Fréttablaðið - 28.01.2006, Page 2
2 28. janúar 2006 LAUGARDAGUR
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
SPURNING DAGSINS
Halldór, höfðu hommar
áhuga á Halldóri?
„Já, en eingöngu fræðilegan.“
Halldór Guðmundsson bókmenntafræðingur
flutti fyrirlestur um nafna sinn Laxness í gær,
sem nefndist „Halldór og hommarnir“ og
fjallaði um hugleiðingar nóbelsskáldsins um
samkynhneigð.
DÓMSMÁL 25 ára gamall maður
var í gær dæmdur í fimm mán-
aða fangelsi fyrir líkamsárás
og kynferðisofbeldi gagnvart
þroskahamlaðri tvítugri konu. Í
dómsúrskurðinum segir að málið
hafi verið umfangsmikið og flók-
ið, ekki síst vegna slælegrar lög-
reglurannsóknar. Unga konan
hafi þrívegis þurft að gefa skýrslu
um málið.
Maðurinn hringdi í konuna og
sagði að hún hefði gleymt hönsk-
um eftir að hún hafði verið hjá
honum í heimsókn með vinkonu
sinni. Hún sneri við. Hann réðst á
hana, hrinti henni í upp í rúm og á
rúmgafl, sparkaði í hana og drap
í sígarettu á öðru brjósti hennar.
Hann tók hana einnig kverka-
taki. Stúlkan frábað sér háttern-
ið og beit manninn. Hann hótaði
henni lífláti kjaftaði hún frá. Hún
sagði móður sinni og vinkonu frá
atburðinum.
Móðirin kærði manninn eftir
að tilsjónarmaður á heimavist sem
stúlkan bjó á hafði tilkynnt málið
til lögreglu og sent ungu konuna
til læknis. Manninum var gert að
greiða konunni 300 þúsund krónur.
Hann greiðir einnig hluta máls-
varnarlauna og sakarkostnað, eða
um 660 þúsund krónur - gag
MAÐUR DÆMDUR Í HÉRAÐSDÓMI Áverkar
á konunni eftir árásina voru margvíslegir.
Eymsli og roði á hálsi, eymsli yfir rifjum
vinstra megin og brunasár og síðar ör á
vinstra brjósti.
Maður dæmdur fyrir að misnota konu og brenna með sígarettu:
Svívirti þroskahamlaða konu
DÓMSMÁL Íslenska þjóðkirkjan er
skaðabótaskyld vegna ráðning-
ar Sigurðar Arnarsonar í stöðu
sendiráðsprests í Lundúnum
haustið 2003 í stað Sigríðar Guð-
marsdóttur.
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi í gær að biskup hefði brot-
ið gegn stjórnsýslulögum. Hann
hefði ekki mátt framselja skip-
unarvald sitt til hæfisnefndar,
skipaða fulltrúum þeirra þriggja
stofnana sem koma að sendiráðs-
prestsembættinu ytra, til að taka
ákvörðun um hvort Sigríður eða
Sigurður, tengdasonur biskups,
hlyti stöðuna.
Lögmaður Sigríðar, Sif Kon-
ráðsdóttir, segir að um fullnað-
arsigur hafi verið að ræða þar eð
dómurinn viðurkenni einnig að
brotið hafi verið gegn jafnréttis-
lögum. Lögmaður þjóðkirkjunnar,
Gestur Jónsson, segir að niður-
staða dómsins byggist á að stjórn-
sýslureglur hafi verið brotnar.
Ekkert í dómnum taki undir þær
ásakanir að Sigurður hafi hlotið
starfið vegna tengsla sinna við
biskup.
Sigríður Guðmarsdóttir, sókn-
arprestur í Grafarvogi, var ánægð
með niðurstöðuna. „Ég vona að
dómurinn leiði til jafnréttis og
betri stjórnsýslu.“
Gestur segir enga ákvörðun
hafa verið tekna um hvort dómn-
um verði áfrýjað. - gag
SIGRÍÐUR OG SIF Þjóðkirkjan er skaðabóta-
skyld gagnvart Sigríði Guðmarsdóttur. Eftir
er að semja um hverjar skaðabæturnar
verða.
Þjóðkirkjan skaðabótaskyld gagnvart Sigríði Guðmarsdóttur:
Biskup braut stjórnsýslulög
DÓMSMÁL Maður sem hlotið hefur
þrettán refsidóma var í gær
dæmdur í þriggja mánaða fang-
elsi. Hann ók bifreið án ökurétt-
inda.
