Fréttablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 12
12 24. febrúar 2006 FÖSTUDAGUR
BRUSSEL, AP Sérfræðingar í sótt-
vörnum samþykktu á miðvikudag
takmarkaða áætlun Frakka og
Hollendinga um bólusetningu ali-
fugla gegn fuglaflensu.
Áætlunin miðar að ákveðnum
fuglategundum í vissum héruðum
og verður fylgst vel með fram-
gangi hennar. Markos Kyprianou,
sem fer með heilbrigðismál í
framkvæmdastjórn ESB, segir
nýleg dæmi um útbreiðslu
flensunnar sýna að hindra verði
hana með öllum tiltækum ráðum.
Fuglaflensa af hinum hættu-
lega H5N1-stofni hefur verið stað-
fest í sjö aðildarríkjum sambands-
ins. ■
Útbreiðsla fuglaflensunnar:
ESB heimilar
bólusetningu
KASAKSTAN, AP Yfirmaður leyni-
þjónustu Kasakstan sagði af sér á
miðvikudag í kjölfar þess að fimm
undirmenn hans voru handteknir,
grunaðir um aðild að morði á einum
helsta leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar í landinu.
Talsmenn stjórnarandstöðunn-
ar segja að morðið á Altynbek Sar-
sanbajev hinn 11. febrúar hafi
verið af pólitískum rótum runnið
og leyniþjónustumenn hafi framið
það. Kröfðust þeir að elsta dóttir
Nursultans Nasarbajev forseta og
tengdasonur hans, sem er aðstoð-
arutanríkisráðherra, yrðu yfir-
heyrð í tengslum við rannsókn
málsins. ■
Pólitískt morð í Kasakstan:
Leyniþjónustu-
stjórinn víkur
EGYPTALAND, AP Talsmenn Bræðra-
lags múslima tilkynntu í vikunni
að þeir væru að hefja alheims-
fjársöfnun til styrktar nýrri
heimastjórn Palestínu undir for-
ystu Hamas-samtakanna. Ástæð-
an er tilraunir Bandaríkjastjórn-
ar til að stöðva fjárframlög til
Hamas-samtakanna. Talsmenn
bræðralagsins sögðu meðlimi
sína tilbúna að gefa Palestínu
fjórðung tekna sinna, en bræðra-
lagið er að finna í 86 löndum.
Tilkynningin kom um það
leyti sem utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Condoleezza
Rice, lagði af stað í heimsókn til
þriggja arabalanda - Egypta-
lands, Sádi-Arabíu og Samein-
uðu arabísku furstadæmanna - í
þeim tilgangi að biðja ríkis-
stjórnir þeirra um að styðja ekki
Hamas fyrr en hreyfingin hefur
afneitað ofbeldi og viðurkennt
tilverurétt Ísraels. Á miðviku-
dag höfðu Sádi-Arabar og Egypt-
ar neitað að verða við þeirri
bón.
Bandaríkin og Evrópusam-
bandið skilgreina Hamas sem
hryðjuverkasamtök, sem erfiðar
fjárframlög til stjórnar sem þau
eru í forystu fyrir, en palest-
ínska heimastjórnin hefur lengi
reitt sig á alþjóðlega fjárstyrki.
- smk
Bræðralag múslima safnar fé fyrir Hamas:
Vilja gefa fjórðung tekna
HAMAS Í STJÓRN Palestínsk telpa á stuðn-
ingsfundi Hamas-hreyfingarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BROSAÐ GEGNUM TÁRIN Þessi yngismær
var valin drottning kjötkveðjuhátíðarinnar á
Santa Cruz de Tenerife á Spáni í vikunni og
var að vonum ákaflega hamingjusöm með
titilinn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SJÚKRATRYGGINGAR Stjórn Trygg-
ingastofnunar telur að „réttmætar
ábendingar um ýmislegt sem
betur mætti fara“ sé að finna í
samantekt sérfræðinga sjúkra-
tryggingasviðs TR um notenda-
gjöld, að því er fram kemur í fund-
argerð stjórnar.
Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra hefur gagnrýnt tiltekna
þætti skýrslunnar og sagt að taka
beri þeim með fyrirvara. Stjórn
TR bókaði hins vegar á fundi sér-
stakar þakkir til sérfræðinganna
fyrir skýrsluna, sem kallast „Rétt-
látari notendagjöld í sjúkratrygg-
ingum á Íslandi“. - jss
NOTENDAGJÖLD Stjórn Tryggingastofnunar
þakkar fyrir skýrslu um notendagjöld.
Stjórn Tryggingastofnunar ríkisins:
Ábendingar í
skýrslu réttmætar
LANDSPÍTALI Af 293 skráðum atvik-
um og slysum sem starfsfólk Land-
spítala - háskólasjúkrahúss varð
fyrir á síðasta ári voru 212 af völd-
um ofbeldis, bæði andlegs og lík-
amlegs. Flest atvikin urðu á geð-
sviði. Þetta kemur fram í slysa- og
atvikaskýrslu fyrir árið 2005, sem
var unnin af skrifstofu starfs-
mannamála og deild heilsu-, örygg-
is- og vinnuumhverfis spítalans.
Í samantektinni voru borin
saman ár, mánuðir, svið, starfs-
stéttir og eðli atvika. Þar kemur
fram að árið 2002 var fjöldi skráðra
slysa og atvika á spítalanum 198.
Árið 2003 stórfjölgaði tilkynning-
unum og urðu þær samtals 371.
Árið 2004 fækkaði þeim heldur og
voru þá samtals 307. Á síðasta ári
bárust svo samtals 293 slysa- og
atvikaskýrslur til skrifstofu starfs-
mannamála, eins og áður sagði.
Athygli vekur að sú starfsstétt
sem oftast varð fyrir slysum á spít-
alanum er starfsfólk við aðhlynn-
ingu. Næstflestir voru hjúkrunar-
fræðingar, þá sjúkraliðar og loks
starfsfólk í eldhúsi.
Tryggingastofnun ríkisins voru
sendar 44 tilkynningar þar sem til
að mynda var óskað eftir bótum
slysatrygginga vegna slysadagpen-
inga og endurgreiðslu til starfs-
manna vegna sjúkrakostnaðar. Þá
voru Vinnueftirliti ríkisins sendar
34 tilkynningar samkvæmt reglum
um tilkynningu vinnuslysa.
Á síðasta ári var unnið að því að
koma slysa- og atvikaskráningu á
rafrænt form og hafa flestar til-
kynningar borist rafrænt frá ára-
mótum.
Þegar starfsmaður tilkynnir
atvik fær næsti yfirmaður og sviðs-
stjóri tilkynningu með tölvupósti.
Þannig geta yfirmenn auðveldlega
fylgst með þeim atvikum sem
verða á sínum einingum eða svið-
um og verður því úrvinnsla og
eftirfylgni auðveldari og skilvirk-
ari, að því er fram kemur hjá skrif-
stofu starfsmannamála LSH.
jss@frettabladid.is
GEÐDEILD Af þeim 212 ofbeldismálum gagnvart starfsfólki Landspítalans sem skráð voru á
síðasta ári voru langflest á geðdeild, 194 talsins.
Ofbeldismál
í hundraðavís
Á þriðja hundrað mál voru skráð hjá Landspítala á
síðasta ári vegna líkamlegs og andlegs ofbeldis gegn
starfsfólki. Langflest atvikin urðu á geðdeild.
EÐLI SLYSA OG ATVIKA 2005
fall 22
ofbeldi 212
högg 11
bruni 12
annað 36
15
10
28
45
21
32
25
22
13
27
22
33
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ág. sept. okt. nóv. des.
FJÖLDI SLYSA OG ATVIKA 2005