Fréttablaðið - 28.01.2006, Qupperneq 4
4 28. janúar 2006 LAUGARDAGUR
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 27.01.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 61,52 61,82
Sterlingspund 109,47 110,01
Evra 75,02 75,44
Dönsk króna 10,05 10,108
Norsk króna 9,274 9,328
Sænsk króna 8,103 8,151
Japanskt jen 0,5275 0,5305
SDR 89,37 89,91
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
104,8025
MIKIL UPPBYGGING Mikið hefur verið byggt af íbúðum í Norðlingaholti sem og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu undanfarin ár. Úthlutun lóða hefur fjórfaldast á síðustu fimm árum.
Fréttablaðið/Vilhelm
HÚSNÆÐI Úthlutun lóða hefur
fjórfaldast á undanförnum fimm
árum og munar mestu um aukn-
inguna á höfuðborgarsvæðinu síð-
ustu tvö árin. Á sama tíma hefur
fjöldi fullgerðra íbúða tvöfaldast
og helst hann því ekki í hendur við
lóðaúthlutunina.
Talnagögnin koma fram í svari
félagsmálaráðherra við fyrir-
spurn Kjartans Ólafssonar, þing-
manns Sjálfstæðisflokksins.
„Gengi krónunnar hefur
styrkst gríðarlega undanfarin
ár og það hefur að sínu leyti haft
afgerandi áhrif á vextina. Hækk-
andi húsnæðisverð hefur svo
aukið verðbólguna.“
Kjartan segist vilja sjá hvort
meira sé byggt en markaðurinn
taki við og hvort vísbendingar séu
um offramboð og verðhjöðnun.
„Ef ekki er þörf fyrir allar þær
íbúðir sem lóðaúthlutunin gefur
til kynna að komi á markaðinn í
náinni framtíð má ætla að íbúða-
verð lækki og verðbólga af þess-
um völdum lækki að sama skapi.
Það hefur verið talað um að mark-
aður sé fyrir um 14 hundruð nýjar
íbúðir á ári.“
Tölurnar sem Kjartan hefur
fengið í hendur miðast við lóðaút-
hlutun í 17 af 21 sveitarfélagi. Árið
2000 var úthlutað samtals 1.060
lóðum en hátt í 4.300 á nýliðnu ári.
Árið 2000 nam fjöldi fullgerðra
íbúða á öllu landinu 1.258 en var
orðinn 2.355 árið 2004 og hafði
nær tvöfaldast.
„Vel má vera að í þessu sé ein-
hver skekkja, til dæmis vegna
þess að sömu lóðinni er úthlut-
að oftar en einu sinni. Hingað
streymir fólk, fólki fjölgar og það
stækkar við sig. Þrátt fyrir þetta
sýnist mér að framboð gæti orðið
meira en eftirspurn innan tíðar
og það gæti valdið verðhjöðnun
og leitt til minnkandi verðbólgu,“
segir Kjartan ólafsson.
Björn Þorri Viktorsson, for-
maður Félags fasteignasala, segir
greinilegt að lóðaskortur hafi
hrjáð markaðinn fyrir fimm árum
og er ekki viss um að offramboð
á íbúðum sé í vændum. „En það
er ljóst að íbúðaverð er hætt að
hækka. Í síðasta mánuði lækkaði
verð lítillega á sérbýlis- og fjöl-
býlisíbúðum í fyrsta skipti síðan í
desember 2003. Markaðurinn leit-
ar nú jafnvægis eftir þá spreng-
ingu sem varð þegar bankarnir
fóru inn á íbúðalánamarkaðinn,“
segir Björn. johannh@frettabladid.is
Íbúðaverð byrjað að lækka
Framboð á nýjum íbúðum í landinu hefur tvöfaldast á fimm árum. Á sama tíma hefur úthlutun lóða fjór-
faldast. Verð á sambýlis- og fjölbýlisíbúðum lækkaði í síðasta mánuði í fyrsta skipti síðan í desember 2003.
2000 2001 2002 2003 2004 2005
1.060
1.258 1.202
2.140 2.355
3.623
4.620
ÚTHLUTUN LÓÐA OG
FULLGERÐAR ÍBÚÐIR
Fjöldi úthlutaðra lóða í 17 stærstu
sveitarfélögunum og fullgerðar
íbúðir á öllu landinu
Fjöldi úthlutaðra lóða
Fullgerðar íbúðir
BJÖRN ÞORRI
VIKTORSSON
KJARTAN
ÓLAFSSON
DANMÖRK Trúarleiðtogar og ráða-
menn í Sádi-Arabíu hafa hvatt
landsmenn til að sniðganga
danskar vörur. Ástæðan er sögð
aðgerðaleysi dönsku ríkisstjórnar-
innar vegna birtinga á teikningum
af Múhameð spámanni í Jótlands-
póstinum síðastliðið haust. Þá hafa
yfirvöld í landinu kallað sendi-
herra sinn heim frá Danmörku.
