Fréttablaðið - 28.01.2006, Qupperneq 32
[ ]
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Alhliða réttingar og sprautun
Þrautreyndir starfsmenn
Cabas tjónaskoðunarkerfi
Þjónustuaðili Heklu
Skemmuvegur 46 • 200 Kópavogur
S. 557 1430 & 587 1430 • Fax: 567 0087
Netfang: jonasar@jonasar.is
Gabriel höggdeyfar, ASCO kúplingssett, Tridon spindilkúlur,
stýrisendar, gormar. Drifliðir, drifliðshlífar, ballansstangir.
Tímareimar, ökuljós, stefnuljós o.fl. Sætaáklæði, sætahlífar á
stóla – vatnsheldar fyrir veiðimenn, hestamenn o.fl.
Kerruljós, kerrubretti og nefhjól.
Sími 567 6744 • Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík
Bílljós eru með mikilvægustu öryggistækjum
hvers bíls. Það er mjög mikilvægt að gleyma aldrei
að setja ljósin á því það getur skapað mikla hættu.
Hyundai Getz kom nýr á mark-
aðinn árið 2003. Fram að þessu
hefur hann verið í boði með 1,3 og
1,6 lítra vélum og verður sú fyrr-
nefnda leyst af hólmi með 1,4 lítra
vél en auk hennar mun með vor-
inu bætast við 1,1 lítra vél.
Hyundai Getz er ákaflega
aðgengilegur bíll, einn af þessum
sem manni finnst maður þekkja
um leið og sest er undir stýri. Í
útliti, bæði að utan og innan eru
farnar hefðbundnar leiðir. Bíllinn
er samt sportlegri og rennilegri
í útliti en fyrirrennarinn, með
ákveðnari framsvip og nettari
afturstuðara. Innréttingar hafa
yfir sér nokkuð vandað yfirbragð
og hafa einnig fengið andlitslyft-
ingu og eru aðlaðandi og þægileg-
ar.
Af öryggisbúnaði má nefna
ESC-stöðugleikastýringu, krumpu
svæði sem gerir að verkum að
framhlið bílsins gefur eftir við
árekstur og dregur þannig úr
höggi auk styrktra stálbita sem
taka við höggi á hlið bílsins.
Reynsluekið var Getz, bein-
skiptum með nýju 1,4 lítra vélinni.
Hann reyndist ágætlega lipur og
skemmtilegur. Nokkuð snjóþungt
var dagana sem reynsluekið var
og var Getzinn svo sem enginn
jálkur en stóð sig þó þokkalega.
Aðalsmerki Getzins er að hann er
lipur borgarbíll, nettur að utan en
um leið vel rúmgóður að innan.
Meira að segja farþegar í aftur-
sæti hafa ágætt pláss fyrir fætur,
svo framarlega sem framsætis-
farþegar eru ekki úr hófi frekir
til plássins.
Það eru góðar fréttir að Getzinn
mun ekki taka verðbreytingum
þrátt fyrir að um breytta útgáfu
sé að ræða. Verðið liggur á bilinu
frá 1.230.000 og upp í 1.490.000
og stefnt er að því að verðið á 1,1
lítra bílnum verði rétt rúmlega
1.100 þúsund.
Hyundai Getz hlýtur að teljast
vænlegur kostur í vali á smábíl.
Þarna er á ferðinni lipur bíll á
góðu verði en um leið vel búinn
bæði með tilliti til öryggis og
þæginda.
steinunn@frettabladid.is
Traustur og yfirlætislaus smábíll
Nú um helgina verður nýr Hyundai Getz frumsýndur hjá B&L. Bíllinn er nokkuð breyttur í útliti og
kemur nú með tveimur nýjum vélum. Af öðru nýnæmi má nefna að MP3 spilari er nú staðalbúnaður
í bílnum.
Hyundai Getz
Dyr Vél Hestöfl Verð
GLS 3 1400 81 1.230.000 (beinskiptur)
GLS 5 1400 81 1.330.000 (beinskiptur)
Sport 5 1600 104 1.450.000 (beinskiptur)
GLS 5 1600 104 1.390.000 (beinskiptur)
GLS 5 1600 104 1.490.000 (sjálfskiptur)
Hyundai Getz er laglegur og með sportlegt útlit.
Farnar eru hefðbundnar leiðir í miðju-
borðinu.
Færanlegur öskubakki sem komið er
fyrir í glasahaldara er að verða algengur.
Sérkennilegt er þó að þessi augljósa og
aðgengilega hönnun náði ekki að ryðja
sér til rúms fyrr en þorri almennings var
hættur að reykja í bílum.
Mælaborðið er skýrt og með hefð-
bundnu útliti.
Framsvipur Getzins er ákveðnari en á fyrirrennaranum.
Skottið er ágætlega rúmgott fyrir hvunn-
dagsnotkun og auðvelt er að fella niður
aftursæti og auka þannig flutningsgetuna
til muna.
REYNSLUAKSTUR