Fréttablaðið - 28.01.2006, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
LAUGARDAGUR
28. janúar 2006 — 27. tölublað — 6. árgangur
Fyrir
mannlegri
borg
Marsibil í 2. sætið
28.01.2006
marsibil.is
Sannleikurinn um svart-
klædda manninn
Söngvarinn með djúpu
röddina, Johnny Cash,
var auðmjúkur þegar
hann dó.
HELGAREFNI 56
Flott árið 2006
Hverjir verða helstu
tískustraumarnir í ár?
Pod-casting, Argentína,
hermannaklippingar,
franskur matur, tai-chi,
Mammút, Andri Snær og
fleira.
HELGAREFNI 26
VEÐRIÐ Í DAG
SIGURJÓN ANDERSEN
Á aflmiklum tveggja
dyra fjölskyldubíl
bílar ferðir tíska
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU
EIVÖR PÁLSDÓTTIR
Með sex tilnefningar á
dönsku tónlistarhátíðinni
Kemur til Íslands í apríl
FÓLK 58
Rauða hundinum fagnað
Í dag er síðasti dagur árs græna
viðarhanans en á morgun
hefst nýtt ár samkvæmt
kínversku tímatali.
Dong Qing Guan hefur
búið á Íslandi í 14 ár og
kynnir kínverska menn-
ingu í Heilsudrekanum á
morgun.
TÍMAMÓT 24
BJART AUSTAN TIL Í dag verður
fremur stíf sunnanátt, 5-13 m/s, hvassast
vestan til. Rigning sunnan og vestan
til en bjart með köflum á Norðaust-
ur- og Austurlandi. Hiti 3-8 stig, svalast
fyrirpartinn. VEÐUR 4
DÓMSMÁL Bæjarstjórn Vest-
mannaeyja ákvað á fundi sínum
fyrir helgina að höfða skaðabóta-
mál gegn olíufélögunum vegna
verðsamráðs á árunum 1997 til
2001.
Samkeppnisyfirvöld beittu
stjórnvaldssektum gegn Skeljungi,
Olíufélaginu og Olís haustið 2004
vegna ólögmæts verðsamráðs og
námu sektirnar samtals tæpum
2,6 milljörðum króna.
Lúðvík Bergvinsson, forseti
bæjarstjórnar Vestmannaeyja,
segir að skaðabótakröfurnar geti
orðið á bilinu 15 til 30 milljón-
ir króna, en þær grundvallast á
mati á því hve mikið fyrirtækin
höfðu af bæjarfélaginu með verð-
samráðinu.
Olíufélögin hafa átt viðræður
við Reykjavíkurborg um málið,
en ekki er vitað til þess að nokk-
urt sveitarfélag hafi enn höfðað
skaðabótamál vegna málsins.
Auk þeirra stjórnvaldssekta
sem þegar hefur verið beitt gegn
olíufélögunum hefur máli for-
stjóra þeirra á umræddu tímabili
verið vísað til efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjóra og
mögulega verður höfðað opinbert
refsimál gegn þeim.
Skaðabótakröfur þolenda eru
því enn ein tegund málaferla sem
verða vegna verðsamráðsins. - jh
Skaðabótakröfur Vestmannaeyjabæjar gegn olíufélögunum vegna verðsamráðs:
Bótakrafa vegna olíuverðs
LAXELDI Fyrirtækið Samherji
sem, ásamt Síldarvinnslunni, á
meiri hlutann í laxeldi Sæsilf-
urs á Austfjörðum hefur tekið á
leigu kvíaeldisstöð af Vestlaxi í
Færeyjum og hyggst flytja lax-
eldi sitt þangað.
„Við ætlum fyrsta kastið að
flytja þangað um 500 þúsund
lifandi seiði, en þau ættu að geta
gefið af sér tvö þúsund tonn af
eldislaxi í sláturstærð,“ segir
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja.
Sæsilfur taldi það auka sam-
keppnishæfni gagnvart Norð-
mönnum að nota auðlindir á borð
við heitt vatn og rafmagn á hag-
stæðu verði til þess að ala seiði
upp í allt að hálft kíló áður en
þeim yrði sleppt í kvíar, en það
styttir eldistíma í sjó um eitt ár.
Reksturinn hefur hins vegar
gengið erfiðlega, einkum vegna
hágengis krónunnar og raf-
orkuverðs og því ákvað félagið
á dögunum að hætta rekstri í
Mjóafirði árið 2008. Kostnað-
urinn er að sögn Þorsteins allt
að 90 prósent í íslenskum krón-
um. „Það segir til sín þegar við
getum aðeins keypt um 60 en
ekki 80 íslenskar krónur fyrir
dollarann.“
„Í Færeyjum setjum við seið-
in um 70 grömm að þyngd í sjó
líkt og gert er í Noregi. Og þar
glímum við ekki við hátt gengi
krónunnar,“ segir Þorsteinn.
