Fréttablaðið - 24.02.2006, Page 16
24. febrúar 2006 FÖSTUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Hann er nú ekki eins
og flestir menn
„Egill: Þegar þú þarft að
vitna í Nietzsche til að verja
frjálslyndi og lýðræði, þá er
etitthvað skrítið að ske.“
HAUKUR MÁR HELGASON HEIM-
SPEKINGUR Í GREIN Í FRÉTTA-
BLAÐINU UM EGIL HELGASON OG
SIÐFERÐI.
Hagstjórn 101 í boði
Samfylkingarinnar
„Þegar þensla er í hagkerf-
inu skiptir máli að beita
stjórntækjum ríkisins til
að halda aftur af ónauð-
synlegum fjárfestingum,
örva sparnað og hvetja fólk
og fyrirtæki til að fara sér
hægt.”
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR,
FORMAÐUR SAMFYLKINGARINNAR,
Í GREIN Í MORGUNBLAÐINU.
Gengur
ekki upp
„Eins og hefur sýnt sig gengur þetta
ekki upp,“ segir Elvar Árni Lund,
sveitarstjóri í Öxarfjarðarhreppi, um
umdeilt lóðaútboð Reykjavíkurborgar
undir Úlfarsfelli. Hann telur nær að
setja ákveðið verð á lóðirnar, gefa
fólki kost á að sækja um og draga
svo um þær. „Ég held að það sé
sanngjarnasta leiðin því þetta fyrir-
komulag býður upp á að menn fari á
svig við reglurnar.“
Elvar Árni segir réttast að ógilda
útboðið og byrja upp á nýtt.
„Borgaryfirvöld ættu að endurtaka
þetta með nýjum reglum,“ segir
hann og bætir við að eins og staðið
sé að lóðaúthlutun í Reykjavík sé
Reykvíkingum nauðugur einn kostur
að sækja um lóðir í nágrannasveitar-
félögunum.
SJÓNARHÓLL
LÓÐAUÚTBOÐIÐ UNDIR
ÚLFARSFELLI
ELVAR ÁRNI LUND, SVEITARSTJÓRI Í
ÖXARFJARÐARHREPPI
Nóg er um að vera hjá Katrínu
Júlíusdóttur, þingkonu Samfylk-
ingarinnar, um þessar mundir.
Stórafmæli, leikur á sviði,
fundarferðir og frumvarp um
fæðingarorlof ber á góma þegar
blaðamaður slær á þráðinn.
Katrín er á kafi í vinnu við frum-
varpið, sem verður lagt fram
á næstunni. Það miðar meðal
annars að því að við sérstakar
aðstæður geti einstæðir foreldrar
sótt um níu mánaða fæðingarorlof.
Einnig stendur yfir undirbún-
ingur stórafmælis í
fjölskyldunni og
mun það vera
einkasonur
Katrínar sem
verður sjö ára. ,,Þetta er í fyrsta
sinn sem haldið verður alvöru
bekkjarafmæli og útlit er fyrir
að litlu heimilislegu barna-
afmælin hafi runnið sitt skeið
á enda,“ segir Katrín og lýsir
mikilli tilhlökkun í afmælis-
barninu og öðrum heimilis-
mönnum.
Katrín mun taka þátt
í fundaferðum út á land á
næstunni sem konur í Sam-
fylkingunni standa fyrir. Þetta
eru opnir fundir fyrir konur
og farið verður
yfir stjórn-
málasviðið í
aðdraganda
sveitarstjórn-
arkosninganna. Einn fundur hefur verið hald-
inn á Selfossi nú þegar og tókst hann vel.
Katrín er ásamt öðrum þingkonum að
æfa fyrir leikritið Píkusögur sem verður flutt
1. mars næstkomandi. Þessi viðburður er
á vegum V-dags samtakanna, sem höfðu
samband við allar þingkonur og báðu þær
að taka þátt í uppfærslunni. Undirbúningur
hefur staðið yfir í mánuð og leikstýrir María
Ellingsen verkinu. ,,Við tókum því sem að
okkur var rétt,“ segir Katrín þegar hún er
spurð hvort bitist hafi verið um hlutverkin.
,,Það er bara frábært að fá að taka þátt í
þessu og málstaðurinn er verðugur.“ Mikill
spenningur ríkir í hópnum í bland við smá
feimni, að sögn Katrínar, og gerir hún
ráð fyrir að þingmenn mæti allir til að sjá
þingkonur leika á sviði til stuðnings góðu
málefni.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR ÞINGKONA
Leikur í Píkusögum ásamt öðrum þingkonum
Breiðholtshátíð, menn-
ingarhátíð eldri borgara
í Breiðholti, hófst í gær.
Margt er á dagskránni en
áhersla er lögð á stefnu-
mót eldra og yngra fólks
í hverfinu og verður með-
al annars efnt til keppni
milli kynslóðanna í boccia,
félagsvist og íslensku. Þá
verða menningarviðburðir
af ýmsu tagi; kórsöngur,
dans, hljómleikar, myndlist-
ar- og handverkssýning og
íþróttahátíð.
Meðal þeirra sem taka þátt í
menningarhátíðinni er Bragi Þór
Guðjónsson, 79 ára húsasmíða-
meistari og myndlistarmaður.
