Fréttablaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 28. janúar 2006 3
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
Honda sló sölumet á bílum, aflvélum og mótorhjól-
um í Evrópu á síðasta ári.
Metsala var á Honda-bílum í Evrópu árið 2005
og seldust alls 285.924 eintök. Er það 11,8
prósenta aukning frá árinu á undan.
Þetta er annað árið í röð sem
Honda slær sölumet í Evrópu.
Honda hefur nú sett stefnuna á
að slá sölumet aftur árið 2006
og hefur áformað sölu á 310.000
ökutækjum í Evrópu sem er 8
prósenta aukning við sölutölur
ársins 2005.
Að auki hefur sala Honda í Evr-
ópu á aflvélum aukist í 3.453.516
árið 2005, um 9,3 prósent. Einnig
jókst sala mótorhjóla um 2,7 pró-
sent í 282.520 árið 2005.
Metsala hjá Honda í Evrópu
Breska bílablaðið WhatCar?
hefur valið BMW 320d ES Sal-
oon sem bíl ársins 2006.
BMW bílaframleiðandinn hefur
notið vaxandi velgengni að und-
anförnu sem má að miklu leyti
rekja til vinsælda nýju 3 línunnar.
Á verðlaunaafhendingu WhatCar?
bar BMW sigur úr býtum í tveimur
flokkum, auk þess að hreppa titil-
inn eftirsótta.
Af þeim fjölmörgu verðlaunum
og viðurkenningum sem 3 línan
hefur hampað að undanförnu er
að sögn Heiðars J. Sveinssonar,
forstöðumanns sölusviðs B&L,
WhatCar? titillinn eflaust sætasti
sigurinn, ekki síst þar sem þetta
er í fyrsta sinn sem BMW hlýtur
þann titil.
,,Sem dæmi um aðrar viður-
kenningar hefur 3 línan verið
valin bíll ársins hjá Auto Express
og Test Drive, auk þess sem hún er
fyrsta línan hjá BMW sem hefur
verið valin The Scottish Car of the
Year. Sá titill þykir reyndar einn sá
eftirsóknarverðasti í Evrópu, þar
sem skilyrðin eru fremur ströng í
því vali. Nú síðast hlaut 3 línan the
Fleet Excellence Awards verðlaun-
in sem veitt eru árlega í Bretlandi
fyrir bestu fyrirtækjabílana. Því
má svo bæta við að meira en 30.000
áskrifendur að Fleet Week völdu 3
línuna besta bílinn eða The User
Chooser Car of the Year,“ segir
Heiðar að lokum. ■
3 línan frá BMW
nýtur velgengni
Nýr sportbíll frá Porsche,
Cayman S, er til sýnis í Bíla-
búð Benna.
Cayman S er nýjasta afkvæmið frá
Porsche og staðsettur milli Box-
ster og 911 Carrera. Cayman S er
byggður á sömu hugsun og Box-
ster en vélin liggur í miðjum bíln-
um sem tryggir honum fullkomna
þyngdardreifingu. Ný og öflugri
vél gerir bílinn að skemmtilegri
viðbót í Porsche-fjölskylduna.
Vélin er sex strokka og 3,4 lítra
sem skila 295 hestöflum við 6250
snúninga. Jöfn þyngdardreifing
ásamt framúrskarandi stífleika
í yfirbyggingu gera Cayman S að
veglegum bíl en hann fór Nurburg
hringinn á aðeins 8,11 mínútum.
Bíllinn verður til sýnis í Bílabúð
Benna í dag milli klukkan 11 og 16.
Nýr Porsche Cayman S
Bretar hafa löngum getið sér
gott orð sem bílaþjóð, frá Rolls
Royce til Land Rover og allt þar
á milli. Bretar geta verið stolt-
ir af bílunum sínum, þó að mér
finnist reyndar að þeir ættu að
færa sig yfir á hægri vegar-
helminginn fljótlega. Bíltúr í
London á annatíma er nefnilega
ekkert grín.
Bretar virðast líka almennt
hafa nokkuð mikinn áhuga á
bílum. Þeir stunda mjög vandaða
blaðamennsku og þáttagerð sem
lýtur að bílum og luma á snið-
ugum ráðum hvað umgengni og
rekstur þeirra varðar. Eitt þeirra
er sérlega hentugt og á vel við á
Íslandi, ekki síst nú þegar kalt er
í veðri og nauðsynlegt að vera
undir allt búinn. Áður en Bretinn
leggur í‘ann hefur hann í huga
eitt orð, eða skammstöfun öllu
heldur: PETROL.
P stendur fyrir petrol sem
þýðir eldsneyti. Þeir spyrja sig:
Er eldsneyti á bílnum? Hvar fæ
ég eldsneyti á leiðinni? Er ferðin
skipulögð þannig að ég geng ekki
of mikið á tankinn? Hef ég nægi-
legt eldsneyti á milli áfyllinga ef
ég þarf að bíða í bílnum eða fara
aðra leið en til stóð?
E stendur fyrir electricity (raf-
magn). Er rafgeymirinn í lagi? Er
ég með startkapla? Er ég með
aukaöryggi?
T stendur fyrir tires (hjól-
barða). Er jafn þrýstingur í
öllum dekkjum? Er bíllinn rétt
dekkjaður miðað við aðstæð-
ur? Eru dekkin hrein eða þarf
að tjöruhreinsa þau? Er ég með
varadekk eða viðgerðarsett?
Hvað með tjakkinn?
R stendur fyrir radiator
(vatnskassa). Er vatnskassinn
fullur? Er ég með aukakæli-
vökva? Lekur hann kannski?
Virkar miðstöðin?
O stendur fyrir oil (olíu). Er
næg olía á mótor, skiptingu og
drifum? Er undirvagninn smurð-
ur? Er ég með aukaolíu á mótor,
skiptingu og drif?
L er síðasti stafurinn og
stendur hann fyrir lights (ljós).
Eru allar perur heilar? Virka
háu ljósin og aukaljós á bílnum?
Eru ljósin hrein? Ætti ég að vera
aukaperur, t.d. í kastara og aðal-
ljósum, til vonar og vara?
Þetta er sáraeinfalt og þræl-
virkar. Með því að muna þetta
eina orð getum við í fljótheitum
farið yfir ástand bílsins og metið
hvort við erum tilbúin í ferða-
lag. Ef ekki, er bara tvennt að
gera - græja það sem á vantar og
dunda sér við það á meðan að snúa
þessu snjallræði á íslenska tungu.
Tillögur óskast.
Breska aðferðin
Honda CR-V hefur verið einn vinsælasti bíll Honda-framleiðandans undanfarin ár, bæði hér og
annars staðar í Evrópu.
Nýja 3 línan frá BMW hefur verið að hala inn viðurkenningum að undanförnu.
Nýji Cayman S bíllin frá Porsche þykir vel
heppnaður og hámarkshraði hans er 275
km/klst.