Fréttablaðið - 24.02.2006, Síða 4
4 24. febrúar 2006 FÖSTUDAGUR
LÓÐAÚTBOÐ Aðeins verður gengið
að einu tilboði verktakanna sem
áttu hæstu kauptilboð í eigin nafni
í par- og einbýlishúsalóðirnar í
Úlfarsfelli. Borgarráð samþykkti
það í gær með fjórum atkvæðum.
Sjálfstæðismenn sátu hjá.
Benedikt Jósepsson, sem átti
hæsta tilboð í 39 af 40 einbýlis-
húsalóðir, fundaði með borgar-
stjóra um málið í fyrradag. Hann
segir að á fundinum hafi hann lýst
því yfir að hann færi yfir réttar-
stöðu sína. Hann hefur þegar leit-
að ráða lögfræðings.
„Ég þarf að fara betur í gegn-
um málið. Ég er til dæmis ekki
búinn að sjá hvað lóðirnar koma til
með að kosta á endanum. Sá sem
býður hæst fær að velja fyrst, en
þarf hann að borga það sem hann
bauð? Það væri á skjön við upp-
boðið því hæstbjóðandi hefði átt
að fá allar lóðirnar en nú er búið
að breyta skilmálunum. Því finnst
mér að þeir ættu að láta eitt verð
yfir alla ganga,“ segir Benedikt og veltir fyrir sér fleiri vafaatriðum
sem komin séu upp: „Þetta er flók-
ið mál og ég þarf því að sjá hver
niðurstaðan verður áður en ég
ákveð framhaldið.“
Bjarni Tómasson, sem átti hæsta
tilboð í 28 af 43 parhúsalóðum, er
undrandi á ákvörðun borgaryfir-
valda. „Þó borgarstjóri hafi talað
um að takmarka lóðirnar trúði ég
því ekki fyrr en af því varð. Við
erum að skoða okkar mál,“ segir
Bjarni. Honum hafi ekki verið til-
kynnt formlega um ákvörðunina.
„Þetta er allt hið mesta klúður hjá
R-listanum,“ segir Bjarni og tekur
fram að hann styðji flokkinn en
enginn sé fullkominn.
Steinunn segir að þó hægt sé að
fara með málið fyrir dómstóla og
fá lögfræðilega niðurstöðu sé það
ekki meginkjarni málsins. „Þetta
snýst ekki um lögfræði heldur rétt-
læti og að við stöndum við það sem
við ætluðum okkur,“ segir Stein-
unn. Meirihlutinn telji að samning-
ur milli borgarinnar og lóðabjóð-
enda sé ekki kominn á fyrr en
tillögur um hvaða tilboðunum eigi
að taka séu lagðar fram. Enginn
hafi skaðast af málinu. Hún hafi
því lagt fram tillöguna á borgar-
ráðsfundinum í gær svo það
markmið næðist að hver fengi
aðeins eina lóð.
gag@frettabladid.is
Hnitmiðað námskeið um félagaform, skattlagningu fyrirtækja,
frádráttarbæran rekstrarkostnað, ábyrgð stjórnenda o.fl.
Námskeiðið skiptist í þrjá hluta og geta þátttakendur valið um:
1. Síðdegisnámskeið
Kennt þriðjud. 28. feb., 7. og 14. mars kl. 17-20 að Hallveigarstíg 1, Reykjavík
2. Morgunnámskeið
Kennt 2., 7. og 9. mars kl. 8:30-11:30 í Húsi verslunarinnar, 2. hæð, Reykjavík
Boðið verður upp á léttar veitingar í hléi. Verð 25.000 kr.
Leiðbeinandi er Anna Linda Bjarnadóttir, héraðsdómslögmaður, LL.M
VR og fleiri félög styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeiðinu.
Sjá námskeiðslýsingu á www.isjuris.is
Nánari upplýsingar og skráning í símum
520-5580, 520-5588, 894-6090 eða á alb@isjuris.is
Viltu stofna
fyrirtæki?
LÖGREGLUMÁL Gæsluvarðhald
tveggja manna frá Litháen sem
sitja inni vegna rannsóknar lög-
reglu á tilraun til smygls á
amfetamíni í fljótandi formi renn-
ur út í dag. Annar þeirra var tek-
inn með efnið á Keflavíkurflug-
velli, en hinn er búsettur hér.
Rannsókn hefur samkvæmt upp-
lýsingum Fréttablaðsins meðal
annars beinst að því hvort sá síð-
arnefndi hafi átt að taka við amfet-
amínbasanum af burðardýrinu.
Basinn var á lokastigi fyrir
neysluhæft form af amfetamíni.
Það magn sem maðurinn reyndi að
smygla til landsins hefði gefið enn
fleiri kíló af amfetamíni hefði það
komist í sölu hér.
Í gæsluvarðhaldi situr einnig
Mikael Már Pálsson, sem reyndi
að smygla rúmlega 3,5 kílóum af
amfetamíni til landsins. Rannsókn
á hans máli er langt komin, að
sögn lögreglu. Hún hefur meðal
annars leitt í ljós að hann útvegaði
þrjá átján ára unglinga sem burð-
ardýr til smygls á fíkniefnum
hingað til lands. Hann fjármagn-
aði hins vegar ekki þau fíkniefna-
kaup sjálfur. Piltarnir voru hand-
teknir við komuna til landsins og
voru þá með hálft kíló af kókaíni.
Mikael Már situr í gæsluvarð-
haldi til 31. mars. Þetta langa
gæsluvarðhald vekur athygli og
ætla má að hann þurfi að sitja
inni þar til dómur gengur yfir
honum. - jss
HÆSTIRÉTTUR Staðfesti úrskurð héraðs-
dóms um gæsluvarðhald yfir Litháa.
