Fréttablaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 28. janúar 2006 7
Jón Bjarki Magnússon og
Sigurður Eyþórsson eru staddir
í Víetnam en þar héldu þeir
meðal annars í mótorhjólaferð
og var mikið stuð á þeim.
Við höfum áður sagt frá ævin-
týrum þeirra Jóns Bjarka og Sig-
urður en þeir héldu í heljarinnar
ferðalag frá Íslandi í ágúst og hafa
þeir meðal annars komið við í Síb-
eríuhraðlestinni, Mongolíu og í
Kína. Hægt er fylgjast nánar með
ferðalögum þeirra á austurferd.
blogspot.com. Nú eru þeir komnir
til Víetnam þar sem þeir leika og
skemmta sér ásamt einum fjórum
öðrum ferðalöngum.
Fyrir um 10 dögum héldu þeir
svo í mótorhjólaferðalag frá borg-
inni Hoi An upp á víetnamska mið-
hálendið. Að sögn strákanna var
planið að komast til borgarinnar
Kom Tum, sem er um 1500 metra
yfir sjávarmáli, og heimsækja
Bahnar-fólkið sem talar sitt eigið
tungumál og hefur sína eigin siði.
Þeir segja að það hafi verið
furðuleg lífsreynsla að keyra um
vegi Víetnams. ,,Í Víetnam eru
voða fáir bílar, úti um allt og alls-
taðar eru hinsvegar mótorhjól af
öllum stærðum og gerðum. Þeir
fáu bílar sem við sáum þegar við
keyrðum eftir þjóðvegi eitt voru
mestmegnis gamlir herflutninga-
bílar sem núna eru notaðir til að
flytja timbur eða dósamat. Með-
fram veginum voru stór skilti á
víetnömsku. Við skildum ekkert
nema stóru stafina sem komu í
endann, „AIDS“. Það er skrýtið að
vera í öðru landi og skilja ekkert í
tungumálinu, alls staðar eru text-
ar sem hafa nákvæmlega enga
þýðingu fyrir mann. Úr hátal-
arakerfum sumra bílanna ómuðu
raddir á víetnömsku og við höfð-
um ekki hugmynd hvað verið var
að segja.“
Að lokum komust strákarnir
þó á áfangastaðinn, til Bahnar-
fólksins í Kom Tum. ,,Við fórum
svo í lítið Bahnar-þorp í útjaðri
bæjarins. Þarna býr það í litlum,
gömlum trékofum. Við settumst
hjá nokkrum mönnum sem spil-
uðu á gítar og drukku vín. Áður en
langt um leið voru þeir farnir að
spila „Hey Jude“ og við sungum
með enda er gaman að syngja með
fólki í Víetnam,“ segja stákarnir,
greinilega ánægðir með velheppn-
aða mótorhjólaferð. ■
Bústaðir Bahnar-fólksins í Víetnam eru afar fábrotnir eins og sjá má.
Útsölulok á þriðjudag 31. janúar
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Í apríl og maí verða GB ferðir
í samvinnu við Icelandair
með vorferðir á Foxhill Club
& Resort í nágrenni Lundúna.
Hótelinu fylgja tveir 18 holu
golfvellir.
GB ferðir standa fyrir golfferð-
um í apríl og maí. Gist verður á
nýju golfhóteli, Foxhill Club &
Resort, um 15 mínútna akstur frá
Heathrow flugvelli. Tveir golf-
vellir eru í nágrenni hótelsins,
báðir góðir skógarvellir, auk níu
holu æfingavallar og yfirbyggðu
æfingarsvæði. Vellirnir tveir eru
nokkuð ólíkir að hönnun og gefur
það kylfingum kost á meiri fjöl-
breytni.
Boðið er upp á þrjár ferðir,
fimm eða þrjár nætur, og innifal-
ið er flug til og frá London, morg-
unverður og kvöldverður, golf-
hringir og aðgangur að heilsulind
hótelsins.
Nánari upplýsingar má finna á
www.gbferdir.is. ■
Golf á góðum stað
Golfvellirnir við Foxhill Club & Resort eru góðir skógarvellir. Vellirnir eru tveir sem gefur
golfurum kost á meiri fjölbreytni.
Foxhill Club & Resort er nýtt golfhótel og er
aðstaða þar til fyrirmyndar. Innifalið í golf-
ferðum GB ferða er aðgangur að heilsulind
hótelsins.
Syngjandi í Víetnam
Jón Bjarki og Sigurður þegar þeir voru
staddir í St. Pétursborg.