Fréttablaðið - 28.01.2006, Side 74
28. janúar 2006 LAUGARDAGUR54
EM Í HANDBOLTA
HENRY BIRGIR GUNNARSSON
skrifar frá Sursee í Sviss.
henry@frettabladid.is
Íslenska liðið á heiður skil-
inn fyrir frábæra frammistöðu
gegn Dönum og var landi og þjóð
til sóma. Krafturinn í liðinu var
gífurlegur og það skein úr andliti
hvers og eins leikmanns að það
kom ekki neitt annað en sigur til
greina í þessum leik.
Fjarvera Ólafs Stefánssonar
gerði það sem ég vonaðist til,
hún þjappaði mönnum enn betur
saman. Auðvitað er svekkjandi
að hafa ekki gengið með bæði
stigin í burtu en engu að síður
er frábært að ná einu stigi úr
leiknum. Það er mjög jákvætt að
framtíð Íslands, eins og ég kýs að
kalla þessa þrjá leikmenn fyrir
utan, hafi náð að spila jafn vel og
raun bar vitni.
Í mínum huga er Arnór Atla-
son maður leiksins. Hann steig
fram, var óragur og gerði það
sem maður saknaði úr leikn-
um gegn Serbum. Snorri spilaði
handbolta eins og hann hafi ekki
gert neitt annað alla sína ævi og
sýndi mikla yfirvegun. Það má
ekki gleyma þætti varnarinnar
og Birkis Ívars sem var mjög
öflugur, sérstaklega í fyrri hálf-
leiknum. Liðið sýndi gífurlegan
styrk að koma til baka í lokin
og með smá heppni hefðum við
getað farið burt með bæði stigin.
Við söknuðum Ólafs Stefáns-
sonar mikið í þessum leik sem
og Guðjóns Vals en saman skor-
uðu þessir menn átján mörk í
fyrsta leiknum. Ólafur er ekki
með og Guðjón skorar aðeins eitt
mark og það gerir þetta stig enn
sætara fyrir vikið.
Ég hefði viljað sjá Viggó Sig-
urðsson taka leikhlé mun fyrr
í fyrri hálfleiknum, þá í stöð-
unni 14-11 en ekki í 14-14. Viggó
breytir svo í 6-0 vörn sem gerir
gæfumuninn en hún hefði jafn-
vel mátt koma fyrr auk þess sem
Hreiðar hefði átt að koma fyrr
inn á. Þetta eru þó hlutir þar sem
má segja að auðvelt er að vera
vitur eftir á.
Viggó má vera sáttur í leiks-
lok. Það væri hverju liði erfið tíð-
indi á leikdegi að fá þær fregnir
að Ólafur Stefánsson yrði ekki
með. Liðið bregst þó frábærlega
við og á svo sannarlega framtíð-
ina fyrir sér enda á fínum aldri.
Hvað sem gerist í framhaldinu
eru þetta mjög góð úrslit og það
besta í þessu er að við eigum einn
leik eftir en erum samt öruggir
áfram með þrjú stig.
Með sigri á Ungverjum
tryggjum við okkur væntanlega
efsta sætið í riðlinum. Það er
því mikilvægur leikur framund-
an og miðað við framganginn í
tveimur fyrstu leikjunum er ekki
annað hægt en að vera bjartsýnn
á framhaldið.
Landi og þjóð til sóma
ÍÞRÓTTALJÓS
ÍSLENSKA
LANDSLIÐIÐ
Í HANDBOLTA
Á EM Í SVISS
GEIR SVEINSSON
SÉRFRÆÐINGUR FRÉTTABLAÐSINS
HANDBOLTI Íslenska liðið byrj-
aði leikinn með miklum látum
og komst fljótt í 5-1 en óhætt er
að segja að byrjunin hafi komið
á óvart enda liðið án Ólafs Stef-
ánssonar sem fór á kostum gegn
Serbum. Íslenska liðið leiddi
nánast allan fyrri hálfleikinn og
mest með fimm mörkum, 14-9. Þá
hrundi leikur liðsins, Danir gengu
á lagið, skoruðu fimm mörk í röð
og jöfnuðu, 14-14. Ísland skoraði
lokamark fyrri hálfleiks og leiddi
með einu í leikhléi, 15-14.
Þessi munur á liðunum hélst
áfram í byrjun síðari hálfleiks en
mikið taugastríð var háð í síðari
hálfleiknum þar sem hver mistök
voru dýr.
