að auki fer Delroy Lindo með stórt hlutverk í myndinni. - fgg DOMINO OG FÉLAGAR Leikarabarnið Domino Harvey kveður lífsstíl hinna frægu og ríku og gengur til liðs við harðsnúna hausaveiðara. Fyrirsætan með blóðbragðið Þeir gerast ekki öllu svalari en Christopher Walken. Ef einhver annar leikari hefði átt jafnmargar lélegar myndir á ferli sínum væri hann sennilega kominn með hlutverk í sápuóperu eða væri daglegur gestur á síðum slúðurblaðanna fyrir ólöglegt athæfi. En ekki Christopher Walken. Honum er fyrirgefið allt enda virðist óþrjót- andi þörf fyrir leikarann. Christopher Walken lærði ungur að dansa og sýndi þá list í myndbandinu Weapon of Choice sem Spike Jonze gerði við lag Fatboys Slim fyrir skömmu. Á sínum yngri árum tók hann þátt í fjölda söngleikja og náði fljótt frama á því sviði. Hann hefur reyndar alltaf haldið tryggð við leiksviðið og hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir framlag sitt á þeim vettvangi. Walken skaust síðan óvenju hratt upp á stjörnuhimini hvíta tjaldsins með frammistöðu sinni sem litli bróðir Annie Hall í samnefndri kvikmynd Woodys Allen. Hann tryggði sér sess meðal þeirra bestu í myndinni The Deer Hunter eftir Michael Cimino, en þar var Walken ógleymanlegur í hlutverki Nicks sem fær taugaáfall í kjölfar veru sinnar í fangabúðum Víetnama. Þótt næstu myndir hafi ekki verið í sama gæðaflokki og tvær fyrrnefndu hefur Walken alltaf tekist að minna á sig og ekki fallið í gleymskunnar dá. Með reglulegu millibili tekst honum að sýna hversu sterkur leikari hann er og nægir þar að nefna King of New York, Pulp Fiction, Catch Me If You Can og nú síðast Wedding Crashers. Það er í nógu að snúast hjá Walken um þessar mundir, en hann leikur með Adam Sandler og Kate Beckinsale í kvikmynd eftir leikstjóra Wedding Singer, Frank Coraci. Þá er hann um þessar mundir viðstaddur upptökur á kvikmyndinni The Man of the Year sem Barry Levinson gerir. - fgg Öll mistökin fyrirgefin CHRISTOPHER WALKEN FRUMSÝNDAR UM HELGINA DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM Hostel Internet Movie Database 6,5 / 10 Metacritic.com Rottentomatoes.com 89% / Fersk Domino Internet Movie Database 5,6 / 10 Metacritic.com 5,0 / 10 Rottentomatoes.com 16% / Rotin „I‘m the Anti-Christ. You got me in a vendetta kind of mood. You tell the angels in heaven you never seen evil so singul- arly personified as you did in the face of the man who killed you. My name is Vincent Coccotti.“ - Það gustaði af Christopher Walken í hlutverki mafíósans Vincents Coccotti í True Romance sem gerð var eftir handriti Quentins Tarantino. > Ekki missa af ... A Little Trip to Heaven Þessi nýjasta mynd Baltasars Kormáks hefur fengið prýðilegar viðtökur gagnrýnenda og áhorfenda en um 8.000 manns hafa þegar séð myndina sem var frumsýnd á öðrum degi jóla. Baltasar teflir hér fram öflugu leikaraliði með þau Forest Whitaker og Juliu Stiles í broddi fylkingar. Myndin var tekin á Íslandi og það fór ekki fram hjá neinum þegar stórstjörnurnar komu til landsins. Sem sagt áhugavert og spennandi af ýmsum ástæðum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.