Fréttablaðið - 28.01.2006, Page 12
28. janúar 2006 LAUGARDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI:
Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI:
550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA:
Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
Rændi eftirlíkingu af skauti konu Ungur
maður braust inn í verslun með hjálpartæki
ástarlífsins og hafði á brott með sér eftirlíkingu
af skauti konu. Sennilega telst þetta ástríðuglæpur.
Hluthafar kolféllu í reikningi Hlutabréf í
lággjaldaflugfélaginu FlyMe hrundu um 67
prósent þegar réttur til að taka þátt í hlutafjár-
útboði rann út. Í raun og veru tvöfölduðust bréfin hins
vegar í verði þar sem gengið hefði átt að hrapa.
Klámtölvuveira herjar á tölvuheiminn
Klámtengd tölvuveira, Kamasútra að nafni,
ræðst nú á tölvukerfi um allan heim.
Björn segir verið að reyna að koma höggi á
sig Björn Ingi Hrafnsson taldi enga tilviljun
að sögusagnir af því að stuðningsmenn hans
hafi veitt unglingum áfengi hafi verið blásnar upp.
Hann sakaði stuðningsmenn annars frambjóðanda
um að reyna að koma höggi á sig.
Kate Moss baktalar Siennu opinskátt
Heimurinn stóð á öndinni yfir fréttum þess
efnis að ofurfyrirsætan Kate Moss hafi verið
gripin glóðvolg við að baktala leikkonuna Siennu
Miller.
Chris Penn fannst látinn Leikarinn Chris
Penn fannst látinn við fjölbýlishús í Santa
Monica í Kaliforníu í vikunni.
Anna Guðmundsdóttir, íbúi í Mjóafirði, er
hin fjörugasta þrátt fyrir háan aldur en vand-
ar pólitíkusum landsins ekki kveðjurnar.
Kristinn kommi og María mey Fulltrúi í
miðstjórn Framsóknarflokksins vill að Krist-
inn H. Gunnarsson segi af sér. Hann kallaði
Kristin komma, en líkti honum líka við Maríu mey.
Hjúkrurnarkona dæmd fyrir að rífa neglur
af sjúklingum Japönsk hjúkrunarkona var
dæmd í fangelsi fyrir að rífa neglur af fingr-
um og tám sjúklinga í sinni umsjá.
Flugdólgur reyndi að opna hurð á fljúgandi
ferð Kona olli nokkurri hræðslu meðal far-
þega um borð í SAS flugvél þegar hún reyndi
að opna hurð í 10 kílómetra hæð.
Fyrir
mannlegri
borg
Marsibil í 2. sætið
Munið að kjósa í
laugardalshöllinni
í dag frá 10 - 18
Reykjavík er ekki fjölmenn borg
á heimsmælikvarða. Það er vel
raunhæft að tryggja öllum
íbúum hennar mannsæmandi
lífsskilyrði. Það á að vera
forgangs- og metnaðarmál í
mannlegri borg þar sem hver
einstaklingur skiptir máli.
marsibil.is / málefni / greinar / dagbók / myndir
Það er fróðlegt og allt að því skemmtilegt að skoða upp-lýsingar um allar þær nefndir sem starfa á vegum eða í tengslum við ráðuneyti íslenska stjórnarráðsins. Listinn
er langur og þegar allt er talið kemur í ljós að nefndir, stjórnir,
ráð og starfshópar sem getið er á heimasíðum ráðuneytanna
eru alls 721.
Nefndirnar eru af ýmsu tagi og hlutverk þeirra eru mörg og
misjöfn. Sumar starfa samkvæmt lögum frá Alþingi en aðrar
hafa ráðherrar sett á fót til að sinna tilteknu verkefni. Sumum
er gert að starfa í tiltekinn tíma en aðrar hafa verið til um langt
skeið og verða sjálfsagt áfram.
