Fréttablaðið - 28.01.2006, Síða 24
28. janúar 2006 LAUGARDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Sigurðsson
lést á föstudaginn 20. janúar á Vífilsstöðum. Jarðarför-
in hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þeim sem
vilja minnast hans er bent á Blindrafélagið. Síminn er
525 0000. Við þökkum fyrir góða hjúkrun og umönnum
á Vífilsstöðum.
Guðrún Ólafsdóttir Hörður H. Garðarsson
Hermann J. Ólafsson Jóhanna Þorvaldsdóttir
Sigurður Þ. Ólafsson Hildisif Björgvinsdóttir
Hilmar D. Ólafsson Jóhanna Egilsdóttir
Ólafur Ólafsson
Hlynur Ólafsson Sólborg Guðmundsdóttir
Reynir Örn Eiríkson
barnabörn og barnabarnabörn
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir
og mágkona,
Matthea Katrín Pétursdóttir
Álfaborgum 9
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju mánudaginn
30. janúar kl. 13.00
Snæbjörn Ólafsson
Ágústa Sigurðardóttir Lýður Ásgeirsson
Hilmir Freyr Sigurðsson Svanhildur Jóna Erlingsdóttir
Eva Björg Sigurðardóttir Aðalsteinn Jóhannsson
Auður Pétursdóttir Haraldur Finnsson
og barnabörn
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna
andláts og jarðarfarar
Maríu Kristjánsdóttur
Halldórsstöðum, Bárðardal.
Aðstandendur.
ANDLÁT
Dagbjört Sigurðardóttir, Tjösvoll-
vegen 33, Aakrehamn, Noregi, lést
20. desember síðastliðinn. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey.
Júlía Ólöf Bergmannsdóttir, Ill-
ugagötu 15, Vestmannaeyjum, lést
á heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
miðvikudaginn 25. janúar.
Sigríður G. Stefánsdóttir,
Hringbraut 50, áður Álftamýri 42,
Reykjavík, andaðist á elliheimilinu
Grund miðvikudaginn 25. janúar
JARÐARFARIR
11.00 Þórey Guðmundsdóttir,
Garðavegi 4, Hnífsdal, verður
jarðsungin frá Ísafjarðar-
kirkju.
14.00 Halldór Gunnarsson, Þver-
holtum, Mýrum, verður
jarðsunginn frá Borgarnes-
kirkju.
14.00 Hólmfríður Jónsdóttir, frá
Fagraneskoti, Hólavegi 2,
Laugum, verður jarðsungin
frá Einarsstaðakirkju.
14.00 Hjálmfríður S. Guðmunds-
dóttir, Silfurgötu 8a,
Ísafirði, verður jarðsungin frá
Ísafjarðarkirkju.
14.00 Sigrún Stefánsdóttir, verður
jarðsungin frá Siglufjarðar-
kirkju.
14.00 Skúli Ö. Kristjónsson frá
Svignaskarði, Egilsgötu 19,
Borgarnesi, verður jarðsung-
inn frá Reykholtskirkju.
14.00 Unnur Guðjónsdóttir frá
Kleifum, verður jarðsungin
frá Garpsdalskirkju.
14.00 Valgerður Einarsdóttir, áður
Núpi, Vestur-Eyjafjöllum,
verður jarðsungin frá Ásólfs-
skálakirkju.
KARLAMAGNÚS (747-814)
LÉST ÞENNAN DAG.
„Að kunna annað tungumál
er líkt og að eiga aðra sál.“
Charlemagne, Karl mikli eða Karla-
magnús var konungur Franka frá árinu
771 til 814.
Á þessum degi árið 1997 viður-
kenndu fjórir hvítir lögreglumenn
að hafa orðið Stephen Biko, leið-
toga suður-afrísku hreyfingarinnar
Svörtu samviskunnar, að bana
árið 1977.
Árið 1969 stofnaði lækna-
neminn Biko samtök til að svartir
námsmenn gætu barist gegn
aðskilnaðarstefnu stjórnvalda og
til að koma á samkennd meðal
blökkumanna. Árið 1972 aðstoð-
aði hann við skipulagningu á ráð-
stefnu blökkumanna og árið eftir
bannaði Búastjórnin honum taka
þátt í stjórnmálaum.
Fjórum árum síðar var hann
handtekinn fyrir niðurrifsstarfsemi.
Hann var barinn á hrottalegan hátt
í varðhaldi í Port Elisabeth og keyrt
með hann um þúsund kílómetra
leið til Pretoríu þar sem honum var
kastað í fangaklefa. Þann 12. sept-
ember árið 1977 andaðist hann,
nakinn, í hlekkjum á skítugu gólfi
í spítalaálmu fangelsisins.
Fréttir af drápinu bárust um
allan heim og mikil mótmæli
brutust út en stjórnvöld neituðu
ávallt að hafa komið nálægt morð-
inu.
Árið 1995 var komið á nefnd
til að rannsaka þann tíma sem
aðskilnaðarstefna stjórnvalda ríkti.
Desmond Tutu friðarverðlaunahafi
var formaður nefndarinnar. Þeir
sem játuðu brot sín skýlaust nutu
oftar en ekki friðhelgi. Lögreglu-
mönnunum sem játuðu morðið á
Biko var hins vegar neitað um það.