Eftir að hann varð átján ára,
eða á síðustu tíu árum, hefur hann
hlotið þrettán dóma fyrir brot gegn
umferðarlögum, hegningarlögum,
lögum um ávana- og fíkniefni og
vopnalögum. Hefur hann sjö sinn-
um hlotið refsingu fyrir að aka án
réttinda, síðast í nóvemberbyrjun.
Var ákærði þá dæmdur í fjögurra
mánaða fangelsi fyrir fjögur slík
brot, auk brota gegn fíkniefna- og
vopnalögum.
Maðurinn hefur aldrei öðl-
ast ökuréttindi og fær ekki sam-
kvæmt dómi á haustmánuðum
1999. - gag
Maður ók próflaus:
Dæmdur í fjór-
tánda sinn
FEGURÐ Ólafur Geir Jónsson, Herra
Ísland 2005, hefur verið sviptur
titlinum og er þetta í fyrsta sinn í
sögu Fegurðarsamkeppni Íslands
sem það gerist.
Í fréttatilkynningu frá aðstand-
endum keppninnar segir að Herra
Ísland skrifi undir samning þess
efnis að hegðun hans skuli ávallt
vera til sóma fyrir vandaða ímynd
keppninnar. Ólafur Geir, sem stýr-
ir umdeildum þætti á sjónvarps-
stöðinni Sirkus, þykir ekki hafa
staðið undir þeim væntingum sem
eru gerðar til Herra Íslands.
Jón Gunnlaugur Viggósson,
sem hafnaði í 2. sæti keppninnar,
mun taka við titlinum. -sdg
Fegurðarsamkeppni Íslands:
Herra Ísland
sviptur titli
BÓLIVÍA, AP Nýkjörinn forseti
Bólivíu, Evo Morales, hefur lækk-
að laun sín um 57 prósent og fyr-
irskipað ráðherrum sínum að gera
hið sama, en þar í landi má enginn
ríkisstarfsmaður hafa hærri laun
en forsetinn. Mismuninn ætlar
Morales að nota til að ráða fleiri
kennara og lækna til starfa í land-
inu.
„Okkur vantar sex þúsund nýja
kennara, en við höfum bara efni
á 2.200,“ sagði Morales, sem nú
þénar sem svarar tæpum 105.000
krónum á mánuði. Hann hefur
setið á forsetastóli í sex daga, en
var áður lamadýrahirðir og götu-
mótmælandi. - smk
Forseti Bólivíu róttækur:
Morales helm-
ingar kaup sitt
PENINGAPOTTUR Evo Morales, forseti
Bólivíu, með pott fullan af gervipeningum
á hátíð í heimalandi sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BAUGSMÁL Hart var deilt í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær um
fyrirhugaða aðalmeðferð ákæru-
liðanna átta sem eftir standa í
Baugsmálinu.
Dómurinn ákvað að kljúfa
málið í tvennt og taka dagana 9.
og 10. febrúar aðeins fyrir þær
fjórar ákærur sem snúa að endur-
skoðendum Baugs.
Þessu mótmæltu verjendur og
saksóknari en af ólíkum ástæð-
um. Sigurður Tómas Magnússon
saksóknari krafðist þess að málið
yrði ekki tekið fyrir fyrr en í byrj-
un mars. „Ég tel málið það viða-
mikið að það sé hæfilegur frestur
fyrir alla aðila til að undirbúa
flutning málsins.“
Sigurður taldi sig einnig hafa
lagalegan rétt til að leggja fram
gögn á móti sérfræðiáliti í málum
endurskoðendanna.
Verjendur töldu aftur á móti að
sakborningar ættu skýlausan rétt
á því að sakargiftir yrðu teknar
fyrir sem fyrst og efnisdómur
yrði felldur um ákæruliðina átta.
Þeir kröfðust úrskurðar dómara
um þetta efni.
Einar Þór Sverrisson, verjandi
Jóhannesar Jónssonar, vísar til
málshraðareglu í lögum um með-
ferð opinberra mála og segir að
frestun á hluta málsins sé ekki í
samræmi við hana.