Nöfn sumra nefndanna eru vel gegnsæ og augljóst hver verk-
efni eru. „Starfshópur um verðlagningu og aðgengi opinberra
upplýsinga“, sem starfar á vegum forsætisráðuneytisins, er
dæmi um slíkt, í það minnsta er auðvelt að draga þá ályktun að
verksviðið sé einfaldlega að fjalla um verðlagningu og aðgengi
opinberra upplýsinga. Erfiðara er hins vegar að ráða í hlutverk
„vinnuhóps vegna fulltrúa þeirra sem koma að framkvæmd
þjónustunnar og málefnum starfsmanna“, en sá ágæti vinnu-
hópur heyrir undir félagsmálaráðherra. Reyndar er tekið fram
á síðu félagsmálaráðuneytisins að vinnuhópurinn sé skipaður
í tengslum við stefnumótun ráðuneytisins í málefnum fatlaðra.
En er einhver nokkru nær um hlutverkið? Í félagsmálaráðu-
neytinu starfar einnig „starfshópur um mörk sveitarfélaga til
hafsins“.
Aðkallandi mál er í nefnd í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyt-
inu en þar er að störfum „nefnd um bættar svæðisbundnar töl-
fræðiupplýsingar“. Önnur og ekki síður aðkallandi er „nefnd
um uppfinningar starfsmanna“.
„Nefnd sem fylgjast skal með því að ekki verði misræmi í
kennslu og kennsluaðstöðu við framkvæmd námskeiða fyrir
vélgæslumenn“ starfar á vegum menntamálaráðuneytisins og
„kartöfluútsæðisnefnd“ er undir hatti landbúnaðarráðuneytis-
ins. Hlutverk hennar er: 1. Að beita sér fyrir því að ávallt sé völ
á heilbrigðu, völdu innlendu útsæði af þeim afbrigðum sem hér
henta best til ræktunar. Skal nefndin stuðla að því að heimild
fáist til útsæðisframleiðslu á eftirsóttum afbrigðum, þegar slík
framleiðsla er háð samkomulagi við handhafa kynbótaréttar.
2. Að ákveða hvaða afbrigði skulu tekin með í stofnræktun og
einnig að ákveða hvaða framleiðendur skulu teljast stofnrækt-
endur og gera við þá ræktunarsamninga samkvæmt ákvæðum
16. gr. reglugerðar nr. 66/1987. 3. Að fylgjast með framkvæmd
framangreindrar reglugerðar.
Og áfram skal haldið. „Samráðsnefnd um undirboðs- og
jöfnunartolla“, „nefnd um gæðamat á dúni“, „nefnd um efl-
ingu ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum“, „samráðsnefnd um
neysluvatn“ og „nefnd sem fylgist með vistunarmati aldraðra á
landsvísu“ eru dæmi um nefndir sem ráðuneytin hafa á sínum
snærum.
Og ein skal nefnd til viðbótar, tengslanefnd heitir hún og
starfar á vegum utanríkisráðuneytisins. Hlutverk hennar er að
auka tengsl varnarliðsmanna við íslenskt þjóðlíf og menningu.
Ríkisvaldið hefur löngum haft það orð á sér að vilji það
svæfa mál þá sé það sett í nefnd. Sé eitthvað hæft í þeim orðum
hefur tekist býsna vel til. ■
SJÓNARMIÐ
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
Nefndir, stjórnir, ráð og starfshópar á vegum
hins opinbera skipta hundruðum.
Málið sett í nefnd
Einangraður
Jón Baldvin Hannibalsson virðist ekki
sáttur við lífið og tilveruna eftir að þau
Bryndís fluttu heim eftir notalegt líf í
diplómatíunni utanlands undanfarin ár.
Eins og margir vita hafa þau hjón komið
sér fyrir í endurbyggðu sumarhúsi í Mos-
fellssveit. Eftir Bryndísi er haft í skemmti-
legu og opinskáu viðtali við Kolbrúnu
Bergþórsdóttur í Blaðinu
í vikunni: „[Jón Baldvin]
heldur því fram að við
séum einangruð í
afdal og búum í
hundakofa, hann
geti engan talað
við og verði að
flytja til borgar-
innar. Í fyrsta sinn
í okkar sambúð
hef ég hugleitt
það að skilja
bara við manninn.“ Við treystum því að
einhverjir góðir menn rjúfi einangrun
Jóns Baldvins og bjargi þannig einhverju
frægasta hjónabandi á Íslandi.
