Fréttablaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 73
LAUGARDAGUR 28. janúar 2006 53
FÓTBOLTI Chelsea tilkynnti í gær
um 140 milljóna króna tap á
rekstri félagsins fyrir árið 2005
sem er það hæsta sem nokkurt
knattspyrnufélag hefur tilkynnt
um.
Upphæðin kemur þó ekki á
óvart en tap félagsins í fyrra var
88 milljónir punda en Chelsea
borgaði Umbro svo 25 milljónir
punda til að losna undan samn-
ingi við íþróttavöruframleið-
andann auk þess sem 23 millj-
ónir töpuðust á kaupunum á
Juan Sebastien Veron og Adrian
Mutu.
„Þetta er hluti af áætlun
okkar um að vera á sléttu árið
2010 og þá eru þeir pening-
ar sem við fáum frá Samsung
vegna nýs styrktarsamnings við
þá ekki inni í þessum tölum,“
sagði Peter Kenyon stjórnarfor-
maður Chelsea um tapið mikla.
- hþh
Mikið tap á rekstri Chelsea:
140 milljóna
punda tap
BILLJÓNAMÆRINGUR Á ekki í vandræð-
um með að borga skuldir Chelsea.
FÓTBOLTI Robbie Fowler skrifaði
mjög óvænt undir samning við
sitt gamla félag Liverpool fram
á sumar í gær. Samningurinn
verður endurskoðaður þegar
hann rennur út í sumar en Fowler
kom frítt til liðsins frá Manchest-
er City, þar sem hann hefur lítið
fengið að spila að undanförnu.
„Við höfum fengið til okkar
leikmann sem hefur gríðarlega
mikla ástríðu fyrir klúbbnum og
hann mun setja gott fordæmi fyrir
alla leikmenn hvað það varðar,“
sagði Rafael Benítez stjóri Liver-
pool um Fowler.
„Þetta er gleðiefni fyrir alla hjá
klúbbnum, ég held að ég hafi aldrei
séð neinn sem er svona glaður yfir
því að koma til liðsins. Fólk getur
talað um að kaupa leikmenn fyrir
háar fjárhæðir en við fengum til
okkar leikmann sem elskar liðið
og það er ekki hægt að setja verð-
miða á þá. Við erum nálægt því að
komast í hæstu hæðir og Robbie
getur hjálpað okkur að komast
þangað,“ sagði Benitez. „Ef ég á
að vera hreinskilinn bjóst ég ekki
við því að fá tækifæri til að koma
til Liverpool aftur. Mig hefur aug-
ljóslega alltaf langað til að koma
aftur til Liverpool og ég gæti ekki
verið ánægðari með þetta, ég er
alveg í skýjunum,“ sagði Fowler
við komuna til síns gamla félags.
Fowler er lifandi goðsögn á
meðal stuðningsmanna liðsins
en hann skoraði 170 mörk fyrir
liðið á árunum 1993 til 2001 þegar
hann fór til Leeds, en hann er þrí-
tugur að aldri. Fowler fór síðan
til Manchester City árið 2003 þar
sem hann hefur átt erfitt upp-
dráttar en snýr nú aftur heim en
hann er uppalinn hjá Liverpool.
Robbie Fowler gengur til liðs við Liverpool á nýjan leik:
Týndi sonurinn snúinn heim
FOWLER KOMINN HEIM Stuðnings-
menn Liverpool vilja meina að endur-
koma Robbies Fowler til félagsins séu
bestu tíðindi sem þeim hafa borist
síðan Gerard Houllier var rekinn.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og upptökur þegar þér hentar
Visir.is er stærsta fréttalind landsins. Þar miðla Fréttablaðið og Nýja fréttastofan fréttum allan
sólarhringinn og nú er NFS í beinni á VefTV frá morgni til kvölds. Þú færð fréttirnar beint í æð
í vinnunni eða heima og upptökur af fréttum dagsins tryggja að þú missir ekki af neinu.
