Fréttablaðið - 28.01.2006, Síða 31
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsing r á visir.is
elísabet
vill bara
ánægða
viðskiptavini
Vátryggjandi er Tryggingamiðstöðin hf.
BETRI KJÖR Á BÍLATRYGGINGUM
OG BÍLALÁNUM
Sigurjón Andersen er varaformaður
íslenska kvartmíluklúbbsins og mikill
áhugamaður um bíla. Dags daglega
ekur hann hins vegur um á Dodge
Stratus RT.
Sigurjón vinnur sem smiður en
aðaláhugamálið eru bílar, enda ekki hægt
að vera varaformaður Kvartmíluklúbbsins
án þess að vera ekta bíladellukall. Þó að
fjölskyldubíllinn hans Sigurjóns sé ekki
mikið tryllitæki miðað við það sem hann
notar í kvartmílukeppnir þá er Dodge-
inn alvöru fjölskyldukaggi. ,,Þetta er fínn
fjölskyldubíll, tveggja dyra og 210 hestöfl
með V6 vél og fleira,“ segir Sigurjón
og brosir út í annað. Yngsta barnið í
fjölskyldunni er orðið 21 árs og því segir
Sigurjón að hann og mamman geti vel þeyst
um ein á bílnum.
Sigurjóni finnst afar mikill kostur að
bíllinn er bandarískur. ,,Það er mjög gott að
hafa kraft í honum og Dodge-inn liggur einnig
mjög vel. Mér finnst skemmtilegt að hafa
þokkalega aflmikinn fjölskyldubíl. Ég hef
heldur aldrei átt annað en bandaríska bíla,“
segir Sigurjón og bætir við að bandarískir
bílar vinni vel og séu yfirleitt mjög flottir í
laginu. ,,Það fékkst heldur ekki mikið annað
hérna í gamla daga. Ég er einmitt búinn að
eiga tryllitækið mitt í 25 ár.“
Sigurjón á sér auðvitað draumabíl eins
og aðrir alvöru bílaáhugamenn. ,,Það er nýr
Dodge Challenger sem kemur frá Chrysler
árið 2007. Það er líklegt að maður reyni að
krækja sér í hann.“
Margir hljóta samt að spyrja sig hvernig
konan á heimilinu taki þessari bíladellu.
,,Hún tekur alltaf vel í þetta. Hún er mjög
tillitssöm og tekur þátt í þessu líka. Hún
hefur aldrei staðið í vegi fyrir dellunni og
sýnir áhuga líka, þó kannski aðeins minni
en ég sjálfur,“ segir Sigurjón að lokum,
greinilega ánægður með sína konu.
steinthor@frettabladid.is
Konan afar tillitssöm
Handhafar svarta kortsins geta
ferðast til einhvers af áfanga-
stöðum Icelandair í Evrópu fyrir
19.000 vildarpunkta en venjulegt
punktaverð er 38.000 punktar
á mann. Tilboðið stendur til
10. febrúar og ferðatímabilið er
febrúarmánuður.
Vætuveður hefur heldur betur
sett svip sinn á landið að und-
anförnu. Því er ekki úr vegi að
fá sér stígvél sem henta mjög
vel í svona tíð. Fjölbreytnin er
mikil og hægt er að fá margar
skemmtilegar gerðir af stígvélum.
Nýr Citroën-sýningarsalur verður
opnaður hjá Brimborg um helg-
ina. Hið nýja húsnæði Citroën er
á sex þúsund fermetra lóð við
hliðina á húsi Brimborgar við
Bíldshöfða 6 þar sem Bifreiðaeft-
irlitið var áður til húsa. Salurinn
er um 400 fermetrar og rúmar
12 sýningarbíla.
ALLT HITT
[BÍLAR, FERÐIR OG TÍSKA]
GÓÐAN DAG!
Í dag er laugardagurinn
28. janúar, 28. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 10.20 13.41 17.02
Akureyri 10.19 13.25 16.32
Sigurjón Andersen við Dodge Stratus, fjölskyldukaggann sinn. Í bakgrunni glyttir í tryllitækið hans, Plymoth
Roadrunner. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Heimild: Almanak Háskólans
REYNSLUAKSTUR
Hyundai Getz er lipur og
skemmtilegur borgarbíll. Þetta
er smábíll sem er þeim kostum
búinn að vera lítill að utan en
stór að innan. BÍLAR 2
SILFURSVEIFLA
Þótt gullið hafi verið áber-
andi í vetur er silfrið sígilt
og mun áreiðanlega sækja
á með vorinu BÍLAR 2