Litháar sem sitja inni vegna gruns um amfetamínsmygl:
Varðhald rennur út í dag
AFGANISTAN, REUTERS Afganskur
kaupmaður lést og þrettán særð-
ust, þar á meðal þýskur friðar-
gæsluliði, í sprengjutilræði í norð-
urhluta Afganistans á miðvikudag.
Sprengjan, sem tengd var fjar-
stýringu á reiðhjóli, sprakk þegar
hópur friðargæsluliða var að
versla á markaði í Kunduz í
norðurhluta landsins, að sögn lög-
reglu.
Um 9.000 manns eru í ISAF,
alþjóðlega friðargæsluliðinu sem
NATO fer fyrir í Afganistan, þar á
meðal á annan tug Íslendinga. ■
Árás á friðargæslulið NATO:
Afgani fórst og
þrettán særðust
ORKUMÁL „Við höfum reynt þetta
áður án árangurs en nú ætlum við
að reyna aftur,“ segir Kristinn
Jónasson, bæjarstjóri í Snæfells-
bæ.
Bæjarfélagið ætlar í samvinnu
við nokkra aðila að freista þess að
leita að heitu vatni að nýju en öll
hús í bænum eru hituð með raf-
magni og segir Kristinn það slæmt
með tilliti til hækkandi orkuverðs.
„Aðgangur að heitu vatni er betri
og ódýrari kostur en rafmagn auk
þess sem við getum ekki í dag
leyft okkur ýmsan þann munað
sem margir líta á sem eðlilegan
hlut eins og að hafa heita potta eða
hita í gangstéttum og bílaplön-
um.“ - aöe
SNÆFELLSBÆR Enn á ný verður látið reyna
á hvort ekki finnist heitt vatn í nágrenninu.
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar:
Heitt vatn í
stað rafmagns
SÁDI-ARABÍA, AP Ritstjóri sádi-arab-
ísks dagblaðs sem yfirvöld bönn-
uðu í vikunni varði þá ákvörðun að
endurbirta þrjár af Múhameð-
steikningunum tólf sem uppruna-
lega birtust í Jótlandspóstinum og
valdið hafa múgæsingarreiði um
gervallan heim múslima.
„Blaðið birti teikningarnar
eftir að æðstiklerkur Sádi-Araba
gaf út fatwa, trúarlega tilskipun,
þar sem hann hvatti til endurbirt-
ingar teikninganna til að „sýna
ljótleika þeirra og kynda undir
reiði múslima“,“ sagði ritstjórinn.
Rakti hann ákvörðunina um að
loka blaðinu til ofsatrúarmanna í
stjórnkerfi landsins. ■
Múhameðsteikningamálið:
Dagblaði lokað
í Sádi-Arabíu
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 23.2.2006
Gengisvísitala krónunnar
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
110,9776
Bandaríkjadalur 66,14 66,46
Sterlingspund 115,89 116,45
Evra 78,98 79,42
Dönsk króna 10,582 10,644
Norsk króna 9,81 9,868
Sænsk króna 8,377 8,427
Japanskt jen 0,5644 0,5678
SDR 95,2 95,76
Verktakarnir íhuga
málsókn vegna lóða
Bjarni Tómasson byggingameistari, sem átti hæsta tilboð í 28 af 43 parhúsalóð-
um í Úlfarsfelli, er undrandi á þeirri ákvörðun borgarinnar að taka aðeins einu
tilboðanna. Hann skoðar réttarstöðu sína rétt eins og Benedikt Jósepsson.
Á BORGARRÁÐSFUNDI Sjálfstæðismenn
sátu hjá þegar R-listamenn samþykktu að
framfylgja markmiðum sínum um eina lóð
á mann í Úlfarsfelli á borgarráðsfundi í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MEXÍKÓ, AP Ekkert hefur gengið að
ná til 65 námuverkamanna sem
lokuðust inni í kolanámu í Norður-
Mexíkó þegar sprenging varð í
henni aðfaranótt sunnudagsins.
Óttast er um afdrif mannanna,
sem höfðu um sex klukkustunda
forða af súrefni með sér. Var von-
ast til að þeir hefðu komist í súr-
efniskúta sem geymdir eru víða
um námuna, eða fundið loftop. Ætt-
ingjar mannanna hafa dögum
saman setið utan við námuna og
beðið frétta af ástvinum sínum. ■
Námuslys í Mexíkó:
Ekkert frést af
mönnunum
MILLI VONAR OG ÓTTA Ættingjar 65
kolanámumanna sem lokuðust inni í
mexíkóskri námu hafa beðið fregna af
þeim í fimm daga samfleytt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÍKNIEFNAMÁL Tollgæslan á Kefla-
víkurflugvelli stöðvaði í fyrradag
franskan karlmann sem hafði í
fórum sínum rúm sextíu grömm
af hassi. Maðurinn var að koma
frá Frakklandi og fannst efnið á
honum við hefbundna leit en hann
var með það innan klæða.
Annríkt hefur verið hjá toll-
gæslu og lögreglu á Keflavíkur-
flugvelli það sem af er ári en mun
fleiri mál hafa komið upp á vellin-
um miðað við á sama tíma í fyrra.
Mál franska mannsins er enn í
rannsókn en lögreglan á
Keflavíkurflugvelli yfirheyrði
hann í gær.
- mh
Tekinn á Keflavíkurflugvelli:
Með sextíu
grömm af hassi
ÚLFARSFELL
Einbýlishúsin gul.
Parhúsin blá.
Raðhúsin græn.
Stofnanir appelsínugular
og fjölbýlin fjólublá.