Það er síminn
Ýmsir urðu hissa þegar fréttist að Dags-
brún, móðurfélag 365 miðla og símafé-
lagsins OgVodafone, hefði keypt öryggis-
fyrirtækið Securitas. Hinir tortryggnustu
spurðu: Eru Baugsmenn að koma sér
upp einkaher eða lífvarðasveitum? Án
þess að það skuli útilokað (!) blasir þó
einfaldari skýring við. Þjónusta Securitas
og annarra svipaðra fyrirtækja byggir
að miklu leyti á þróaðri símtækni.
Viðskiptavinir skipta þúsundum.
Aldraðir og sjúkir eru með örygg-
ishnappa, hægt er að tengja
reykskynjara, vatnsskynjara og
innbrotanema við símtæki,
svo nokkuð sé nefnt.
Þetta höfðar til símafyrirtækis eins og
OgVodafone sem náði að klára samning
við eigendur Securitas á undan keppi-
naut sínum, Símanum.
10% í Dagsbrún
Það var tryggingarfélagið Sjóvá sem var
aðaleigandi Securitas. Aðaleigandi þess
er félagið Milestone sem Karl Wern-
ersson á. Hann hefur orðið æ meira
áberandi í viðskiptalífinu á undanförnum
árum. Karl lék stórt hlutverk í fléttunni
sem leiddi til þess að Baugur er smám
saman að verða lykilþátttakandi í
Íslandsbanka. Greiðslan fyrir Securitas
felst í hlutabréfum í Dagsbrún. Þar átti
Karl fyrir tæp þrjú prósent en á nú um
tíu prósent. Hann er því orðinn einn
af hinum stóru á bak við fjölmiðla- og
fjarskiptafyrirtækið Dagsbrún.
gm@frettabladid.is
Eitt sinn snerist sönn menntun fyrst
og fremst um guðrækni. Síðan urðu
til háskólar og hugmyndin um breiða,
almenna menntun festi rætur. Á 18.
öld hófu heimspekingar að breyta
heiminum með skynsemina að vopni.
Nú á 21. öldinni erum við komin í
hring og sönn menntun snýst aðeins
um eitt. Hin nýju vísindi aldarinnar
snúast um stjórnun.
Stjórnun er óskilgetið afkvæmi
skynsemishyggju upplýsingarinnar.
Stjórnendur eiga að beita óskeikulli
rökvísi við að taka réttar ákvarðanir.
Ákvarðanir sem eru réttar frá öllum
sjónarhornum og óháð því hver á
hlut. Hér er þó á sá annmarki að slík-
ar ákvarðanir eru ekki til. Um það
snýst pólitíkin, átök hagsmuna og
hugmynda þar sem hver reynir að
hafa sitt fram. Sú barátta getur verið
óvægin en hún er þó yfirleitt frekar
heiðarleg.
Vísindi stjórnunar felast í því að
afneita tilvist átaka og ólíkra hags-
muna. Stjórnandinn á að komast að
„réttri“ niðurstöðu án þess að velta
vöngum yfir því fyrir hvern niður-
staðan sé rétt. Stjórnun felst í því að
finna lausnir, ekki vangaveltum um
eðli tilverunnar. Gallinn er bara sá að
mannsandinn þroskast ekki án slíkra
hugmynda. Lausnin þarf ekki að
vera mikilvægari en ferlið sem leiðir
til hennar. Þessi fyrirvari er ókunn-
ur í hugmyndafræði stjórnunar. Þar
er lausnin svo mikilvæg að óhikað
má endurskilgreina markmiðin sem
henni var ætlað að leysa, reynist hún
ekki falla að þeim.
Núna eru öll embættiskerfi und-
irlögð hugmyndafræði stjórnunar.
Embættismenn beita henni til þess
að skipuleggja mikilvæga þætti í lífi
fólksins sem borgar þeim laun. Þeir
hanna heilbrigðiskerfi, menntakerfi
og borgarskipulag fyrir annað fólk
sem er ekki spurt en fær að tjá sig
í „grenndarkynningu“ eða kærum til
einhvers skipulagsapparats. Sums
staðar líta embættismenn á það sem
sitt helsta verkefni að njósna um
fólkið sem þeir eru í vinnu hjá. Það
eru þeir sem sjá um „öryggismál“.