Hann sýnir 21 verk í Fella- og
Hólakirkju og var sýning hans
opnuð í gær.
Bragi hefur lengi mundað pens-
ilinn en aldei af jafn miklum krafti
og eftir að hann hætti að vinna.
„Ég hef málað frá barnæsku en
gert meira af því eftir að ég komst
á efri ár, þá hefur gefist meiri
tími,“ segir Bragi, sem vann sem
húsasmiður um árabil og byggði
bæði hús í Reykjavík og virkjanir
úti á landi.
Bragi fæddist í Vestmannaeyj-
um en ólst upp í Vatnsdal í Fljóts-
hlíð við alla þá náttúrufegurð og
fjallasýn sem þar er. Landslagið
er einmitt ríkt í verkum hans en
þó ekkert tiltekið landslag heldur
skáldar hann umhverfið sem hann
málar.
Þetta er þriðja sýning Braga,
áður hefur hann sýnt verk sín í
Gerðubergi og í Ráðhúsinu. Allar
myndirnar á sýningunni í Fella- og
Hólakirkju eru til sölu og kosta
frá 25.000 krónum upp í yfir
200.000.
Auk menningar- og listviðburða
verður þing um málefni eldri borg-
ara á menningarhátíðinni í Breið-
holti. Fer það fram í Gerðubergi
síðdegis í dag. Meðal annars verð-
ur fjallað um upphaf félagsstarfs
eldri borgara í Reykjavík, hvernig
nota eigi félagsþjónusta sem í boði
er og rýnt inn í framtíðina. Þá
verður íþróttahátíð Félags áhuga-
fólks um íþróttir aldraðra í Íþrótta-
miðstöðinni við Austurberg á
morgun og hefst hún klukkan 14.
Íþrótta-, dans og leikfimiatriði
verða sýnd og dixielandhljómsveit
Árna Ísleifssonar flytur tónlist.
Sérstök hátíðardagskrá verður
svo í samkomusal Hólabrekku-
skóla annað kvöld og verður þar
meðal annars Breiðholtslagið eftir
Þorvald Jónsson við texta Helga
Seljan frumflutt. ■
BRAGI ÞÓR GUÐJÓNSSON Hefur málað frá blautu barnsbeini en aldrei jafn mikið og eftir að hann komst á eftirlaun. Hann sýnir 21 verk í
Fella- og Hólakirkju og er sýningin liður í menningarhátíð eldri borgara í Breiðholti. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Eldri borgarar sýna listir
sínar í Breiðholtinu
Um 5.280 íbúar Hafnarfjarðar vinna
í heimabæ sínum, samkvæmt athug-
un Hagstofunnar fyrir hafnfirsk
bæjaryfirvöld. Hefur Hafnfirðing-
um sem vinna í Hafnarfirði því
fjölgað að undanförnu en árið 1998
voru þeir 4.460. Á sama tíma hefur
utanbæjarmönnum sem vinna í
Hafnarfirði fjölgað um 840. Talið er
að um 8.500 störf séu í Hafnarfirði
en árið 1998 voru þau 6.830. Hafa
ber í huga að hér er aðeins rætt um
störf hjá fyrirtækjum sem hafa
skráð heimilisfang í Hafnarfirði en
stórfyrirtæki sem starfa vítt og
breitt um landið eru flest með heim-
ilisfang í Reykjavík. Má þar nefna
bankana og olíufélögin.
1.410 Reykvíkingar sækja vinnu
til Hafnarfjarðar, 550 Kópavogsbúar
og um 400 Garðbæingar. - bþs
HAFNARFJARÐARHÖFN Störfum hefur fjölgað í Hafnarfirði undanfarin ár. Um 5.280 bæjar-
búar vinna hjá fyrirtækjum í bænum en aðrir sækja vinnu sína út fyrir bæjarmörkin.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gott að vinna í Hafnarfirði
LÍNUDANS Á INGÓLFSTORGI Línudansarar
ætla saman í bíó á morgun og eftir viku
halda þeir grímuball.
Viðbúið er að fjörugt verði á sýn-
ingu kvikmyndarinnar Walk the
Line í Smárabíói annað kvöld en
meðlimir í Félagi íslenskra línu-
dansara ætla að fjölmenna í bíó.
Línudansarar eru þekktir af lífs-
gleði og fjöri og ekki ólíklegt að
einhverjir smelli fingrum þegar
helstu slagarar Johnny Cash óma
um salinn. Þrengsli koma þó í veg
fyrir að þeir geti stigið dans í bíó-
inu.
Um næstu helgi verður fjörið
svo enn meira en félagið stendur
þá fyrir grímuballi í Lionssalnum
í Auðbrekku 25 í Kópavogi. Er það
haldið í tilefni af öskudeginum
sem er á miðvikudag.
Línudansarar
saman í bíó
HJÁLMAR ÁRNASON VIÐ DAUÐANS
DYR EFTIR HJARTAÁFALL
– HNEIG NIÐUR Í HJARTASTOPPI
– FÓR Í HJARTAÞRÆÐINGU Í GÆR
LÍFGAÐUR
VIÐ MEÐ
RAFLOSTI
2x15 23.2.2006 20:23 Page 1