Fréttablaðið - 28.01.2006, Page 67
LAUGARDAGUR 28. janúar 2006 47
Dita Von Teese er senni-
lega best þekkt fyrir að
vera frú Marilyn Manson.
Stúlkan er þó þekkt fyrir
annað því hún starfar sem
dansmey og fyrirsæta.
Dansmey af því tagi sem
fækkar fötum er hún dans-
ar.
Þegar hún er ekki í
vinnu og alklædd er hún
sjaldnast í tuskulegum
fötum enda segist hún
vera háklassadansmey
og kemur aðeins fram á
flottustu stöðunum fyrir
flottasta fólkið. Dita er
frá litlum bæ í Michigan
og hefur dáð kvikmynd-
ir frá fimmta áratugnum
síðan hún var lítil stelpa.
Fatastíll hennar ber af því
nokkurn keim en ungfrú-
in lítur út eins og gamal-
dags kvikmyndastjarna.
Hún safnar höttum,
skóm og fötum frá fyrri
tímum og dáir gamaldags
tísku. Dita fylgir engum
straumum, fer eftir eigin
smekk, og mun sennilega
aldrei sjást með ljósar
strípur og appelsínugula
brúnku. Það sem er sér-
staklega einkennandi
fyrir Ditu er hennar föla
húð, hárauðar varir og
hinir hrikalega háu hælar
sem hún klæðist við hvert
tækifæri. Mörgum þykir
Dita vera ein best klædda
kona heims í dag svo nú
ætti Kate Moss að fara að
vara sig.
Í PELS Það virðist
allt fara Ditu vel.
Í BLÁU Hér er Dita við opnun Marc Jacobs-
búðar í Melrose Place. Blái kjóllinn fer henni
einstaklega vel. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Eins og gamaldags kvikmyndastjarna
Það virðist vera afar eftirsókn-
arvert að vera með þykkar og
þrýstnar varir. Ein vinsælasta
snyrtivaran í Bandaríkjun-
um í dag er LipFusion-gloss
sem er þeim kostum búið að
stækka varirnar á þeim sem
ber það á sig. Lipfusion inni-
heldur collagen-agnir
sem smjúga, að sögn
framleiðendanna, inn
í varirnar og tútna út
og varirnar þar af
leiðandi líka. Þetta
er ný tækni þar sem
önnur varastækk-
andi efni hafa inni-
haldið koffín eða
mentol sem veldur
ertingu þannig að
varirnar tútna út.
Að sögn fram-
leiðenda Lipfusion
er best að bera
glossið á sig áður
en farið er að sofa
og þá verða varirn-
ar fallega þrýstnar
morguninn eftir og
geta verið svo í allt
að 48 klukkustund-
ir. Þessi vara fæst
ekki hérlendis en
hægt er að panta
hana á netinu eða
bara kaupa hana í
næstu utanlands-
ferð.
Eflaust er vara-
samt að treysta
um of á að vörur
eins og LipFusion
stækki varirnar, en miðað við
vinsældirnar hið ytra hlýtur
þetta að hafa einhver áhrif.
Auk þess er mun vænlegra að
fjárfesta í svona glossi en að
fara í lýtaaðgerð og láta sprauta
collageni í varirnar og eiga þá
á hættu að líta út eins og gúbbí-
fiskur það sem eftir er.
Stærri varir
án aðgerðar
FERSKJU-
LITUR
Þetta
gloss er í
fallegum
lit og gefur
vörunum
meiri
fyllingu.
GLÆRT Lip-
Fusion-gloss
sem stækkar
varirnar.
Opið lau.: 11:00 - 16:00
1.990-
Verð áður: 2.990-
4.990-
Verð áður: 6.960-
14.980-
Verð áður: 19.970-
1.990-
Verð áður: 2.890-
990-
Verð áður: 1.990-
1.990-
Verð áður: 4.860-
2.990-
Verð áður: 3.890-
11.740-
Verð áður: 18.850-
1.875-
Verð áður: 3.870-
Úrval l jósa á frábæru verði!
Allt að 70afsláttur%
BLÓMARÓS
Hér er Dita
í fallega
grænum kjól
og með blóm
í hárinu.
KVIKMYNDA-
STJARNA Dita
í einum af
sínum gamal-
dags klæðnaði.