Fréttablaðið - 28.01.2006, Side 71
Bono, söngvari U2, ætlar með
hjálp nokkurra fyrirtækja að setja
á markað vörur undir heitinu Red.
Eitt prósent ágóðans mun renna
til baráttunnar gegn alnæmi, berkl-
um og malaríu í Afríku. „Þetta er
mjög svalt,“ sagði Bono. „Það er
svalt að vilja breyta heiminum.“
Á meðal þeirra fyrirtækja sem
taka þátt í verkefninu eru Amer-
ican Express, Converse, Gap og
Giorgio Armani. ■
Nýtt
vörumerki
BONO Söngvari U2 ætlar að setja á markað
vörumerkið Red. Einn hundraðasti ágóðans
mun renna til góðgerðarmála.
Hljómsveitin Placebo, sem hélt vel
heppnaða tónleika í Laugardalshöll
árið 2004, gefur út plötuna Meds
þann 13. mars.
Síðasta plata sveitarinnar,
Sleeping With Ghosts, kom út 2004
og fékk prýðilegar viðtökur gagn-
rýnenda. Seldist hún í 1,4 milljón-
um eintaka um heim allan og komst
á lista yfir 10 vinsælustu plötur
Bretlands. Alls hafa selst yfir ein
milljón platna í Bretlandi og sex
milljónir um heim allan.
Meds, sem er fimmta breiðskífa
Placebo, var tekin upp á átta vikum
í London og var einfaldleikinn hafð-
ur í fyrirrúmi. „Við leyfðum lögun-
um að njóta sín í stað þess að reyna
að sýna hversu góðir við værum í
að nota hljóðverið. Við völdum ein-
faldleikann í staðinn fyrir að liggja
of mikið yfir hlutunum,“ sagði
Brian Molko, söngvari Placebo.
Sveitin fer í tónleikaferð um
heiminn til að fylgja plötunni eftir,
og hefst hún í suðaustur Asíu í
næsta mánuði á 100 Rock-hátíðinni
í Bangkok. ■
Meds kemur í mars
PLACEBO Rokksveitin Placebo gefur út plötuna Meds þann 13. mars. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT
[TÓNLIST]
UMFJÖLLUN
Ég er búinn að vera mjög smeyk-
ur við að hlusta á þessa plötu. Þess
vegna hefur hún líka legið á hill-
unni hjá mér í nokkrar vikur. Ég
sá Stebba Undur loka Live 8 sjón-
varpsútsendingunni síðasta sumar
og var ekki mjög skemmt. Hann
má svo sannarlega muna sinn
fífil fegurri. Hann þurfti meira
að segja aðstoð við að standa upp-
réttur. Maðurinn var orðinn svip-
að stór og ráðvilltur og hvalurinn
sem lést í Thames-ánni á dögun-
um.
Á Live 8 tók hann nokkra
slagara, eitt afleitt lag af þessari
nýju plötu, smáskífuna So What
the Fuzz, en endaði svo á laginu
klassíska Superstition og sýndi
að hann getur enn fundið grúvið í
myrkrinu, ef hann bara nennir að
þreifa eftir því.
Það var því þó nokkur léttir að
heyra að Stevie Wonder fellur ekki
í þá gryfju á þessari fyrstu breið-
skífu sinni í 10 ár að elta þann stíl
sem tröllríður meginstraumnum
í dag. Þó svo að nokkur laganna
styðjist við trommuforritun þá
hljóma þau aldrei eins og það sé
verið að elta hljóm Kanye West
eða r&b tónlistarmanna á borð við
Mary J. Blige.
Stevie Wonder hljómar ennþá
eins og Stevie Wonder. Eini gall-
inn er að hann er enn fastur í sömu
væmnu og geldu leiðindunum og
hann festist í eftir að I Just Call-
ed to Say I Love you varð stærsti
slagari hans frá upphafi. Held að
væmnari og klisjukenndari textar
en þessir finnist varla í dag. Orðið
„Love“ kemur fyrir svona 40 sinn-
um í hverju lagi. Eða á svona 15
sekúndna fresti. Ef maðurinn er
í alvörunni svona fullur af ást og
hann er að reyna sannfæra hlust-
endur sína á þessari plötu þá hlýt-
ur hann að vera hamingjusamasti
hvalur jarðar.
Stevie hefur ennþá gott skyn-
bragð fyrir melódíum. Hljóma-
gangar hans eru svolítið í djass-
aðri kantinum, en það er ekkert
hægt að setja út á spilamennsku
eða flutning hans hérna. Það er
öllu bjartara yfir blinda undrinu
á plasti en var á Live 8 tónleikun-
um. Versti galli plötunnar er þó
hversu löng hún er. Stevie fyllir
út í hverja sekúndu á plássi geisla-
disksins, sem veldur því að hlust-
andinn þarf að fórna 78 mínútum
af ævi sinni, ætli hann að komast í
gegnum alla plötuna. Platan hefði
bókað orðið betri sem heild hefði
hann skorið út þrjú til fjögur upp-
fyllingarlög.
Plötur Stevie Wonder hafa ekki
náð mikilli almenningshylli síðustu
tuttugu árin eða svo. Þessi á því
miður ekki eftir að brjóta þá hefð.
Birgir Örn Steinarsson
Ástarhvalurinn blæs
STEVIE WONDER:
A TIME TO LOVE
Niðurstaða: Stevie Wonder rýfur 10 ára
útgáfuþögn með plötu sem er því miður allt
of væmin og löng til þess að hægt sé að njóta
hennar almennilega. Sýnir þó að hann er ekki
búinn að missa náðargáfu sína endanlega.