Sigurður Tómas bendir á að
verði málið tekið fyrir 9. og 10.
febrúar fari það í bága við að dóm-
kvaddir menn hafi frest til 23.
febrúar til þess að meta trúverð-
ugleika gagna sem lögð hafa verið
fram í málinu. „Með því að ákveða
aðalmeðferð þessa daga eru þeir
að synja mér um framlagningu
gagna í málinu. Ég krafðist
úrskurðar um þessa synjun.“
Gestur Jónsson, verjandi Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, segir ber-
sýnilegt að saksóknari vilji enga
meðferð málsins fyrr en hann sé
búinn að taka ákvörðun um hvort
ákært verði aftur á grundvelli
ákæranna þrjátíu og tveggja sem
vísað var frá dómi. „Gögnin sem
dómkvaddir matsmenn eiga að
skila af sér seint í febrúar hafa
ekkert með ákæruliðina átta að
gera sem hér eru til meðferðar.
Enda spurði dómari saksóknar-
ann hvort ekki væri rétt að fela
ríkislögreglustjóra að sækja málið
þannig að settur saksóknari gæti
einbeitt sér að vinnu við ákæru-
liðina sem vísað var frá dómi.“
Dómari úrskurðar um ágrein-
ingsmálin eftir helgi en unnt er
að kæra að minnsta kosti tvo
úrskurðanna til Hæstaréttar.
SIGURÐUR TÓMAS SAKSÓKNARI OG GESTUR VERJANDI JÓNS ÁSGEIRS Þeir tókust á í réttarsal í gær en einnig fyrir luktum dyrum. Eftir sátu
þrjú ágreiningsmál sem dómarar þurfa að úrskurða um eftir helgi.
Titringur í dómhúsi
vegna Baugsmálsins
Héraðsdómur Reykjavíkur þarf að úrskurða um þrjár kröfur saksóknara og
verjenda í Baugsmálinu áður en málið fer til aðalmeðferðar. Harkalega var
deilt í dómnum í gær um framlagningu gagna og tímasetningu á aðalmeðferð.
GEORGÍA, AP Stjórnvöld í Georg-
íu náðu í gær samkomulagi við
grannríkið Íran um kaup á neyð-
arbirgðum af jarðgasi.
Georgíumenn glíma nú við
mestu orkukreppu í sögu landsins
frá því það losnaði úr viðjum Sov-
étríkjanna fyrir hálfum öðrum
áratug. Georgíustjórn sakar ráða-
menn í Moskvu um að beita landið
fantabrögðum. Stærstu gasleiðsl-
urnar frá Rússlandi til Georgíu
rofnuðu í skemmdarverkaspreng-
ingum á rússnesku yfirráðasvæði
fyrir viku. ■
Orkukreppa í Georgíu:
Neyðarbirgðir
fást frá Íran
Í BIÐRÖÐ EFTIR OLÍU Tíflisbúar reyna eftir
öllum leiðum að ná sér í eldsneyti til kynd-
ingar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Maður sem ekið hafði út
í skurð við Bjarnarfjörð á Strönd-
um í fyrrahaust var í gær sýknað-
ur af ölvunarakstri. Hann sagðist
hafa drukkið sterkan bjór eftir
útafaksturinn.
Lögreglunni bárust tilkynn-
ingar um ferðir mannsins áður en
ökuferðinni lauk. Áfengismagnið
í blóði hans miðast við að hann
hafi drukkið einn og hálfan til
tvo lítra af bjór á þeim tuttugu
mínútum sem tók lögregluna að
komast á vettvang. Það þótti dóm-
ara ólíklegt, sérstaklega þar sem
engar bjórdósir fundust, utan sú
sem hann hafði í hendinni. Þótti
samt ekki hægt að útiloka frásögn
mannsins. - gag
Sat drukkinn við bílinn:
Sýknaður af
ölvunarakstri
VIÐSKIPTI Hagnaður þriggja banka
sem birt hafa uppgjör sín er kom-
inn yfir hundrað milljarða króna.
Landsbankinn birti uppgjör
í gær og var hagnaður bankans
25 milljarðar króna eftir skatta.
Hagnaður KB banka nam 49,3
milljörðum króna og Straumur
skilaði 26,7 milljörðum í hagnað.
Á mánudag mun Íslandsbanki
birta uppgjör sitt, en bankanum
er spáð um 22 milljarða hagnaði.
Hagnaður íslensku bankanna á
síðasta ári verður því vel á annað
hundrað milljarðar króna og hefur
aldrei verið meiri. - hh sjá síðu 10
Hagnaður bankanna:
Yfir hundrað
milljaðar