Talsmenn laxeldisins hafa
haldið því fram að rafmagns-
verð hafi hækkað um allt að 30
prósent á skömmum tíma. Jón
Kjartan Jónsson, framkvæmda-
stjóri Sæsilfurs í Mjóafirði,
og Þorsteinn Már standa við
útreikninga sína en fram kom í
máli Jóns Kjartans í Fréttablað-
inu fyrir skömmu að rafmagns-
reikningurinn í seiðaeldinu hefði
hækkað úr um þrjátíu í meira en
fjörutíu milljónir króna milli
ára eftir breytingarnar á raf-
orkulögunum.
Valgerður Sverrisdóttir iðn-
aðarráðherra andmælti þessu
þegar Kristján Möller, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, tók málið
upp í óundirbúnum fyrirspurn-
um á alþingi í vikunni. „Hvað
á þetta að þýða,“ spurði hann
og gagnrýndi tómlæti ráðherra
byggðamála.
Valgerður tók dæmi af 4-5
prósenta hækkun milli ára hjá
tilteknu eldisfyrirtæki, en við-
urkennir nú að hækkunin kunni
að vera meiri.
johannh@frettabladid.is
Flýja með laxeldið
undan ofurkrónu
Samherji kiknar undan íslensku krónunni og raforkuverðinu og fer með laxeld-
ið frá Austfjörðum til Færeyja. Hálf milljón lifandi seiða verður í fyrstu flutt í
eldisstöð sem félagið hefur tekið á leigu. Tekist var á um málið á þingi.
LÖGREGLUMÁL Karlmaður og kona
hátt á fertugsaldri voru úrskurðuð
af Héraðsdómi Reykjavíkur í viku-
langt gæsluvarðhald í gær. Var
það gert í kjölfar þess að lögregl-
an í Reykjavík fann mikið magn af
kannabisplöntum og fíkniefnum í
fórum þeirra.
Lögreglan í Reykjavík komst
á snoðir um kannabisræktunina
í iðnaðarhúsnæði við Höfðatún.
Þegar lögreglumenn fóru til að
kanna málið nánar kom í ljós að
þar voru 2-300 kannabisplöntur
í ræktun. Voru þær allt upp í tvo
metra á hæð. Mun þetta vera ein
umfangsmesta ræktun á slíkum
plöntum sem uppvíst hefur orðið
um hér á landi. Við leit lögreglu í
húsnæði sem fólkið hafði yfir að
ráða fannst til viðbótar hass og
amfetamín, nær kíló af hvoru.
Fólkið var yfirheyrt í gærdag
og í framhaldi af yfirheyrslunni
fór lögregla fram á úrskurð um
gæsluvarðhald. -jss
KANNABISRÆKTUN VIÐ HÖFÐATÚN Plönturnar voru ræktaðar í plastfötum. Hér sést lögreglumaður bera „plöntupotta“ af vettvangi.
Par í gæsluvarðhald í viku:
Með tvö kíló
af fíkniefnum
ÞRÁINN BERTELSSON
66.666 dalir og
66 sent
Vúdú, galdrar og skattpíningar
KÆRA DAGBÓK 20
HANDBOLTI „Ég var að fagna þar
sem við erum komnir áfram með
þrjú stig. Hefðum við tapað værum
við komnir upp að vegg fyrir leik-
inn við Ungverja en nú eru miklir
möguleikar á að gera góða hluti
og málið er í okkar höndum,“
sagði glaðbeittur landsliðsþjálf-
arinn, Viggó Sigurðsson, eftir að
lið hans hafði gert 28-28 jafntefli
gegn Dönum í gærkvöldi.
Íslenska liðið er öruggt áfram
í milliriðla og tekur með sér þrjú
stig þangað. - vig / já síðu 54
Viggó Sigurðsson:
Í okkar höndum
ÁFRAM ÍSLAND Íslenskum stuðningsmönn-
um fer fjölgandi í Sviss. FRÉTTABLAÐIÐ/BÖDDI
Duttu í lukkupottinn
Íslenska landsliðið í knattspyrnu datt
í lukkupottinn þegar dregið var í riðla
fyrir undankeppni Evr-
ópumótsins árið 2008.
Eyjólfur Gjafar Sverrisson
landsliðsþjálfari er mjög
ánægður með riðil
Íslands.
ÍÞRÓTTIR 52