Danir efldust við hverja raun
og komust yfir í fyrsta skipti í
leiknum síðan í stöðunni 0-1 þegar
Lars Christiansen skoraði sitt
fyrsta og eina mark í leiknum, 24-
25 fyrir Dani.
Danir náði síðan tveggja marka
forskoti, 26-28, en Ísland skor-
aði síðustu tvö mörk leiksins og
tryggði sér jafntefli. Reyndar gátu
íslensku strákarnir „stolið“ sigrin-
um þar sem þeir fengu lokasókn-
ina en skot Petersson fór yfir.
Liðið er komið áfram og það
með þrjú stig. Það er stórkostleg-
ur árangur og ekki hægt að leyna
því að liðið á nú frábæra mögu-
leika til að vera í einu af sex efstu
sætunum og jafnvel að komast í
undanúrslit.
Strákarnir sýndu mikinn kar-
akter í gær án Ólafs, hraðaupp-
hlaupanna og engri markvörslu í
síðari hálfleik. Það segir sitt um
styrk liðsins. Arnór Atlason reif
sig upp var ómetanlegur. Snorri
dró vagninn og stýrði liðinu eins
og herhöfðingi og gafst aldrei upp
þótt skotin væru ekki að ganga.
Alexander Petersson var frábær
í vörninni og skoraði mikilvæg
mörk. Gríðarlega vanmetinn leik-
maður þar á ferðinni sem er að
reynast gulls ígildi á þessu móti.
Birkir var stórkostlegur í fyrri
hálfleik en á alltaf erfitt með að
leika heilan góðan leik og það
verður hann að bæta.
Jafntefli í taugastríði
Ísland og Danmörk skildu jöfn, 28-28, í spennuþrungnum leik þar sem taugar
leikmanna og áhorfenda voru þandar til hins ítrasta. Jafnteflið kemur Íslandi
áfram í milliriðil og mun liðið taka þrjú stig með sér þangað.
TRÖLLIÐ SKORAR Sigfús Sigurðsson átti mjög góðan leik gegn Dönum í gær og skoraði úr
öllum þremur skotum sínum í leiknum. Þá stóð hann vaktina vel í vörninni og lét dönsku
leikmennina sannarlega finna fyrir því. FRÉTTABLAÐIÐ/BÖDDI
EM í handbolta:
A-riðill
Ekkert leikið í riðlinum í gær.
Staðan í riðlinum
PÓLLAND 1 1 0 0 33-24 2
SLÓVENÍA 1 1 0 0 29-25 2
SVISS 1 0 0 1 25-29 2
ÚKRAÍNA 1 0 0 1 24-33 2
B-riðill
Ekkert leikið í riðlinum í gær.
Staðan í riðlinum
FRAKKLAND 1 1 0 0 35-21 2
ÞÝSKALAND 1 0 1 0 31-21 1
SPÁNN 1 0 1 0 31-31 1
SLÓVAKÍA 1 0 0 1 21-35 1
C-riðill
UNGVERJALAND-SERBÍA/SVARTF. 24-29
Gergö Ivancsik 6, Tamas Ivancsik 5 - Zikica
Milosavljevic 8, Dragan Sudzum 6.
ÍSLAND-DANMÖRK 28-28
Mörk Íslands (skot innan sviga): Snorri Steinn
Guðjónsson 10/6 (16/6), Arnór Atlason 7 (15),
Sigfús Sigurðsson 3 (3), Alexander Petersson 3
(7), Guðjón Valur Sigurðsson
1 (2), Róbert Gunnarsson 1 (2).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 12/2, Hreið-
ar Guðmundsson 2. Hraðaupphlaup: 2 (Sigfús,
Arnór). Fiskuð víti: 6 (Róbert 3, Guðjón, Sigfús,
Arnór). Brottrekstrar: 4 (8 mínútur).
Mörk Danmerkur: Per Leegaard 6, Joachim Bold-
sen 5, Michael Knudsen 4, Sören Stryger 4, Lars
Jorgensen 2, Mikkel Aagaard 1, Lars Möller Mad-
sen 1, Bo Spellerberg 1, Jesper Noddesbo 1, Lars
Christiansen 1.
Staðan í riðlinum
ÍSLAND 2 1 1 0 64-59 3
DANMÖRK 2 1 1 0 57-53 3
SERBÍA/SVART. 2 1 0 1 60-60 2
UNGV.LAND 2 0 0 2 49-58 0
D-riðill
PORTÚGAL-RÚSSLAND 32-35
Ricardo Costa 6, Eduardo Coelho 5 - Alexey Pes-
kov 6, Eduard Kokcharev 6, Yuriy Egorov 5.
