Fréttablaðið - 28.01.2006, Page 6
6 28. janúar 2006 LAUGARDAGUR
Vinsamlegast komið vörunni til
Osta- og smjörsölunnar, Bitruhálsi 2.
Við biðjum viðskiptavini okkar velvirðingar á óþægindunum.
Allar nánari upplýsingar veitir Geir Jónsson forstöðumaður
rannsóknarstofu Osta- og smjörsölunnar í síma 569 1640
eða 664 1640.
sími 569 1600 • fax 567 3465
Osta- og smjörsalan innkallar eftirfarandi
þrjár vörutegundir vegna galla:
Búri Havarti Krydd-Havarti
INNKÖLLUN
KJÖRKASSINN
Ertu með meira en 300 þúsund
króna yfirdráttarheimild?
Já 42%
Nei 58%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að byggja nýtt álver á Norður-
landi?
Segðu skoðun þína á visir.is
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykja-
vík leitar nú manns á miðjum
aldri sem í fyrradag ginnti ungan
pilt afsíðis á Seltjarnarnesi og
reyndi þar að gyrða niður um
hann og fara höndum um kynfæri
hans. Komst drengurinn undan
með harðfylgi og lét lögreglu vita
en leit að manninum hefur engan
árangur borið.
Atvikið átti sér stað skammt
frá verslanamiðstöðinni Eið-
is torgi á Seltjarnarnesi. Kallaði
maðurinn til drengsins og þreif
til hans þegar hann kom nær og
reyndi að gyrða niður um hann.
Náði maðurinn að draga nærbux-
ur piltsins að hálfu niður áður en
piltinum tókst með harðfylgi að
rífa sig lausan og hlaupa á brott.
Var honum brugðið mjög og leitaði
til lögreglu sem hóf eftirgrennsl-
an sem engan árangur bar.
Að sögn piltsins var maður-
inn milli fimmtugs og sextugs en
hann gat litlar aðrar upplýsingar
gefið enda í miklu uppnámi. Lög-
regla mun áfram vinna að rann-
sókn málsins. - aöe
EIÐISTORG Þar ginnti miðaldra maður
ungan pilt afsíðis í fyrradag og reyndi að
gyrða niður um hann. Pilturinn náði að
rífa sig lausan áður en manninum tókst
ætlunarverk sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Lögregla leitar manns sem tældi til sín ungan dreng á Seltjarnarnesi:
Fór höndum um ungan pilt
SKOÐANAKÖNNUN Meirihluti lands-
manna er jákvæður í garð áliðn-
aðar í landinu, fimmtungur er nei-
kvæður og fjórðungur tekur ekki
afstöðu ef marka má niðurstöður
skoðanakönn-
unar Gallup.
K ö n n u n i n
var gerð að
beiðni Samtaka
atvinnulífsins.
Mikill meiri-
hluti lands-
manna, eða um
76 prósent, er
hlynntur auk-
inni virkjun
gufuafls og 58
prósent eru jákvæð í garð frekar
uppbyggingu áliðnaðar sem bygg-
ir á gufuaflsorku.
Tæplega 60 prósent eru hlynnt
aukinni virkjun vatnsafls og rúm-
lega fjórðungur er á móti. Rétt
rúmlega helmingur landsmanna
er hlynntur frekari uppbyggingu
áliðnaðar sem byggir á vatnsafli
en 34 prósent eru andvíg.
Fleiri eru með en á móti frekari
uppbyggingu áliðnaðar. Það segir
þó ekki alla söguna því aðeins 48
prósent eru hlynnt frekari upp-
byggingu, 37 prósent eru andvíg
og 15 prósent taka ekki afstöðu.
Árni Finnsson, formaður Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands, telur
spurningu um sátt ekki eiga við í
dag því fyrri kannanir bendi til að
ekki ríki sátt í málinu. „Þarna er
ákaflega yfirborðskennd könnun
á ferðinni sem ekki sýnir þann
veruleika sem við búum við í dag,“
segir hann.
„Fólk hefur áhyggjur af taum-
lausri virkjunarstefnu stjórn-
valda og vill vernda náttúruna.
