Fréttablaðið - 28.01.2006, Page 39
LAUGARDAGUR 28. janúar 2006 9
Bjartmar Þórðarson leikari fylg-
ist með tískunni en skapar sér
jafnframt eigin stíl.
Bjartmar lærði leiklist í Webb-
er Douglas leiklistarskólanum í
London og er nú í söngnámi í Tón-
listarskólanum í Kópavogi. Hann
hefur í mörgu að snúast þessa
dagana. „Ég er að leika í Túskild-
ingsóperunni í Þjóðleikhúsinu
og Annie í Austurbæ, syngja í
Le Sing á Broadway og tala inn á
teiknimyndir,“ segir Bjartmar en
auk þessa tekur hann þátt í þriðju
undankeppni Evróvisjón sem sýnd
verður í sjónvarpinu laugardags-
kvöldið 4. febrúar.
Bjartmar hefur mikinn áhuga
á tísku og finnst skemmtilegt
að kaupa sér föt. Hann segist
hafa sérstaklega gaman af því
að versla í London og New York.
„Mér finnst almennt ekki nógu
fjölbreytt úrval af karlmannsföt-
um hér heima en uppáhaldsbúð-
irnar mínar hérna eru Elvis og
All Saints.“
Bjartmar segist ekki fylgja
tískunni í blindni. „Ég reyni alltaf
að skapa mér minn eigin stíl innan
þess sem er í gangi hverju sinni.“
Bjartmar á sér eina uppáhalds-
flík. „Ég er nýbúinn að fá peysu
úr All Saints. Ég fékk hana í jóla-
gjöf og var búinn að biðja um
hana. Hún er dökkgrá og hneppt
og allir hnapparnir eru mismun-
andi. Hún er sniðin öll svona á ská
og er ofsalega skemmtileg. Ég er
í þessari peysu stanslaust núna,“
segir hann. Bjartmar á aðra peysu
sem er líka í miklu uppáhaldi hjá
honum og hann segist hafa átt
hana í svona tíu ár. „Það er svört
prjónapeysa sem er ofboðslega
hlý og þægileg. Ég hef notað hana
næstum því stanslaust síðan ég
fékk hana og er ofsalega tregur til
að hætta því, alveg sama hversu
ljót hún er orðin. Ég myndi segja
að hún væri svona „best of“ og ég
staga bara í hana þegar hún dett-
ur í sundur,“ segir Bjartmar og
hlær. emilia@frettabladid.is
Þessir ljósu skór eru
þýsk gæðavara með
merki Peter Kaiser.
Meira að segja sólinn er
úr leðri.
Svartir rúskinnskór með
leðursóla. Ekta ítalskir
dansskór frá Bruno
Magli.
Sparilegir skór úr
ekta leðri og með
leðursóla, þýskir frá
Peter Kaiser.
Skór úr einstaklega
mjúku og vönduðu
leðri frá Etienne
Aigner. Sólinn er
stamur.
Lág og nett leður-
stígvél frá Marco
Polo.
Þeir sem hafa augun hjá sér geta
fundið vandaðan notaðan fatnað í
verslunum Rauða krossins og Hjálp-
ræðishersins.
Hægt er að gera afar góð kaup
á vönduðum fatnaði í verslunum
Hjálpræðishersins við Garða-
stræti og Rauða krossins við
Laugaveg. Þar er meðal annars
stundum hægt af finna lítið notaða s k ó
frá dýrum merkjum sem fást fyrir 500-1.500
krónur en kosta undir venjulegum kringum-
stæðum tugi þúsunda. Við hnýsuðumst í einn skó-
skáp hér í bæ og fundum ýmislegt fallegt - og allt
úr fyrrgreindum búðum.
Góðir skór á
góðu verði
Elvis og All Saints uppá-
haldsbúðirnar
Bjartmar í nýju peysunni úr All Saints. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Max Mara mokkasí-
ur af vönduðustu
gerð.