ÞETTA GERÐIST > 28. JANÚAR 1997
Viðurkenna morðið á Biko
STEPHEN BIKO
MERKISATBURÐIR
1547 Hinrik VIII Englandskon-
ungur andast og níu ára
sonur hans tekur við.
1815 Innsigli Reykjavíkur er sam-
þykkt af stjórnarráðsskrif-
stofunni í Kaupmannahöfn.
1837 Suðuramtsins húss- og
bústjórnarfélag er stofnað.
Nafni þess var breytt
nokkrum sinnum og heitir í
dag Bændasamtök Íslands.
1907 Sláturfélag Suðurlands, SS,
er stofnað.
1912 Íþróttasamband Íslands er
stofnað í Bárubúð.
1917 Eftir nærri ellefu mánuði
er leitinni að Pancho Villa
hætt.
1986 Geimskutlan Challenger
springur í loft upp sjö
sekúndum eftir flugtak. Sjö
láta lífið.
Í dag er síðasti dagur kín-
verska ársins sem kennt
er við græna viðarhanann.
Á morgun hefst nýtt kín-
verskt ár sem í þetta sinn
verður ár rauða hundsins.
Nýárshátíðin er mesta hátíð
Kínverja og stendur hún
í fimmtán daga og hefur
hver þeirra sína merkingu.
Á þessum tíma eru margir í
fríi og svo gott sem öll þjóð-
in á faraldsfæti á meðan á
henni stendur.
Nýja árinu verður fagn-
að í dag með drekadansi
sem farinn verður niður
Laugaveginn. Lagt verður
af stað frá Hlemmi klukk-
an 14.00. Í göngunni verð-
ur fimmtán metra langur,
litríkur dreki sem eltir
perlu og endar dansinn í
ráðhúsinu þar sem þátttak-
endur frá Heilsudrekanum
munu sýna taichi-leikfimi,
kungfu-wushu bardagalist í
Tjarnarsal. Stjórnandi sýn-
ingarinnar verður eigandi
Heilsudrekans, Dong Qing
Guan. Dong hefur búið á
Íslandi í fjórtán ár og hefur
haldið í suma af þeim siðum
sem Kínverjar viðhafa á
þessum tímamótum.
„Þar sem ég á fyrirtæki
hérna býð ég alltaf starfs-
mönnum til að fagna síð-
asta degi ársins með því að
borða sérstakan kínverskan
mat sem er yfirleitt í boði á
þessum degi í Kína,“ segir
Dong sem oftast tekur sér
frí á fyrsta degi ársins en
ætlar að breyta út af venj-
unni í ár. „Ég ætla að nýta
daginn til að bjóða fólk
velkomið í Heilsudrek-
ann til að kynna kínverska
menningu af ýmsum toga,
eins og heilsufræði, kínver-
skaleikfimi eða list,“ segir
Dong sem opnar búð sína
fyrir gestum og gangandi á
morgun frá klukkan níu til
sex um kvöldið.
Í Kína standa hátíðahöld-
in yfir í rúmar tvær vikur.
Sem Íslendingur hefur
Dong ekki tíma fyrir slíkt.
„Við erum eins og aðrir
venjulegir Íslendingar og
þurfum að vinna,“ segir
hún glaðlega. Hún segist
reyna að gera eins mikið
og mögulegt sé til að halda
nýárið hátíðlegt en saknar
samt sem áður áramótanna
í Kína. „Í Kína er þetta
mjög stór hátíð. Krakkarnir
eru mjög spenntir því þeir
fá rauð umslög með pen-
ingum í. Í fimmtán daga er
fólk endalaust að koma eða
fara í heimsókn. Fólki er
boðið í góðan mat og ýmis-
legt annað,“ segir Dong en
hátíðahöldin hér á landi eru
allt öðru vísi enda vantar
alla stórfjölskylduna. „Hins
vegar horfa allir Kínverjar,
hvort sem þeir eru heima
eða í útlöndum, á sérstakan
fjögurra klukkutíma ára-
mótaþátt í sjónvarpinu,“
segir Dong glaðlega en í
þættinum má líta hefðbund-
ið kínverskt sjónvarpsefni
sem að sögn Dong er ákaf-
lega skemmtilegt. ■
KÍNVERSKA NÝÁRIÐ: HEFST Á MORGUN
Rauða hundinum fagnað
DREKADANS Stiginn verður í dag drekadans niður Laugaveginn í annað
sinn. Myndin er frá hátíðahöldunum í fyrra þegar fagnað var komu græna
viðarhanans.FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÍNVERSKT NÝÁR Á ÍSLANDI Dong Qing Guan hefur búið á Íslandi í fjórtán ár. Hún ætlar að kynna kínverska menn-
ingu fyrir Íslendingum í Heilsudrekanum á sunnudag, á fyrsta degi árs rauða hundsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Elskuleg systir mín,
Jóhanna Sigurbjörnsdóttir
lést 11 janúar á Hrafnistu v/Kleppsveg. Jarðaförin hefur
farið fram í kyrþey.
Jóhannes Sigurbjörnsson
TILBOÐ
Á LEGSTEINUM,
FYLGIHLUTUM
OG UPPSETNINGU
10-50% AFSLÁTTUR
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is