Fréttablaðið - 28.01.2006, Side 68
28. janúar 2006 LAUGARDAGUR48
STÚLKAN: „Ég bjó í Vestmanna-
eyjum í æsku en við fluttumst
fljótlega til Parísar. Ég kom
samt til Íslands á hverju sumri
og dvaldi hjá afa og ömmu. Hélt
þannig íslenskunni við. Pabbi átti
antíkbúð í París, eina þá flottustu
í borginni og ætli búðar áhugi
minn hafi ekki smitast frá honum.
Ég bjó í Frakklandi þar til ég og
maðurinn minn ákváðum nýlega
að okkur langaði til að börnin
lærðu íslensku. Við fluttum þá
til Íslands og opnuðum Kisuna en
okkur hafði lengi dreymt um að
opna búð. Við erum ótrúlega góð
í að kaupa,“ segir hún og hlær. „Í
búðinni seljum við bara hluti sem
okkur þykja fallegir, tónlist sem
við elskum og ýmislegt sem okkur
langar til að kynna fyrir fólki.“
FATASTÍLLINN: „Þegar ég var lítil
elskaði ég að fara á flóamarkaði
í Frakklandi. Ég er mjög hrifin
af „vintage“-fötum og flóamark-
aðirnir eru sennilega það sem
ég sakna mest frá Frakklandi.
Ég elska líka Marni, Miu Miu og
Isabel Marant.“
MORGUNNINN: „Fyrst á ég smá
lúxustíma fyrir sjálfa mig áður
en ég vek dóttur mína. Þá les ég
frönsk dagblöð og hef það nota-
legt. Svo vek ég litlu og við leik-
um okkur eða syngjum saman.
Ég er með au pair frá Frakklandi
sem heitir Dora og það sem við
elskum mest er að fara á Kaffitár
og fá okkur dýrindis kaffi. Þetta
finnst mér það besta við Ísland,
kaffið hérna er svo gott, en kaff-
ið í Frakklandi er ódrekkandi. Ég
held að þeir noti hryllilega krana-
vatnið í kaffið á kaffihúsunum.“
Á DAGINN: „Ég er alltaf í voðalega
þægilegum skóm og svo er ég oft-
ast með risastórar töskur því ég
er með allt lífið mitt í þeim.“
Á KVÖLDIN: „Fer ég í háhælaða
skó og bæti kannski smá farða á
andlitið. Þá skipti ég líka stóru
töskunni út fyrir einhverja litla
sæta og fer kannski í fallegan kjól
sem ég nota annars sjaldan.“
ÞRÍR HLUTIR SEM EINKENNA ÞÓR-
UNNI: „Ég elska að gera svona
collage (klippimynd). Svo er ég
mikil fjölskyldukona. Það síðasta
sem ég ætla að nefna er hversu
blönduð ég er. Ég upplifi mig að
minnsta kosti þannig.“
BÚÐIR: „Á Íslandi eru
það Trilogia,
Steinunn, 38
þrep og svo
elska ég líka
að gramsa í
barnafatabúð-
um. Í Köben
fann ég hina
f u l l k o m n u
b a r n a f a t a b ú ð
sem heitir Crème
de la Crème. Fríða
frænka minnir svo-
lítið á góðan flóa-
markað.“
ÞRÁHYGGJA: „Ég
legg mikla áherslu á að vera glöð
og eins hamingjusöm og ég mögu-
lega get. Ég held að það sé mik-
ilvægt að lifa eins og dagurinn í
dag sé næstum því sá síðasti.“
SKARTGRIPIR: „Ég elska stóra og
fína hringa og hálsmen. Ég keypti
nýlega eitt frá Marni sem er úr
stórum baunum og er eiginlega
eins og dýrindis listaverk.“
ILMVATN: „Ég nota ilmvatn sem
við seljum í búðinni. Þetta er van-
illuilmur sem er léttur og góður.“
HÁRIÐ: „Það er erfitt að ráða við
hárið á mér. Ég er alltaf að reyna
að hafa það fínt.“
FARÐI: „Ég elska farða sem sést
lítið. Samt finnst mér gaman að
vera með rauðan varalit eða mála
mig um augun. En ég geri ekki
bæði í einu, það er of mikið.“
FRÍ: „Ég elska Ítalíu, veðrið og
ítalska matinn. Við fórum oft
þangað þegar við bjuggum í
Frakklandi. Við ætlum reyndar
þangað núna í mars.“
HEIMA: „Þar er alltaf
mikið líf og fjör
því við fáum oft
til okkar vini
frá Frakklandi.
Ég sakna vin-
kvenna minna
mikið en þær
eru voða sætar
að koma oft í
heimsókn.“
Þ Ó R U N N A R
KVÖLD: „Að hitt-
ast með vinum er
skemmtilegast. Þá
fáum við forrétt
sem gefur okkur
forsmekkinn að
matnum sem bíður okkar en mað-
urinn minn er ógurlega góður kokk-
ur. Svo drekkum við kampavín eða
margarítu með. Sunnudagskvöld
eru líka hin fullkomnu kvöld því þá
sýnum við börnunum okkar mynd-
ir. Ég og maðurinn minn skiptumst
á að velja fyrir þau góðar mynd-
ir og þessi kvöld eru óskaplega
hugguleg.“
BARINN: „Ég elska 101 bar, mér
finnst hann fallegur og skemmti-
legur. Annars fer ég ekkert mikið
á bari því þar byrjar fjörið yfir-
leitt ekki fyrr en um tvö og það er
of seint fyrir mig,“ segir hún og
hlær.