FÓTBOLTI „Leikurinn gegn Spáni
er eitt stórt spurningarmerki,“
sagði Eggert Magnússon, for-
maður KSÍ, um fyrirhugaðan
vináttulandsleik gegn Spáni sem
fara átti fram í sumar en fer
sjálfkrafa í óvissu þar sem þjóð-
irnar drógust saman í riðil í und-
ankeppni EM.
„Stefnan hjá stóru þjóðunum
er yfirleitt að spila ekki vináttu-
landsleiki gegn þjóðum sem þeir
lenda með í riðli, en það er ekki
hægt að staðfesta neitt á þessu
stigi málsins. Það er auðvitað
skemmtilegra að mæta þeim í
undankeppni EM heldur en í vin-
áttuleik og þeir vildu spila við
okkur í ágúst. Það hefði hentað
okkur mjög vel þar sem Laug-
ardalsvöllurinn verður tilbúinn
þá,“ segir Eggert sem þó lofar
að vináttuleikur milli Íslands og
Spánar muni eiga sér stað.
„Ef ekki verður af leiknum
í sumar er alveg ljóst að kollegi
minn hjá spænska knattspyrnu-
sambandinu skuldar mér einn
vináttulandsleik í framtíðinni,“
sagði Eggert léttur í lundu, enda
í skýjunum yfir riðlinum sem
Ísland var dregið í.
„Þetta er frábær riðill og
stutt ferðalög, auk þess sem við
náum að fylla Laugardalsvöllinn
þrisvar í það minnsta.“ - hþh
Drátturinn í undanriðlana fyrir EM veldur usla:
Ekki leikið gegn Spáni?
SPÆNSKA LANDSLIÐIÐ Spænska landsliðið mun líklega ekki koma til Íslands og spila
vináttulandsleik. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI Minnesota Timber-
wolves og Boston Celtics hafa
skipt á sjö leikmönnum með það
fyrir augum að hrista upp í liðum
sínum en hvorugut liðið hefur
verið upp á marga fiska í NBA-
deildinni í vetur. Mestu munar
um framherjann Wally Szczerbiak
sem fór til Boston og bakvörðinn
Ricky Davis sem fer til Minnes-
ota.
Boston fær auk þess miðherj-
ann Michael Olowokandi, Dwayne
Jones og valrétt í nýliðavalinu.
Minnesota fær til sín miðherjann
Mark Blount, leikstjórnandann
Marcus Banks, framherjann Just-
in Reed og tvo valrétti í annari
umferð nýliðavalsins.
- hþh
NBA deildin í körfubolta
Stór skipti
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
31
00
5
0
1/
20
06
Aðalfundur Landsbanka Íslands hf. verður haldinn
á Nordica hótel laugardaginn 4. febrúar kl. 14.
Tilkynna skal um framboð til bankaráðs eigi síðar en 5 dögum fyrir aðalfund. Dagskrá,
endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins ásamt skýrslu endurskoðenda liggja frammi í
Aðalbanka Landsbankans, Austurstræti 11, Reykjavík, hluthöfum til sýnis. Einnig er hægt að
nálgast þessi gögn á www.landsbanki.is
Gerð er tillaga um breytingu á samþykktum félagsins um að bankaráði verði heimilt að fela
formanni bankaráðs að sinna ákveðnum verkefnum í þágu félagsins umfram þau sem tengjast
reglulegum fundum bankaráðs. Hluthöfum er bent á að kynna sér tillögurnar fyrir fundinn.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við inngang í upphafi fundar.
Dagskrá:
1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans sl. starfsár.
2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda
lagður fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps
á síðastliðnu reikningsári.
4. Tillögur til breytinga á samþykktum.
5. Tillaga um að heimila bankanum að kaupa eða taka að veði
allt að 10% af eigin bréfum.
6. Kosning bankaráðs.
7. Kosning endurskoðenda.
8. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil.
9. Önnur mál.
Bankaráð Landsbanka Íslands hf.
Aðalfundur 4. febrúar 2006