Fréttablaðið - 28.01.2006, Page 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
60 02 .V .B
s
met sy S
AEKI
re tn I
©
4.900,-
HEMLIS herðatré 5 í pk.
ýmsir litir 95,-
KOMPLEMENT plastbox
50x58 sm 790,-
ANEBODA kommóða m/3 skúffum
80x40x100 sm 6.950,-
LINNAN fatahirsla
35x39x50 sm 1.890,-
VESTBY fataskápur
90x50x180 sm
290,-
290,-
Barnamáltíð
kjúklinganaggar,
franskar og safi
KOMPLEMENT
skúffuskilrúm 50x58 sm
OMSORG
skóþvinga 95,-
LINNAN hilluhengi
15x34x110 sm 1.290,-
LINNAN skúffa
15x34x15 sm
LOGGA snagi 39 sm 490,-
KOMPLEMENT fellanleg fataslá
46x44 sm 1.190,-
SANDNES skóskápur með
4 skúffum 69x17x165 sm 12.900,-
REDD skóhilla
60x30x14 sm 590,-
LIDAN körfur 4 stk.
1 stk. 18x29x19 sm
1 stk. 15x25x15 sm
2 stk. 15x11x11 sm
1.190,-
690,-
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 20:00 | www.IKEA.is
Skpiulag
í skápunum...
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
����������
���������
���������������
Ég er undrandi – þótt ekki missi ég svefn – á þeirri tilhneig-
ingu vel lesinna Íslendinga á besta
aldri að heimta í sífellu álver
fyrir byggðarlag sitt. Því var spáð
þegar Austfirðingar fengu stór-
iðju, og fögnuðu með Alcoafán-
um í kjölfarið, að þá myndu fleiri
vilja fá álver líka og það virðist
hafa gengið eftir. Fjórar álvers-
framvæmdir eru á teikniborðinu,
hvorki meira né minna. Og færri
fá en vilja, enn um sinn.
FYRIR utan það að vera á móti
óhóflegum álversframkvæmdum
af umhverfisástæðum sé ég ekki
alveg hvernig Íslendingum er sér-
stakur greiði gerður með meira
áli. Það hljómar þversagnarkennt
að ætla sér að auka fjölbreytni í
íslensku atvinnulífi með því að
byggja bara, með áherslu á bara,
álver. Auk þess er álver klunnaleg
leið, mörkuð gamaldags ríkisaf-
skiptum, til þess að auka hagvöxt.
Og líklega skammvinn í þokkabót.
ÉG efast um um að álverið á Reyð-
arfirði og tengdur rekstur eigi eftir
að vera spennandi atvinnukostur
fyrir unga, upprennandi Austfirð-
inga. Pólverjum og Kínverjum er
flogið inn í tugatali til Egilsstaða
til þess að byggja virkjunina og
sjálfsagt verður haldið áfram að
fljúga þeim inn til þess að vinna í
álverinu. Mjög gott fyrir Pólverja
og Kínverja svosem, en ég held
að það sjónarmið hafi ekki verið
rökin fyrir framkvæmdunum
upphaflega.
ÚT af þessu álveseni er sjávarút-
vegur að fara á höfuðið út af háu
gengi. Smáfyrirtæki leggja upp
laupana. Hátæknifyrirtæki með
menntuðu innlendu vinnafli flytja
til útlanda. Og þetta gerist þrátt
fyrir að tölur og rök sýni að stór-
iðja er miklu óheppilegri kostur en
til dæmis hátækniðnaður til þess
að auka þjóðarframleiðslu og hag-
vöxt til lengri tíma. Enda er lítið
vit í öðru fyrir hámenntaða þjóð
en að leggja áherslu á hátækni.
ÁLIÐ er ofmetið. Akureyri fékk
á sínum tíma háskóla. Ekki álver.
Ekki einu sinni álskóla. Ég get
ekki betur séð en að háskólinn hafi
gert gríðarlega mikilvæga hluti
fyrir byggðarlagið, hvað sem hver
segir. Fólk fer til Akureyrar út af
honum. Fólk dvelur þar. Jafnvel
býr þar. Ég man eftir því hvern-
ig sumir hlógu þegar bent var
á það að háskólasetur einhvers
konar á Egilsstöðum myndi gera
miklu meira en álver fyrir svæð-
ið. Kannski voru austanmenn of
uppteknir við að hugsa hvernig
þeir ætluðu að nota álfárið til þess
að selja húsin sín og flytja burt til
þess að nenna að íhuga svoleiðis
skýjakljúfa að sunnan.
TRÚIN á álið er dæmi um það
hversu mikilvægt það er að þjóðir
móti sér stefnu, stjórnmálaflokk-
ar hafi stefnu og að fólkið kjósi
um stefnu. Ekki minnist ég þess
nefnilega að nokkurn tímann hafi
íslenskur flokkur lýst því yfir að
breyta ætti Íslandi í reykspúandi
stóriðjukumbalda í stað þess að
leggja áherslu á eitthvað annað.
Þetta hefur aldrei verið rætt. Og
þess vegna erum við núna á fleygi-
ferð til álskotans. ■
Um ál