En stjórnunaráráttan er ekki
bundin við kerfiskarla. Nútímaleg-
ir stjórnmálamenn eru fyrir löngu
orðnir samdauna þeim, komnir í
„lausnamiðaðan“ farveg og hættir að
hafa skoðanir eða sýn á samfélagið.
Nútímalegir stjórnmálamenn birtast
ekki almenningi nema sem alvitrir
tæknikratar sem sinna stjórnun.
Allar athugasemdir við störf þeirra
eru á misskilningi byggðar eða sett-
ar fram af annarlegum hvötum, ein-
hverri pólitík sem þeir eru að sjálf-
sögðu ekki að stunda sjálfir.
Annars væri ekki einu sinni hægt
að skilja pirring iðnaðarráðherra út
í fólk sem tekur þátt í lýðræðislegri
umræðu í stað þess að gleypa við
lausninni sem hún boðar við vanda
sem aldrei hefur verið tekinn til
umræðu. Álver er alltaf svarið, óháð
því hvort við munum eftir spurning-
unni. Einsýni þessa tiltekna ráðherra
er auðvitað ekki nema afbrigði af
hugsun sem er allsráðandi meðal
stjórnunarspekinga nútímans. Hag-
vöxtur er ekki lengur mælikvarði á
tiltekna þróun efnahagslífsins heldur
allsherjarlausn við öllum óskilgreind-
um vanda. Þá skiptir ekki máli hvort
sem hann er fenginn með gegndar-
lausri rányrkju, aukinni launavinnu
kvenna eða einhverju sem kalla má
raunverulega verðmætasköpun.
Hvernig væri heldur annars
hægt að skilja þrjáhyggju mennta-
málaráðherra sem vill gengisfella
stúdentsprófið án þess að stúdentar,
framhaldsskólakennarar eða nokk-
ur sem málið varðar hafi beðið um
það og enginn sýnilegur ávinning-
ur fáist af minni skólagöngu. Þess
konar vitleysa væri ekki möguleg
nema í umhverfi sem leggur ofurá-
herslu á stjórnun, að taka ákvarðanir
og lausnir án þess að vandinn hafi
nokkurn tíma verið skilgreindur. Ef
ráðherra hefði einsett sér að bæta
menntakerfið hefði lausnin varla
verið sú að gera menntun fólks bæði
rýrari og einhæfari. Í anda stjórnun-
arvísinda er hins vegar tekin ákvörð-
un og markmiðin síðan skilgreind til
þess að falla að henni.
Og þá komum við aftur að mennt-
uninni. Á öld þar sem stjórnun er
orðin æðst vísinda hefur breið og
almenn menntun engan tilgang. Hún
stuðlar að upplýsingu, gagnrýn-
inni hugsun og efahyggju. Allt slíkt
þvælist bara fyrir hinum nýju vís-
indum aldarinnar.
Á 21. öldinni eru ekki aðeins
„ismarnir“ dauðir. Það er ekki nóg að
við þurfum að horfa upp á „endalok
sögunnar“. Sjálf vísindabyltingin
er deyjandi, upplýsingin er að líða
undir lok. Hún er fórnarlamb eigin
rök- og skynsemishyggju sem hefur
afskræmst í hinum nýjum stjórn-
unarvísindum, „lausnamiðaðri“ rök-
hyggju sem býður ekki upp á fleiri
svör en eitt og leyfir engar spurn-
ingar sem ekki fela í sér rétta svar-
ið. ■
Hin nýju vísindi stjórnunar
Í DAG
VÍSINDI
SVERRIR
JAKOBSSON
Vísindi stjórnunar felast í
því að afneita tilvist átaka og
ólíkra hagsmuna.
MEST LESNU GREINARNAR Á VÍSI
Þessir greinar voru mest lesnar á visir.is vikuna 14. til 20. janúar
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10