Fréttablaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 34
28. janúar 2006 LAUGARDAGUR
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
PCI YUKON Full Lid
22
28
/
T
ak
tik
2
7.
01
.0
6
Fax: 535 9090 • www.bilanaust.is
Bíldshöfða 9 • 110 Reykjavík • Sími: 535 9000
PCI YUKON Gull Wing
PCI YUKON Full Lid
Mikið úrval af
geymslukistum
á flestar
tegundir pallbíla
Nýtt!
WeatherTech
Koma má í veg fyrir ryðmynd-
un á bílum með uppbyggjandi
viðhaldi. Allir bílar munu þó á
endanum ryðga.
Ryð á bílum er hvimleitt vanda-
mál. Það er hins vegar ferli sem
hægja má verulega á sé því gefinn
gaumur og viðhaldi sinnt.
Til þess að útskýra hvað ryð er
í raun og veru þarf að fara í smá
efnafræði. Sé ryðmyndun útskýrð
með einföldum hætti má segja að
hún sé efnahvarf þar sem súrefni í
andrúmsloftinu og vatn í lofti eða
öðru umhverfi ganga í samband
við járn og mynda járnhýdroxíð,
nánar tiltekið hið umrædda ryð.
Þetta þýðir að bíllinn þarf einungis
að komast í tæri við andrúmsloft
og bleytu til að ryðga. Saltið sem
dreift er á götur höfuðborgarsvæð-
isins og víðar hefur svo enn verri
áhrif á bílana okkar því það flýtir
fyrir ryðmyndununni með því að
gefa bleytunni aukna rafleiðni.
Jóhann Oddgeirsson hjá Ryð-
vörn og bóni í Kópavogi segir að
það stoppi ryðmyndun að miklu
leyti að láta ryðverja bílinn. ,,Yfir-
leitt þarf að fara yfir undirvagn-
inn á tveggja til þriggja ára fresti
og allan bílinn á fimm ára fresti.
Þannig er alveg hægt að halda
bílnum við. Ég er til dæmis með
Volvo, árgerð 1978, sem var ryðv-
arinn nýr og síðan hefur hann
verið ryðvarinn þrisvar og í dag
er hann algjörlega óskemmdur af
ryði.“ Það sem ryðvörnin gerir er
að hún verndar og lokar járninu
þannig að það kemst síður í sam-
band við bleytu og andrúmsloftið.
Jóhann segir að allir bílar muni
á endanum ryðga. ,,Það er orðið
miklu betra járn í nýju bílunum.
Þeir ryðga samt allir að lokum.“
Jóhann bendir á nýlega sænska
rannsókn sem leiddi í ljós að fjöl-
margar bílategundir hafi komið
mjög illa út úr ryðvarnarprófi,
tegundir sem áður þóttu sterk-
byggðar og nærri ryðfríar.
Jóhann segir að versta sem
hægt sé að gera við bílinn sé
að láta hann standa óhreinan.
Umgengni er höfuðatriði og passa
þarf að bíllinn sé reglulega þveg-
inn. Þannig má með litlu tilstandi
koma í veg fyrir ótímabæra ryð-
myndun á bílum.
steinthor@frettabladid.is
Mikilvægt að vernda
bílinn með ryðvörn
AÐALBÍLASALAN BÝÐUR UPP Á MIK-
INN AFSLÁTT AF NOTUÐUM BÍLUM
NÆSTU DAGA.
Þessa dagana stendur yfir dúndurút-
sala hjá Aðalbílasölunni við Eirhöfða.
Bílasalan mun bjóða upp á margar
gerðir notaðra bíla með allt að 45
prósenta afslætti og auk þess mun
Lýsing bjóða upp á allt að 100 pró-
senta fjármögnun. Í fréttatilkynningu
segir að tilboðsdagarnir muni standa
yfir í rúma viku og er því kjörið tæki-
færi til að gera góð kaup á notuðum
bílum hjá Aðalbílasölunni, sem er
elsta bílasala landsins.
Dúndursala hjá
Aðalbílasölunni
Ryðblettir mynda oft mjög ljót sár á bílum og draga mjög úr verðgildi hans.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Elsta bílasala landsins, Aðalbílasalan,
mun í rúma viku standa fyrir sérstökum
tilboðsdögum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KI-umboðið verður með bíla-
sýningu nú um helgina þar sem
meðal annars verða frumsýnd-
ir tveir nýir bílar.
Sportjepplingurinn KIA Sportage
með nýrri 140 hestafla dísilvél og
nýr KIA Rio með 110 hestafla dís-
ilvél verða frumsýndir hjá KIA-
umboðinu á Laugavegi. Auk þess
verða KIA Sorento, KIA Picanto
og KIA Cerato til sýnis.
Einnig verður sérstök þjón-
ustukynning fyrir KIA-eigend-
ur. ASKJA, sem sér um þjónustu
fyrir KIA, mun bjóða KIA-eig-
endum ókeypis bremsu- og högg-
deyfaskoðun í dag, auk þess sem
farið verður yfir allar perur og
frostlögur mældur.
Þeir sem kaupa nýjan KIA-bíl,
eða koma með KIA-bílinn sinn í
þjónustuskoðun fyrir 15. júní, eiga
einnig kost á að vinna miða fyrir
tvo á úrslitaleik heimsmeistara-
mótsins í knattspyrnu sem fram
fer í Þýskalandi næsta sumar.
Sýningin er eins og áður segir í
sýningarsal KIA að Laugavegi 172
og verður opin í dag frá klukkan 10
til 16 og á morgun frá klukkan 12
til 16. KIA-sýningar verða einnig
hjá söluumboðunum í Reykjanes-
bæ, á Selfossi, Reyðarfirði, Ísa-
firði og hjá Höldi á Akureyri.
Stórsýning hjá KIA
Nýr jepplingur frá Kia, Sportage, verður frumsýndur í dag hjá KIA-umboðinu.
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4