NOREGUR-KRÓATÍA 28-32
Kristian Kjelling 6, Alex Buchmann 4, Frank Loke
4, Jan Thomas Lauritzen 4 - Ivano Balic 8, Renato
Sulic 7, Blazenko Lackovic 5, Slavko Goluza 5.
Staðan í riðlinum
KRÓATÍA 2 2 0 0 56-49 4
RÚSSLAND 2 2 0 0 59-53 0
PORTÚGAL 2 0 0 2 53-59 0
NOREGUR 2 0 0 2 49-56 0
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
HANDBOLTI Keppnismaðurinn
Snorri Steinn Guðjónsson var ekk-
ert sérstaklega brosmildur eftir
leikinn þótt Ísland væri komið
áfram. Hann vildi meira.
„Auðvitað vildi ég sigur. Við
vorum kannski ekki betri aðilinn í
leiknum en ég tel okkur vera með
betra lið en Danirnir. Það var smá
basl á sókninni í kvöld og svakaleg
spenna. Þegar litið er á heildina þá
er jafntefli kannski sanngjarnt,“
sagði Snorri Steinn en hinn get-
spaki faðir hans, íþróttafrétta-
maðurinn Guðjón Guðmundsson,
spáði jafntefli, 28-28. Geri aðrir
betur. - hbg
Snorri Steinn Guðjónsson:
Auðvitað vildi
ég sigur
HANDBOLTI Ólafur Stefánsson fyr-
irliði sat uppi í stúku og hann
neitaði því ekki að það hefði verið
erfitt að horfa upp á taugastríðið
án þess að geta hjálpað til. Ólafur
meiddist í baki gegn Serbum og
gat ekki leikið með.
„Þetta var rosalega erfitt en ég
er stoltur af mínum mönnum og
stiginu sem við náðum í þessum
leik,“ sagði Ólafur á sama tíma
og fyrirrennari hans og góðvinur,
Dagur Sigurðsson, kom aðvífandi
og faðmaði hann. - hbg
Ólafur Stefánsson:
Rosalega erfitt
HANDBOLTI „Fínt að gera jafntefli
við Dani því við vorum ekki að
spila vel,“ sagði Guðjón Valur Sig-
urðsson sem bar fyrirliðabandið
í fjarveru Ólafs Stefánssonar.
Danir lögðu mikið upp úr því að
loka á hann og gerðu það vel enda
skoraði Guðjón aðeins eitt mark
í leiknum sem telst ekki mikið á
þeim bænum.
„Ég var varla inn í leiknum og
auðvitað er ég ekki sáttur við það.
Það var maður að elta mig allan
leikinn og mér gekk illa að losa
hann af mér. Framhaldið verður
áhugavert enda komnir áfram
með fína stöðu.“ - hbg
Guðjón Valur Sigurðsson:
Vorum ekki að
spila vel
HANDBOLTI Viggó Sigurðsson
landsliðsþjálfari var vígreifur
eftir leikinn en hann fagnaði vel
og innilega í leikslok.
„Ég var að fagna þar sem við
erum komnir áfram með þrjú
stig. Hefðum við tapað værum við
komnir upp að vegg fyrir Ung-
verjaleikinn. Það er frábært að
ná stigum gegn þessum þjóðum
og við erum að ná öllu því sem
hægt er út úr liðinu,“ sagði Viggó
en hann hefði alveg sætt sig við
að síðasta skot leiksins hefði farið
inn hjá Dönum.
„Það hefði verið smá heppni
og við vorum líka heppnir enda
vorum við að brotna undan þeim.
Liðið sýndi mikinn karakter og
hægt að hrósa mönnum eins og
markvörðunum, Arnóri og Snorra
Steini.“
Viggó gerir sér vel grein fyrir
því að það er hægt að gera stóra
hluti með stigin þrjú í farteskinu
og hann fer ekki leynt með það.
„Serbarnir fara með okkur
áfram og ég hef trú á því að þeir
hirði stig af Króötum og Rúss-
um. Danir eiga líka eftir að láta
til sín taka þannig að það er allt
opið. Það eru stórir möguleikar að
gera góða hluti og málið er í okkar
höndum,“ sagði Viggó Sigurðsson
glaðbeittur. - hbg
Viggó Sigurðsson:
Þetta er í
okkar höndum
MEIDDIR Ólafur Stefánsson og Roland
Valur Eradze horfðu á leikinn úr stúkunni.