Þetta hefur ítrekað komið fram í
könnunum og stangast á við þessa
könnun Gallup,“ segir hann. - ghs
ÁRNI FINNSSON
Könnun Gallup sýnir að tæplega 60 prósent styðja aukna virkjun gufuafls:
Jákvæðir í garð áliðnaðar
FREKARI UPPBYGGING ÁLIÐNAÐAR
48% hlynnt
37% andvíg
15% taka
ekki afstöðu
Heimild: Gallup
ÞÝSKALAND, AP Johannes Rau, sem
var forseti Þýskalands á árunum
1999-2004, lést í gær, 75 ára að
aldri. Banamein hans var ekki
gefið upp að svo stöddu, en hann
hafði átt við heilsubrest að stríða
um nokkurt skeið.
Prestssonurinn Rau fæddist
í Wuppertal árið 1931. Hann átti
langan og farsælan feril í stjórn-
málum. Hann varð forsætisráð-
herra Nordrhein-Westfalen, fjöl-
mennasta þýska sambandslandið,
árið 1978. Í því embætti sat hann
óslitið í tvo áratugi.
Í forsetatíð sinni lagði Rau sig
fram um að bæta tengsl Þýska-
lands við Ísrael og brýndi fyrir
þjóð sinni að vera opin gagnvart
umheiminum. Rau kom í opinbera
heimsókn til Íslands í júlí 2003
ásamt eiginkonu, dóttur og fylgd-
arliði. - aa
Johannes Rau látinn:
Íslandsvinur
fallinn frá
RAU Á BESSASTÖÐUM Tekið á móti þýsku
forsetahjónunum í opinberri heimsókn
þeirra til Íslands í byrjun júlí 2003.
DAVOS, AP Bill Gates, aðaleigandi
Microsoft-hugbúnaðarrisans, hét
því á Heimsefnahagsráðstefnunni
í Davos í Sviss í gær að þrefalda
fjárframlög til baráttunnar gegn
berklum, úr 300 í 900 milljónir
bandaríkjadala.
Gates tók undir með breska fjár-
málaráðherranum Gordon Brown
sem lýsti yfir nýju heimsátaki til
að stöðva útbreiðslu berkla, en í
nafni þess verður fé veitt til þró-
unarlanda til að grípa til ráðstaf-
ana gegn sjúkdómnum.
Um 15 milljónir manna deyja
árlega úr læknanlegum sjúkdóm-
um vegna skorts á aðgengi að við-
eigandi lyfjum. Þessu vill Gates
breyta. ■
Heimsefnahagsráðstefnan:
Gates þrefaldar
berklaframlög
GEGN BERKLUM Bill Gates hlýðir á Oluseg-
un Obasanjo Nígeríuforseta tala í Davos í
gær um „nærri gleymda“ sjúkdóma eins og
berkla, sem enn bana mörgum í fátækari
löndum heims. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FUGLAFLENSA Niðurstöður úr níu
sýnum sem tekin voru úr villtum
gæsum hér á landi, bárust í gær.
Þau reyndust öll neikvæð með til-
liti til mótefna gegn fuglaflensu
af stofnunum H5 og H7 að sögn
Jarle Reiersen dýralæknis ali-
fuglasjúkdóma. Áður höfðu fengist
niðurstöður úr nítján sýnum úr 16
grágæsum, fjórum álftum og einni
stokkönd. Reyndust þau vera nei-
kvæð.
Nú liggur fyrir að taka um eitt
hundrað sýni úr fuglum í varp-
hænsnabúum, kjúklingabúum og úr
lausagönguhænsnum, svo og úr um
það bil tíu villtum fuglum. - jss
Fuglaflensa:
Níu sýni reynd-
ust neikvæð
REYKJAVÍKURBORG Stefán Jón Haf-
stein, borgarfulltrúi Samfylkingarinn-
ar, telur 150 milljónir króna í stjórn-
kerfisbreytingar ekki háa fjárhæð sé
til lengri tíma litið. Þetta kemur fram
í svari hans við gagnrýni sjálfstæðis-
manna sem telja þetta ekki hafa orðið
til þess að bæta þjónustuna.
Stefán segir að tekist sé á við upp-
safnaðan vanda og tekur uppbygg-
ingu þjónustumiðstöðva sem dæmi.
Hann telur það muni verða Sjálfstæð-
ismönnum fótakefli ætli þeir að vera
á móti því máli. -sdg
Stjórnkerfisbreytingar:
150 milljónum
vel varið
Tesco undir eftirliti Bresk sam-
keppnisyfirvöld ætla að kanna hvort
staða Tesco verslunarkeðjunnar í
Skotlandi brjóti í bága við samkeppn-
isákvæði í kjölfar kvartana frá skoskum
bændum um að fyrirtækið þvingi fram-
leiðendur til að fá betri verð og komist
upp með það sökum einokunarstöðu
sinnar í mörgum borgum.