DRYKKURINN: „Margaríta er best.“
TÓNLIST: „Það er eitt sem ég elska
sem er íslenskt og franskt og
það er Lady and bird, eða Barði
og Keren Ann og Stinu Norden-
stam, Camille frá Frakklandi og
CocoRosie. Svo er ég líka ógur-
lega hrifin af klezmertónlist og
sígaunatónlist.“
KVIKMYNDIR: „Ég elska gamlar
gamanmyndir eins og Some Like
It Hot og fleiri frá þeim tíma. Svo
er ég ógurlega hrifin af banda-
rískum sjálfstæðum myndum eins
og Buffalo 66 og Punch-Drunk
Love.“
BÆKUR: „Það er ein sem ég er
að lesa núna sem heitir Salka
Valka. Mér finnst hún alveg stór-
kostleg. Hún er svo nútímaleg
og ótrúlega skemmtileg, að ég
get ekki hætt að lesa. Ég elska
líka bandarískar bækur og þá er
rithöfundurinn Paul Auster í upp-
áhaldi. Ég er líka hrifin af pólska
rithöfundinum I.B. Singer og svo
les ég auðvitað ýmsar franskar
bækur.“
TÍMARIT: „Ég er áskrifandi að
franska Elle og Vogue en ég les
líka breska Vogue og ýmis frönsk
blöð sem eru ekki til hér.“
TÍSKUFYRIRMYND: „Ég held ég
segi bara Sofia Coppola, mér
finnst hún æðisleg. Hún er líka
frábær leikstjóri og mér fannst
fyrsta myndin hennar, Virgin
Suicides, best.“
BORGIN: „Róm, New York, París,
Mílanó og svo auðvitað Reykjavík.“
FRAMTÍÐIN: „Ég held að það séu
miklar breytingar framundan.
Ég er á þannig stað núna að það
er mikið rúm fyrir ýmsar breyt-
ingar.“ ■
ÞÖKKUM
FRÁBÆRAR
MÓTTÖKUR
NÝTT
BLAÐ KOMIÐ
Í VERSLANIR
bleikt og blátt 1
�����������������������������������������������������������
ekki ÆtlaÐ viÐkvÆmum
og lesendum yngri en
����
HEIMUR
Á ÍSLANDI
GULLNA STURTAN
kynlífVillt
�����
������
������
����
� ������ �������
�
�
�
��������������
�����������������
�������
COLLAGE Þórunn er dugleg að gera
klippimyndir.
STÍLLINN HENNAR... ÞÓRUNNAR
KAFFITÁR Hún er einstaklega ánægð með
kaffið á Íslandi.
ÞÓRUNN ANSPACH
Með fína hálsmenið
frá Marni.
KISAN Í búðinni úir og grúir af skemmtilegu
dóti.
Hún hefur búið í Frakklandi mestalla ævina en
talar samt fallega íslensku og notar orðin „ég
elska“ yfir allt mögulegt. Hún er ljúf og skemmti-
leg og ef hún væri dýr væri hún kisa enda rekur
hún búðina Kisuna ásamt manninum sínum.
Borghildur Gunnarsdóttir fékk að vita meira um
Þórunni Anspach.
Það er búin að vera mjög spennandi
hlutafjáraukning í German Wings-flug-
félaginu,“ segir Hlynur Áskelsson, betur
þekktur sem Ceres 4, um frétt vikunnar.
„Þetta er lággjalda flugfélag sem
flýgur frá Skandinavíu til Þýskalands. Ég
skellti mér á hlutabréf og held að Pálmi
í Fons sé að veðja á rangan hest og held
að German Wings eigi eftir að taka þetta
allt saman. Þetta flugfélag flýgur yfir Evr-
ópu eins og þýski örninn og ég held að
íslenskir fjárfestar þurfi að fara að vara
sig á því. Ég treysti þessum íslensku
mógúlum ekki lengur. Ég held að þetta
eigi allt eftir að springa í höndunum á
þeim og þess vegna vil ég leita á örugg-
ari mið, sem í þessu tilfelli er Þýskaland,“
segir hann. „Ég keypti mér farmiða frá
Hamborg til Stokkhólms fyrir mig og son
minn á 1.200 krónur. Þessi kostakaup
mín á þessum farmiða og hlutabréfa-
kaupin eru frétt vikunnar að mínu mati.“
Hlynur ætlar að dvelja í Þýskalandi
hjá ættingjum sínum á meðan á heims-
meistarakeppninni í Þýskalandi stendur.
Hann ætlar að kynnast stemningunni
í landinu en ætlar þó ekki að fara á
úrslitaleikinn. „Ég kannski skelli mér til
Berlínar til að horfa á þetta á breiðtjaldi
við Brandenborgarhliðið.“ -fb
FRÉTT VIKUNNAR CERES 4
Skellti sér á hlutabréf
í German Wings
CERES 4 Söngvar-
inn Ceres 4 keypti
sér hlutabréf í
þýsku flugfélagi í
vikunni.