Forsvarsmenn danskra fyrir-
tækja óttast að vörur þeirra verði
einnig sniðgengnar í nágranna-
ríkjum Sádi-Arabíu innan skamms
ef ekkert verður að gert. Haft er
eftir Per Stig Møller, utanríkis-
ráðherra Danmerkur, í Berlingske
tidende í gær að þessi viðbrögð
komi honum á óvart. Enda hafi
viðskiptasambönd milli landanna
verið góð fram til þessa. Samtök
danskra iðnrekenda sendu frá sér
ályktun í gær þar sem þau harma
myndbirtingarnar.
Birting teikninganna af
Múhameð spámanni hafa vakið
hörð viðbrögð í mörgum múslima-
ríkjum. Í kjölfarið óskuðu sendi-
herrar nokkurra ríkja eftir fundi
með forsætisráðherra Danmerkur
sem hann varð ekki við, með þeim
orðum að ríkisstjórnin hefði ekkert
yfir frjálsum fjölmiðlum landsins
að segja. Talsmenn stjórnarand-
stöðuflokkanna hafa gagnrýnt þá
ákvörðun. Haft er eftir þeim í gær
að staða málsins í dag sé afleiðing
rangra viðbragða ríkisstjórnar-
innar í málinu. - ks
Trúarleiðtogar og ráðamenn í Sádi-Arabíu eru reiðir Dönum:
Sniðganga danskar vörur
Svipt ökuréttindum í ár Kona var
svipt ökuréttindum í eitt ár fyrir að aka
bifreið, verulega ölvuð, á kyrrstæða
vörubifreið á Ísafirði í maí á síðasta ári.
Áfengi í blóði hennar mældist 2,58 en
ekki má fara yfir 0,50 prómill. Hún þarf
að auki að greiða 100 þúsund krónur í
ríkissjóð næstu fjórar vikurnar eða fara í
átta daga fangelsi.
DÓMSMÁL
SVÍÞJÓÐ, AP Stór langferðabíll full-
setinn farþegum fór í gær út af
þjóðveginum í grennd við Arboga,
um 100 km vestur af Stokkhólmi,
og valt með þeim afleiðingum að
átta manns að minnsta kosti létu
lífið og vel á fimmta tug slösuðust,
misalvarlega.
Kjell Nylund, talsmaður hér-
aðsyfirvalda, sagði að andlát átta
farþega hefðu verið staðfest og að
45 hefðu verið fluttir á slysadeild
nærliggjandi sjúkrahúsa. Marg-
ir farþeganna festust inni í flaki
rútunnar og það tók sinn tíma að
ná þeim út. Snjór og hálka var á
slysstað. ■
Rútuslys í Svíþjóð:
Átta farþegar
biðu bana
Á HVOLFI Rútan lagðist að hluta til saman
er hún lenti á hvolfi úti í skurði.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÖNUM BÖLVAÐ Eftir föstudagsbænir í
gær lýstu um 500 moskugestir í Bagdad
fordæmingu sinni á Múhameðsteikningun-
um í Jótlandspóstinum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Leyfa stafesta samvist Efri deild
tékkneska þingsins samþykkti á fimmtu-
dag lög sem heimila samkynhneigðum
að skrást í staðfesta samvist. Samþykki
Vaclav Klaus forseti lögin fá samkyn-
hneigðir svipaðan rétt og gift gagnkyn-
hneigð pör hafa til erfða og trygginga.
Þó mega samkynhneigðir hvorki gifta
sig né ættleiða börn.
TÉKKLAND
RÚSSLAND, AP Rússlandsstjórn er
að reyna að stöðva starfsemi regn-
hlífarsamtaka mannréttindafé-
laga í Rússlandi, að því er þekktur
rússneskur mannréttindafrömuð-
ur hélt fram í gær. Þessi viðleitni
stjórnvalda sé liður í víðtækri
herferð gegn starfsemi frjálsra
félagasamtaka í landinu.
Ein af undirdeildum rússneska
dómsmálaráðuneytisins hefur
farið fram á það við dómstól í
Moskvu að hann fyrirskipi lokun
Mannréttindaskrifstofu Rúss-
lands, á þeirri fyrirsláttarforsendu
að samtökin hefðu ekki skilað inn
tilskildum skýrslum síðastliðin
fimm ár. Þetta sagði Valentina
Melnikova, sem á sæti í stjórn
Mannréttindaskrifstofunnar. ■
Mannréttindasamtök eystra:
Reyna að loka