SKOTLAND
PALESTÍNA, AP Þúsundir áhangenda
Fatah-hreyfingar Palestínumanna,
sem laut í lægra haldi fyrir hinni
herskáu Hamas-hreyfingu í kosn-
ingum til palestínska þingsins,
mótmæltu af krafti á Gazasvæð-
inu í gær; kveiktu í bílum, skutu
upp í loftið og kröfðust þess að
spilltir flokksforkólfar segðu af
sér í kjölfar hins niðurlægjandi
kosningaósigurs.
Hamas fékk öruggan meiri-
hluta þingsæta, 76 af 132, og Mah-
moud Abbas Palestínuleiðtogi,
arftaki Yassers Arafats sem odd-
viti Fatah-hreyfingarinnar, sagð-
ist myndu fela leiðtogum Hamas
umboð til stjórnarmyndunar.
Fatah hafnaði því hins vegar strax
að taka sæti í nýju stjórninni. Tals-
menn Ísraelsstjórnar útilokuðu að
eiga nokkrar viðræður við pal-
estínska stjórn sem skipuð væri
Hamas-liðum. Þar með stefndi í
að nýja palestínska stjórnin ein-
angraðist jafnvel áður en hún er
tekin við embætti.
Tzipi Livni, starfandi utan-
ríkisráðherra Ísraels, skoraði á
alþjóðasamfélagið að leyfa slíkri
stjórn ekki að öðlast neitt lög-
mæti, með þeim orðum að þátt-
taka í lýðræðislegum kosningum
væri enginn „hvítþvottur“ fyrir
hryðjuverkahópa. Þó sýndu skoð-
anakannanir sem gerðar voru í
Ísrael að mikill meirihluti ísra-
elskra borgara styður friðarvið-
ræður við stjórn Palestínumanna,
jafnvel þótt skipuð Hamas-liðar
fari fyrir henni.
Leiðtogar Bandaríkjanna og
nokkurra Evrópuríkja sögðu að
Hamas yrði að snúa baki við öllu
ofbeldi og viðurkenna Ísrael.
Hamas-samtökin eru enn á lista
yfir hryðjuverkasamtök bæði í
Bandaríkjunum og Evrópusam-
bandinu.
Ósigur Fatah, sem haldið hefur
um stjórnartaumana frá því pal-
estínsku heimastjórninni var
komið á fyrir tólf árum, er aðal-
lega rakinn til þeirrar spillingar
sem gamalgrónir áhrifamenn
hreyfingarinnar hafa gert sig
seka um. Þeir hafa ítrekað hafn-
að umbótakröfum ungliðanna í
flokknum. Því beinist reiði yngri
áhangenda Fatah nú að gömlu,
stöðnuðu forystusveitinni. Mót-
mælendurnir í gær fóru þó ekki
sérstaklega fram á afsögn Abbas,
þótt sú krafa hafi líka heyrst.
Vert er að geta þess að þótt
Hamas hafi fengið miklu fleiri
þingsæti en Fatah (76 á móti 43)
var munurinn á heildaratkvæða-
magni framboðslista hreyfing-
anna tveggja mun minni - Hamas
fékk rúm 43 prósent og Fatah rúm
40 prósent.
audunn@frettabladid.is
ÁTÖK VIÐ ÞINGHÚS Til stympinga kom milli fylgismanna Hamas og Fatah við þinghúsið í
Ramallah í gær. Fatah-menn reyndu að hindra Hamas-menn í að setja upp Hamas-fánann
í stað Palestínufánans. Nokkrir slösuðust og rúður brotnuðu af völdum steinkasts.
LJÓSMYND/GÍSLI PÁLL GUÐJÓNSSON
Stefnir í einangrun
Hamas-stjórnarinnar
Ungliðar í Fatah-hreyfingunni fóru mikinn í gær og beindu reiði sinni yfir
kosningaósigrinum gegn staðnaðri forystusveit Fatah og gegn Hamas-samtök-
unum sem nú taka við völdum. Af orðum ráðamanna í Ísrael og annarra ríkja
að dæma stefnir í að stjórn skipuð Hamas-liðum eingöngu fái litlu framgengt.